Vikan - 27.07.1961, Blaðsíða 35
mmí
wmKmmm
ÍT.’V. C U*^ ÍF
heilu consertana.
Bygging kastalans byrjaði árið
1924, og þannig komst Scotty aftur
á fremstu siður allra blaða eftir
langa þögn, þegar flestir voru farn-
ir að halda hann dauðan.
Hugmyndin um kastalann varð til
einn daginn, þegar Scotty og John-
son voru að hvíla sig í eyðimerkur-
hitanum. Scotty var með dagdrauma
og óskaði sér, að liann ætti kastala,
eins og hann hafði séð meðfram
bölckum Rínar, þegar hann fór um
Evrópu í flokki Buffalo Bill sýning-
anna. Johnson greip hugmyndina
strax og samþykkti hana. Staðsetn-
ing kastalans var auðvitað samþykkt
tafarlaust, i Vínberjaskarði, þar
sem Johnson hafði dvalizt i kofa
Scottys og endurheimt heilsu sina.
Vínberjaskarðslindirnar áttu að geta
knúið raflana og fyllt sundlaugina,
sem er 185 feta löng.
Þessi ótrúlegi kastali og á ótrú-
legasta stað í heimi ber keim af
máriskum, spænskum, ítölskum og
kaliforniskum stíl. Handverksmenn
voru fengnir frá Austurríki og Spáni
til að koma fyrir hinum liandskornu
trébitum. Tígulsteinninn var flutt-
ur inn frá Miðjarðarhafslöndum, og
teppin voru ofin á Majorca-ey, sér-
staklega gerð fyrir kastalann. Öll
gluggatjöld eru handunnin úr sér-
lega völdum kindaskinnum. Hundr-
uð skinna þurfti til að ná fyrir
glugga lcastalans, og voru þau að
öllu leyti unnin af Tndíánum í
Dauðadal. Mikið af innanstokks-
munum kom frá höllum á Spáni og
Marokkó. í hljómlistarsalnum er hið
geysistóra Welte Mignon Organ, sem
kostaði 160.000 dollara, hið glæsi-
legasta sinnar tegundar í öllum
Vesturríkjunum. Á veggjum kastal-
ans hanga hinar dýrmætustu mynd-
ir i Bandaríkjunum, og Westminst-
er-klukkurnar geysistóru, 25 að tölu,
sem hanga í turninum, má lieyra í
margra mílna fjarlægð.
PJÖLSKYLDA SCOTTYS:
Um aldamót hitti Scotty Josep-
hine Millus á stefnumóti í New
York. Hann var þá knapi í Buffalo
Bill sýningunum, en Josephine var
þá litil, kná stelpa með glaðlegt
bros og full af þrá eftir einhverj-
um ævintýrum.
Það stóð ekki á ævintýrunum. Niu
dögum eftir, að þau voru gift, árið
1900, tók Scotty brúði sína í gull-
leitarferð upp í auðnina í Panamint-
fjöllum og Dauðadal. Þetta voru
erfiðir tímar fyrir liina 23 ára
gömlu stúlku, en þau fóru um 200
mílna leið á vagni, sem dreginn
var af ösnum í steikjandi hita.
„Við ferðuðumst á nóttinni og
sváfum á daginn,“ sagði Josephine.
„Hitinn var 40—50 stig og enginn
skuggi neins staðar.“
„Ég fór fimm af þessum eyði-
merkurferðum,“ sagði hún seinna,
„og sá það fljótt, að ekki var til
neins fyrir mig að reyna að taka þátt
i þessum ferðalögum. Ég beið í
vagninum, meðan hann fór eitthvað
og vann, þar sem ég sá ekki til.
Ég heyrði sprengingar, og svo kom
hann loks til vagnsins, en sagði
ekki neitt. Ef hann hefði viljað láta
mig vita eitthvað, hefði hann sagt
mér það.“
Frú Scott varð þreytt á eyðimörk-
inni og öllu erfiðinu. sem henni
fylgdi og fluttist til Langasands i
Kaliforníu til að búa með syni
þeirra, Walter Perry Scott yngri,
sem seinna varð undirforingi 1 sjó-
lier Bandaríkjanna.
