Vikan - 27.07.1961, Blaðsíða 29
HrútsmerkiS (21. marz—20. apr.): Þú virðist allt
of svartsýnn þessa dagana, og það mun koma í
ljós innan tíðar, að svarsýni þin hefur verið al-
gerlega ástæðulaus. Að vísu mun allt ekki ganga
sem bezt á fimmtudaginn, en það mótlæti verður
einungis til þess að kenna þér mikilvæga lexíu.
Nautsmerkið (21. apr.—21. maí): Þú munt eiga
mjög annrikt í vikunni, og hætt er við að þú
ráðir alls ekki fram úr því, sem ætlazt er til af
þér. Leggðu samt ekki árar í bát, því að þín
biða rólegar vikur. Þér græðist fé skyndilega
og óvænt. Þú sagðir eitthvað í vikunni sem leið, meira í
gamni en alvöru, en í þessarri viku muntu komast að því
að þetta er háalvarlegt mál. Heillatala 5.
TvíburamerkiÖ (22. mai—21. júní): Þessi vika
verður mjög ánægjuleg, einkum þó heima við,
þvi að eitthvert smáatvik á vinnustað gæti orðið
til þess að valda þér talsverðum áhyggjum. Þú
færð að glima við nýstárlegt verkefni I vikunni,
og verður það til þess að áhugi þinn á einhverju svipuðu
vaknar.
Krabbamerkið (22. júní—23. júlí): Þú munt eiga
óvenju annríkt í vikunni, svo að þú getur naum-
ast gert þér neinar vonir um frístundir. Ef þú
verður að velja milli skyldustarfa og áhugamála,
skaltu umfram allt láta skyldustörfin verða ofan
á. Það verður einhver breyting á lífi þínu í vikunni, og
verður líklega einhver ættingi þinn til þess að þessi breyt-
ing nær fram að ganga. Heillalitur rautt.
Ljónsmerkið (24. júlí—23. ág.): Áberandi með-
vindur í vikunni. Gömul ósk þín rætist til ein-
hverra muna, en allt virðist benda til þess að hún
rætist ekki að fullu fyrr en svo sem að ári liðnu.
Þetta verður mjög' ánægjuleg vika fyrir unga
elskendur, og ef eitthvað hefur valdið þeim kvíða til þessa,
mun sá kviði hverfa eins og dögg fyrir sólu.
Meyjarmerkiö (24. ág,—23. sept.): Það gerist
fremur lítið markvert í þessari viku, en allt bend-
ir þó til þess að hún verði siður en svo leiðinleg,
þér gefst nægur tími til hvíldar, og þú þarfnast
einmitt hvildar eftir amstur síðustu viku. Þú ættir
að nota frístundir þínar til þess að svara nokkrum bréfum,
Vogarmerkiö (24. sept.—23 okt.): Vikan verður
yfirleitt mjög ánægjuleg. Þó gæti gagnrýni orðið
til þess að koma þér í illt skap — því miður er þó
sannleikurinn sá, að þessi gagnrýni er fyllilega
réttmæt, og ef þú ert gæddur nokkrum mann-
dómi, ættir þú að sýna þeim, sem þig gagnrýna, að þú getur
gert betur. Þú ferð í skemmtilegt samkvæmi um helgina.
_____DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Það virðist
flest leika við þér í þessari viku, og gengur það
svo langt, að þér virðist þú fær í flestan sjó og
leggur þvi út í eitthvað, sem þér er algerlega of-
viða Endalok þess máls verða þó allt annað en
leiðinleg. Einhver fjölskyldumeðlimur kemur þér þægilega
á óvart um eða eftir helgina.
BogmaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Þú munt þurfa
að glíma við erfitt verkefni i vikunni, og hætt er
við að það verði ýmis ljón á veginum. En ef þú
gefst ekki upp, munu endalokin verða góð. Þú
verður að fara varlega með peningana — sann-
leikurinn er sá, að Þú heíur sóað þeim í einskisnýta hluti
undanfarið.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan ): Þessi vika er
vika húsmæðranna — allt virðist leika i lyndi
fyrir þeim. Þó þurfa þeir, sem ekki sinna hús-
móðurstörfum ekki að örvænta, þvi að vikan virð-
ist ætla að verða mjög þægileg fyrir flestalla. Nú
virðist rétti tíminn til þess að glíma við það verkefni, sem
varð þér ofviða fyrir skemmstu.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Allt sem þú
gerir í vikunni, virðist fremur tilviljunarkennt.
Þú verður að setja þér einhverjar framtiðaráætl-
anir, í stað þess að láta hverjum degi nægja sína
Þjáningu. Þú virðist hættur að taka nokkrum
framförum í bili. Gamall kunningi þinn kemur skyndilega
talsvert við sögu, en þú munt komast að því, að þið eigið
nú lítið sameiginlegt. Heillalitur grænleitt.
Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Vikan verður
I flesta staði hin ánægjulegasta, þó gæti samt
smáatvik orðið til Þess að varpa skugga á hana,
ef þú ert of tilfinningasamur. Þú hefur vanrækt
eitt slcyldustarí pitt undanfarið, og ef þú lætur
nú ekki hendur standa fram úr ermum, mun fara illa. Ann-
ars er mikil rómantik yfir vikunni.