Vikan


Vikan - 27.07.1961, Blaðsíða 19

Vikan - 27.07.1961, Blaðsíða 19
Lísa fær mikið áfall, en hvað gerir það til Nú eru þau á leið til Monte Paraiso. Hún snerist þegar á hæli og gekk hnarreist yfir til lyftunnar án þess að líta um öxl. En ný hlátursroka kvað við að baki hennar, svo að blóð- ið spratt fram I kinnar Lísu. Þessi andstyggilegi strákur hlaut að hafa bent á hana og sagt:-------En sjáiö piö bara, parna er hún komin! — Que andar, senhorita? spurði lyftustjórinn. Hún svaraði: Efstu hæð — og þaut upp — með hláturinn hljómandi fyrir eyrum sér. — Við skulum borða hádegisverð- inn úti við sundlaugina, sagði Marín, þegar þau höfðu klætt sig og voru komin saman í stofunni. Hún varð forviða á þvi, hve eindregið Lisa lagð- ist á móti því. — Það er allt of heitt þar úti og öll borðin undir sóltjaldinu þegar setin. Getum við þá ekki heldur borðað hérna uppi? anzaði hún ákveðin. Hún var enn þá rjóð í vöngum, og reiðin sauð í henni út af orðum þeim, er hún hafði óviljandi orðið heyrnar- vottur að: — Verst þótti mér, aö ég valdi ranga stúlku ... þaut blóðið fram í kinnar hennar. Til allrar hamingju rakst hún ekki aftur á Bandaríkjamanninn. — Eins og það geri nokkuð til? sagði hún við sjálfa sig hvað eftir nnnað um daginn. Og í hvert skipti BÍLFERÐIN MEÐ PÉTRI. Þau óku brott frá hótelinu I bandarískum bíl, sem allmjög var kominn til ára sinna. Bifreiðarstjór- inn var hörundsdökkur Portúgali, og hafði hann tekið að sér að flytja þau og farangur þeirra alla leið til Novo Friburgo. E'n gjaldið, er hann setti upp, var svo hátt, að jafnvel þau vissu, að það hlaut að vera allt of mikið. -— Ora! sagði hann og pataði út i loftið með báðum höndum. Það er vespera do Ano Novo, — gamlaárs- kvöld. — Ég missa mína fregueses, sem borga góða kaup fyrir að aka heim eftir las festas. Aftur pataði hann út höndunum. — Auk þess ég ekki vita, hvar er þetta hótel Monte Paraiso. Lísa og Mikki fullvissuðu hann um, að þau mundu áreiðanlega finna stað- inn. — Það er alkunnugt ferðamanna- hótel í nágrenni Novo Friburgo. Það getur ekki staðið lengra en svo sem einn kílómetra frá bænum. — E possivel, — það getur vel ver- ið, samsinnti hann. — En samt sem áður, þér borga eða ekki? — Nei, svaraði Lísa í styttingi. — Þetta er alltof mikið, og það vitið þér. Hún leitaði í flýti að orðum í portúgalskri samtalsbók, sem gjald- kerinn á Suðurstjörnunni hafði gefið henni, og hélt síðan áfram: — Við skulum greiða yður tvö þúsund cruseiros. Eftir talsvert þjark gekk hann ófús að því að láta sér nægja þrjú þús- und cruseiros, sem var þó allmiklu lægri upphæð en hann hafði fyrst farið fram á. Þetta var því sem næst það, sem þau áttu eftir af handbæru fé, er þau höfðu greitt reikning gisti- hússins. En þau treystu því að geta náð láni, eftir að þau væru komin til Monte Paraiso. Baðströndin við Copacabana var þakin fólki, sem var að fá sér morg- unbað, þegar bifreiðin ók af stað frá hótelinu. Þau fylgdust með þvi af aðdáun, hvernig bílstjóranum tókst að vinda sig milli annarra ökutækja í ótal bugðum. Þarna voru bandarískir straumlínubílar, gamaldags þjarkar, stærðar vöruvagnar, bifhjól, jeppar og almenningsvagnar af öllum stærð- um og gerðum. Og allir óku eins hratt og þeir gátu án þess að hirða um einföldustu umferðarreglur. Allir höfðu eitt og hið sama fyrir augum, sem sé að komast til ákvörðunarstaðar á sem allra stytztum tíma. — Er engin umferðarlögregla hér? spurði Kitty mæðulega. Og öll drógu þau andann léttara, er þeirra bílstjóri beygði loks inn í fáfarnari götu og nam staðar í vagnaröð þeirri, sem þar beið þess að komast út í ferju þá, er flytja skyldi alla lestina yfir til útborgarinnar Niteroy, hinum megin við fióann. Úr ferjunni sá vel yfir smaeyjarnar smaragðgrænu á sundinu og fiski- báta með rauðum seglum, er þau höfðu eygt í svip af þilfari Suður- stjörnunnar. Yfir höfði þeirra svifu siífurgljáandi ílugvélar, sem ýmist settust eða létu í loft af hinum fjöl- farna flugvelli. — Sjáið þið, hrópaði Marín allt i einu. — Þarna fer Suðurstjarnan. Og er þau litu þangað, sem ■ hún benti, sást, hvar mjallhvítur skipsskrokkur þokaðist hægt og hátíðlega út úr höfninni. — Þarna hrekkur síðasti tengiliður okkar við England, tautaði Lísa, og þegar hún leit til Mikka, gat hún sér þess til, hvað hann var að hugsa. Hún smeygði hendinni undir arm- legg hans og mælti glaðlega: — Taktu Framhald á bls. 40. Verst þótti mér, að ég valdi ranga stúlku, sagði mað- urinn hlæjandi. — Ef ég hefði tekið eftir þvi í tíma, að þessi laglega rauðhærða stúlka var systir hennar,

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.