Vikan


Vikan - 27.07.1961, Page 29

Vikan - 27.07.1961, Page 29
HrútsmerkiS (21. marz—20. apr.): Þú virðist allt of svartsýnn þessa dagana, og það mun koma í ljós innan tíðar, að svarsýni þin hefur verið al- gerlega ástæðulaus. Að vísu mun allt ekki ganga sem bezt á fimmtudaginn, en það mótlæti verður einungis til þess að kenna þér mikilvæga lexíu. Nautsmerkið (21. apr.—21. maí): Þú munt eiga mjög annrikt í vikunni, og hætt er við að þú ráðir alls ekki fram úr því, sem ætlazt er til af þér. Leggðu samt ekki árar í bát, því að þín biða rólegar vikur. Þér græðist fé skyndilega og óvænt. Þú sagðir eitthvað í vikunni sem leið, meira í gamni en alvöru, en í þessarri viku muntu komast að því að þetta er háalvarlegt mál. Heillatala 5. TvíburamerkiÖ (22. mai—21. júní): Þessi vika verður mjög ánægjuleg, einkum þó heima við, þvi að eitthvert smáatvik á vinnustað gæti orðið til þess að valda þér talsverðum áhyggjum. Þú færð að glima við nýstárlegt verkefni I vikunni, og verður það til þess að áhugi þinn á einhverju svipuðu vaknar. Krabbamerkið (22. júní—23. júlí): Þú munt eiga óvenju annríkt í vikunni, svo að þú getur naum- ast gert þér neinar vonir um frístundir. Ef þú verður að velja milli skyldustarfa og áhugamála, skaltu umfram allt láta skyldustörfin verða ofan á. Það verður einhver breyting á lífi þínu í vikunni, og verður líklega einhver ættingi þinn til þess að þessi breyt- ing nær fram að ganga. Heillalitur rautt. Ljónsmerkið (24. júlí—23. ág.): Áberandi með- vindur í vikunni. Gömul ósk þín rætist til ein- hverra muna, en allt virðist benda til þess að hún rætist ekki að fullu fyrr en svo sem að ári liðnu. Þetta verður mjög' ánægjuleg vika fyrir unga elskendur, og ef eitthvað hefur valdið þeim kvíða til þessa, mun sá kviði hverfa eins og dögg fyrir sólu. Meyjarmerkiö (24. ág,—23. sept.): Það gerist fremur lítið markvert í þessari viku, en allt bend- ir þó til þess að hún verði siður en svo leiðinleg, þér gefst nægur tími til hvíldar, og þú þarfnast einmitt hvildar eftir amstur síðustu viku. Þú ættir að nota frístundir þínar til þess að svara nokkrum bréfum, Vogarmerkiö (24. sept.—23 okt.): Vikan verður yfirleitt mjög ánægjuleg. Þó gæti gagnrýni orðið til þess að koma þér í illt skap — því miður er þó sannleikurinn sá, að þessi gagnrýni er fyllilega réttmæt, og ef þú ert gæddur nokkrum mann- dómi, ættir þú að sýna þeim, sem þig gagnrýna, að þú getur gert betur. Þú ferð í skemmtilegt samkvæmi um helgina. _____DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Það virðist flest leika við þér í þessari viku, og gengur það svo langt, að þér virðist þú fær í flestan sjó og leggur þvi út í eitthvað, sem þér er algerlega of- viða Endalok þess máls verða þó allt annað en leiðinleg. Einhver fjölskyldumeðlimur kemur þér þægilega á óvart um eða eftir helgina. BogmaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Þú munt þurfa að glíma við erfitt verkefni i vikunni, og hætt er við að það verði ýmis ljón á veginum. En ef þú gefst ekki upp, munu endalokin verða góð. Þú verður að fara varlega með peningana — sann- leikurinn er sá, að Þú heíur sóað þeim í einskisnýta hluti undanfarið. Geitarmerkiö (22. des.—20. jan ): Þessi vika er vika húsmæðranna — allt virðist leika i lyndi fyrir þeim. Þó þurfa þeir, sem ekki sinna hús- móðurstörfum ekki að örvænta, þvi að vikan virð- ist ætla að verða mjög þægileg fyrir flestalla. Nú virðist rétti tíminn til þess að glíma við það verkefni, sem varð þér ofviða fyrir skemmstu. Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Allt sem þú gerir í vikunni, virðist fremur tilviljunarkennt. Þú verður að setja þér einhverjar framtiðaráætl- anir, í stað þess að láta hverjum degi nægja sína Þjáningu. Þú virðist hættur að taka nokkrum framförum í bili. Gamall kunningi þinn kemur skyndilega talsvert við sögu, en þú munt komast að því, að þið eigið nú lítið sameiginlegt. Heillalitur grænleitt. Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz): Vikan verður I flesta staði hin ánægjulegasta, þó gæti samt smáatvik orðið til Þess að varpa skugga á hana, ef þú ert of tilfinningasamur. Þú hefur vanrækt eitt slcyldustarí pitt undanfarið, og ef þú lætur nú ekki hendur standa fram úr ermum, mun fara illa. Ann- ars er mikil rómantik yfir vikunni.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.