Vikan - 29.06.1961, Side 2
r ■ i •
nýtt loni
auðveldar hárlagninguna
Hárið verður glæsilegt
GREITT í LOKKÁ1
GREITT SLETT
HÁRIÐ HELDUR SÉR MJÖG YEL MILLI ÞVOTTA
^LLAR VILJUM við að hárið
verði eins og það er lagt og
haldist þannig milli þvotta. Ef við
breytum hárgreiðslu, þá þarf
nýja greiðslan að endast vel.
Þess vegna er nauðsynlegt að fá
sér perm og og það er TONI sem
leysir galdurinn. EVEN-FLO hár-
liðunarvökvinn er það eina, sem
gerir lagninguna auðvelda. Setur
glæsibrag á hárið.
Svo auðvelt. Fylgið aðeins hin-
um einföldustu leiðbeiningum, sem
eru á íslenzku, og hárlagningin
verður fullkomin, og endingargóð„
/
Super fyrir erfitt hár.
Regular fyrir venjulegt hár.
Gentle fyrir auðliðað hár.
Veljið TONI við yðar hæfi.
Við og við berast fréttir úr heimi
vísinda mönnum til mikillar upp-
örvunar. T.d. hefur brezkur læknir
A. J. Burton skrifað mjög svo at-
liyglisverða grein i læknablað. Er
inntak hennar á þá leið, að vísindin
séu nú svo langt komin, að þess
gerist varla þörf lengur að hafa
svona marga karlmenn til að við-
lialda mannkyninu eins og nú tíð-
kast. í raun og veru nægir að hafa
einn karlmann á hverjar 3000 kon-
ur. Reyndar fer hann enn lengra
út i þessa sálma og fullyrðir að hægt
— I vikishjrjjuu —
er að komast algjörlega af án karl-
manna. Verður ])á ekkert nema
kvenfólk á jörðunni. Og þá verður
gaman að lifa eða hvað finnst ykk-
ur‘?
— O —
Bandarískt dagblað hefur haft
skoðanakönnun um það, hvaða kröf-
ur ungar stúlkur gera til væntan-
legra eiginmanna. Hér er svo nið-
urstaðan. í> fyrsta lagi: Iðni
í öðru: Hann veröur að eiga bíl.
í þriðja: Greind. I fjórða: Hann
verður að eiga bíl. í fimmta: Sam-
vizkusemi. í sjötta og siðasta lagi
verður hann að eiga bíl. Sé billinn
af réttri gerð og réttuin árgangi má
sleppa fyrsta, þriðja og fiinmta lið.
— O —
Á þessari öld geimferða hcfur
löngunin til að ferðast í loftinu
greinilega líka náð til dýrana.
Um daginn stökk lítill hundur út
um glugga á tólftu liæð í New York.
Hundsspottið lenti ofan á sportbíl
ú ferð og fór beint i gegnum striga-
þakið. Kominn inn í bílinn gerði
liann sér lítið fyrir og opnaði liurð-
ina og hvarf. Bíleigandinn fékk
taugaáfall og liggur nú á sjúkrahúsi
og fjasar um geimhunda og annað
slíkt.
— O —
Nýverið átti það sér stað í Banda-
ríkjunum, að hjólrciðamaður var
sektaður fyrir of hraðan akstur. Var
]>að mörgum ánægjuefni, þeim sem
álíta að Kanar séu orðnir of latir og
værukærir af öllum bílunum sín-
um. Sannaði þetta að lijólreiðar eru
ekki með öllu útdauðar í Banda-
ríkjunum. Sá sem sektina borgaði
var 21 árs gamall stúdent og hafði
hann verið á leið í háskólann, þegar
liann var telcinn fastur fyrir að
brjóta regluna um 50 km. liámarks-
hraða, en liann vai á 60 km. liraða.
— O —
Sænskt blað liefur liaft uppi
spurninga meðal kvenfólks um ]iað,
hvað þær helzt vilja vita um karl-
menn. Og svörin voru á þessa leið:
Frá 16 til 22 ára spurðu þær:
Hvernig er hann?
Frá 22 til 30 : Hvað er hann?
Frá 30 til 98 : Hvar er hann?
Þær sem eru yfir 98 reyna að
muna : Hver var liann?
— O —
Sí og æ er verið að finna út með-
altal einhverra hluta og nú er búið
að finna það að franskar stjörnur
eru að meðaltali fimmtung hverrar
kvikmyndar í rúminu. Þetta er að
vísu ekki mikið borið saman við
það, að mannkynið eyðir þriðjung
æfinnar í rúminu. En þá er líka
gert ráð fyrir að menn liggi kyrrir,
en þvi er ekki að heilsa í kvikmynd-
iinum.