Vikan


Vikan - 29.06.1961, Side 22

Vikan - 29.06.1961, Side 22
Dr. A. Weber Loftur Guðmundsson ræðir við dr. Weber, frægasta hjartasérfræðing Þjóðverja, sem hlaut undirstöðumenntun á heimili föður síns, vegna þess að gamli maðurinn hafði kynnzt íslenzka farskólakerfinu og taldi það fullkomnasta fræðslukerfi í heimi. Dr. Weber var andstæður nazistum, en þeir „settu hann á“ af eigingjörnum ástæðum. Hann starfar nú við rannsóknarstofnun fyrir hjartasjúkdóma í Bad Nauheim, sem Planck-vísindastofnunin byggði yfir hann. HJORTU M „Hefði þýzkur blaðamaður fengið áheyrn lijá (lr. 'Weber mundi það áreiðanlega vekja almenna athygli,“ sagði einn af prófessörunuin við háskólann í Giessen, þegar ég lét þess getið, að ég liefði rælt í meira en liálfa klukkustund við gamla mann- inn þá um morguninn. Og það brá fyrir nokkurri tortryggni í augnatilliti þrófessorsins svona ósjálfrátt. Það var eiginlega J)á fyrst, að mér skildist að ég mundi. hafa verið óvenjulega heppinn þeunan fyrsta morgun minn í Hessen — og þó óheppinn um leið, þar sem hálsbó'iga, sótthiti og hálfgildings andvökunótt i svefnvagni á leiðinni frá Ham- borg til ,Bad Nauheim gerði sitt til Jiess að mér hafði ef til vill ekki nýtzt þetta sérstæða tækifæri eins vel og ella. Sjálfiur hafði ég ekkert þurft fyrir þessu viðtali að hafa; það var dr. Weber sjálfur, sem bauð mér inn í einkaskrifstofu sina i rann- sóknarstofnuninni, tók sér sæti við hlið mér og stakk upp á |>ví að við ræddumst við á meðan ég biði þar samferðamanna minna. En livað sem viðtalinu leið, þá var ég hendingunni — eða livað það nú er, sem á stundum virðist taka ótilkvatt að sér stjórnina á högum manns - innilega þakklátur fyrir það, að ég skyldi hafa fengið að kynnast þessum gráliærða og göfug- mannlega öldungi, sem um áratuga skeið hefur notið alþjóð- legrar viðurkenningar sem einhver lærðasti og færasti lijarta- sjúkdómasérfræðingur og lijartalæknir í heimi •— hefur meðal annars stundað fleiri heimskunna listamenn og andans menn, stjórnmálaleiðtoga og konungbornar persónur en nokkur annar núlifandi læknir, en er svo yíirlætislaus, góðlátlega kiminn og mannlegur í orði og framkomu allri, að engum getur dulizt, að hann sé sjálfur af þeim eina og sanna aðli hjartans, sem livorki er kominn undir frægð, fé né valdi. Það er einmilt þetta, sem fyrst og fremst hlýtur að gera dr. Weber ógleymanlegan hverjum þeim, sem átt hefur Jivi láni að fagna að kynnast honum og ræða við hanri, þótt ekki sé nema rétt í svip. — Ég verð að biðja yður að tala dálítið hærra; lieyrnin er farin að sljóvgast, ég er farinn að finna til ellinnar, enda áttatíu og þriggja ára gamall. Hvort viljið þér heldur að við tölum samaij á þýzku, eða J>ér talið ensku og ég þýzku — ég tala ensku nefnilega ekki eins vel og ég vildi, en skil hana prýðiiega. Já, því að ekki vil ég verða til þess að særa yður sem íslending með Jjví að stinga upp á dönskunni... Ég bregð samstundis fyrir mig skandínaviskunni og fullvissa öldunginn uin að danskan særi þjóðerniskennd mina ekki liið minnsta; hins vegar hafi danska kokhljóðið alltaf sært bæði cyru mín og liégómagirnd — ég hafi aldrei getað tileinkað mér ]>að, svo að neinu lagi væri líkt. Dr. Weber lilær. — Vitið l)ér það, að ég hef aldrei náð kokhljóðinu heldur, og lief ég þó verið kvæntur danskri konu meira en manns- aldur. Ef þér liafið eitthvað kynnt yður leiklist, kannizt Jiép kannski við systur hennar, frú Ulrich, sem var kunn leikkona i Kaupmannahöfn á sínum tíma, en er nú löngu látin. Á heim- ili mínu liefur alltaf verið töluð danska og við hjónin höfum alltaf, staðið í nánum tengslum við Norðurlöndin. Og við höfum alltaf verið ykkar megin í átökunum við Dani; já, kona min líka, ég veit ekki fyrir vist hvers vegna, en ef til vill hefur hún litið á þetta hlutlausari augum fyrir það, að hún var ekki bú- sett í Danmörku. og J>að gladdi mig mikið Jiegar ég frétti, að þið liefðuð unnið sigur í „þorskastríðinu"; ég fylgdist af áhuga með þeim átöluim öllum, og l>að er sannaríega fagnaðarefni, eitt út af fyrir sig, að málum skuli þó vera Jjannig háltað i heiminum, að minnsta kosti eins og stendur, að smáþjóðir geta unnið sigur á stórþjóðum — án vopnaviðskipta. Ég er ekki viss um að allir geri sér grein fyrir live merkileg sú þróun er. ■— Hafið ]>ér heimsótt ísland, dr. Weber? — Nei. Mig liefur alltaf langað til þess, en aldrei mátt vera að |jví, eða aldrei. gefið mér tíma tii Jjess. Og Jjað verður víst varla héðan af; ég er orðinn fjörgamall og við hjónin bæði. En ég hef óbeinlínis staðið í nokkrum tengslum við íslenzk viðhorf allt frá bernsku. Faðir minn var læknir, cn hafði auk Jjess áhuga á mörgu, til dæmis uppeldis- og skólamálum. Hann hafði fregnir af kennslufyrirkomulagi á íslandi —- að farkenn- arar dveldust lil skiptis á heimilum, segðu börnunum 1 il og settu þeim fyrir, en foreldrarnir og jafnvel vinnufólkið anri- 22 VIKAN

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.