Vikan - 27.07.1961, Side 12
og kastalinn hans
Scottys
FYRRI HLUTI:
JULIAN GERARD.
Morgun einn árið 1900 stóð Scotty á götuhorni í New York
an rammgert hlið kastalans. Á myndinni að
neðan sést kastalinn allur.
Fegurð Dauðadals er mikil og hrikaleg.
Fjöll eru á alla vegu og mjög skörðótt og
víða torfarin. Loftið er heiðskírt og tært og
kyrrðin einstæð. Nálægt veginum er skiiti,
sem á stendur: Óhæft drykkjarvatn. Þetta er
279.0 fet fyrir neðan sjávarmál og er lægsti
staður í Norður-Ameríku og á vesturhveli
jarðar. í sjónmáli frá þessum stað gnæfir
Mt. Whitney, hæsta fjall Bandaríkjanna, í
öllum sínum tignarleik. Nokkru norðar, í
austurliluta dalsins, er Vínberjaskarð, og
efst í ])ví stendur mjög dularfull bygging:
KASTALI, sem herramaðurinn Walter Perry
Scoít reisti langt frá öðrum mannabústöð-
um inni í hrikalegri auðn Dauðadals. Hvað
var það eiginlega, sem batt Scotty svo órjúf-
anlegum böndum við þennan dal?
Saga kastalans er sögð á þessa leið:
Walter Perry Scott var fæddur í Cynthiana,
Kentucky, árið 1872. Hann var stór maður
vexti, yfir sex fet á hæð, og vó rúm 200 pund,
er hann var upp á sitt bezta. Hann var með
þykkan hárlubba og blá augu, sem kvikuðu
af villtum bjarma, hvenær sem eitthvað var
honum andstætt. Úti i auðninni var hann
harðgerðastur ailra gullleitar- og ævintýra-
manna, góður námumaður, og frábær hesta-
maður var iiann og síðast, en ekki sízt, meðal
iiinna síðustu söguríku vesturfara.
Hann var hvatlegur, gáfaður og mjög gest-
risinn, svo og geysimikill frásögumaður. Með
kúrekahattinn sinn á höfði og i bláu skyrt-
unni með rauða hálsklútinn og í háu leður-
stígvélunum gerði hann menn orðlausa frá
Los Angeles til New York.
Scotty var talinn maður leyndardóms-
ins, — sá, er fann hina dularfullu gullnámu
Dauðadals, sem enginn vissi um nema hann
einn, og hafði gefið honum þúsundir dollara
í peningum.
Hann hafði mikið yndi af að renna niður
einhverja aðalgötu stórborganna með troðna
vasa af peningum og fleygja handfylli á báð-
ar hendur. Hann gaf oft 100 dollara i þjórfé
og kveikti í vindlingum sinum með 50 og
100 doltara seðlum. Ef athafnir hans komu
honum á fremstu síður dagblaðanna, var
hann ánægður og taldi peningana hafa fallið
í góðan jarðveg.
Faðir hans ól upp úrvals reið- og keppnis-
hesta, en Kentucky er vel þekkt fyrir hesta
sína.
Scotty var ekki einu sinni kominn á gelgju-
skeiðið, er liann fékk 50 dollara lánaða hjá
eldri bróður sínum og tók lestina til Nevada.
Hann lenti að lokum í borginni Wells um
miðja nótt og varð hestasveinn hjá hr. John
Sparks, sem seinna varð fylkisstjóri í Nevada.
Scotty var aðeins 12 ára gamall, er hann
réð sig á tuttugu asna lestina í Dauðadál, sem
flutti bóraxið frá Old Harmony Works til
Majave. Hann bar vatn í asnana og sá um
hemlana niður brekkur, en upp brekkur hljóp
■hann á eftir þeim og rótaði grjóti að þeim, til
að halda þeim gangandi. Þetta var mikil og
erfið vinna fyrir svona ungan dreng, og eftir
nokkrar ferðir réð hann sig vatnsbera til
hjáíparflokks, sem starfaði í dalnum. í þessum
flokk voru nokkrir gamlir gullleitarmenn, sem
kveiktu áhuga Scottys á gulli, er entist hon-
um alla ævi. Eftir að Scotty fann fyrsta gull-
leirinn, hætti hann ekki, fyrr en hann fann
hina eftirminnilegu gullnámu sína.
BUFFALO BILL-SÝNINGARNAR.
Þegar lijálparflokkurinn hætti, fór Scotty
aftur til Wells og þar tók hann að sér tamn-
ingu og hestaumsjá aftur. En nokkru seinna
fluttist hann til Idaho. Þegar þangað var kom-
ið, var Scotty orðinn úrvals-hestamaður og
snillingur í að sitja ótamda hesta.
Starfsmaður birtist einn daginn frá Buffalo
Bill sýningunum og vildi kaupa nokkrar ó-
temjur. Menn Buffalo Bills voru ekki færir
um að höndla þessa hesta einir og koma þeim
í vagna, svo að Scotty og vinur hans fóru
með þeim til aðstoðar. Þetta var byrjunin á veru Scottys í sýn-
ingunum bjá Buffalo Bill. Slíkur afbragðs hesta- og reiðmaður
var Scotty, að hann var settur inn sem eitt aðalnúmerið með
Önnu Oakley, sem er talin mesta kven-riffilskytta Vesturríkjanna.
I ellefu ár var hann með Buffalo Bill í Bandaríkjunum og Evrópu
og kunni lífinu mjög vel.
Það, sem vakti samt efst í huga hans, var að spara saman eins
mikið og hann gat af launum sínum, en hverfa siðan aftur til
Dauðadals og finna gullnámuna, sem hann dreymdi stöðugt um.
Þar sem gull fannst, var hann ávallt með hinum fyrstu á staðinn,
en aldrei eignaði hann sér land neins staðar. Hann flæktist til
Mexikó og varð verkstjóri i timburverksmiðju í Cananea. Hann
ferðaðist um öll Vesturríkin, en aðeins þó, þegar Buffalo Bill sýn-
ingarnar lágu niðri að vetrinum. Það var ekki fyrr en hann
missti vinnuna hjá Buffalo Bill, að hann byrjaði gullleitina fyrir
alvöru.