MARS TRADING C0MPANY
Klapparstfg 20 — Sími 17373.
Frú Scott og maður hennar voru
gift í 50 ár. Þrátt fyrir það voru
þau aldrei saman langan tíma í einu.
„Hjónaskilnaður varð aldrei, og við
rifumst aldrei,“ sagði hún, eftir að
Scotty dó. „Ég gat með engu móti
vanizt eyðimerkurlífinu. Ég gat ekki
verið með honum, og Scotty þráði
Dauðadal og auðnina framar öllu
öðru. Þannig var það með okkur.
— Ég elskaði hann, ég elskaði hann
alltaf,“ sagði luin. „ÖIl þessi síð-
ustu ár vonaði ég, að sá dagur
mundi koma, að hann keypti naut-
gripi og sveitasetur, eins og hann
talaði alltaf um. Ég hélt það mundi
færa okkur saman aftur, en hann
gat ekki slitið sig frá eyðimörkinni,
og þannig varð það þá að vera.“ -Ar
Hús og húsbúnaSur.
Framhald af bls. 21.
við óunninni lóð að morgni, en að
kvöldi er húsið fullbúið með öllum
leiðslum, búið að ganga frá lóð og
planta út trjám og blómum.
Teikningin, sem fylgir þessum
þætti, sýnir eitt slíkt hús, sem raun-
ar er ekki bandarískt lieldur þýzkt.
Byggingarlist stendur með miklum
blóma í Vestur-Þýzkalandi og þýzkir
eru meðal þeirra, sem sjá, að fjölda-
framleiðsla á húsum gæti orðið til
þess að lækka byggingarkostnaðinn
verulega.
Útlendur sérfræðingur i bygging-
armálum komst að þeirri niðurstöðu,
að byggingarkostnaður á íslandi
væri allt of hár, og það vissum við
raunar fyrir. En hvað er gert til
þess að lækka hann? Elcki neitt
raunhæft að minnsta kosti. Mundi
ekki athugandi fyrir dugandi og
fjáða menn að gera tilraunir með
stöðlun og jafnvel fjöldaframleiðslu
á húseiningum. Það ætti að vera ár-
angursríkt hér eins og annars
staðar, að minnsta kosti ef hægt er
að afstýra því með guðs hjálp, að
rilcið komi þar nærri. GS.
Hrátt grænmeti.
Framhald af bls. 17.
ing að bera salatið á smádiskum
scm eru þá látnir hjá hverjum ein-
um, um lcið og kjötrétturinn er bor-
inn fram.
SALAT SEM SJÁLFSTÆÐUR
RÉTTUR.
2 stór salathöfuð, 2 harðsoðin
egg, 2 tómatar (olivur og pipar-
hringir ef það er fyrir liendi); 4
þunnar sneiðar, reykt svinakjöt
(skinka), 4 þykkar sneiðar ost-
ur.
Salatblöðin eru þvegin og skorin
í grófar lengjur, eggin og tómatarnir
í báta og kjötið i ferhyrnda bita
ásamt ostinum. Blandað varlega
saman ásamt 5 msk. af tómatkrafti,
sinnepi, salti og sítrónusafa. Borið
fram nýtilbúið ásamt ristuðu bráuði.
Heildsölubirgðir
NÝ
OREOL
30%
MEIRA
LJÓS
Nýja Oreol Ijósaperan er fyllt meö Krypton og
gefur því um 30% meira Ijósmagn út en eldrx
geröir af Ijósaperum. Þrátt fyrir hiö stóraukna
Ijósmagn nota hinar nýju Oreol Krypton sama
straum og eldri geröir. Oreol Krypton eru einnig
meö nýju lagi og taka minna pláss, þær komast
því í flestar geröir af lömpum og skermum.
VIKAN 35