Vikan


Vikan - 27.07.1961, Síða 16

Vikan - 27.07.1961, Síða 16
HNSPPSR hnappar eru í tízku Glitrandi hnappar eru hæstmóSins sem stendur. Glæsilegir perluþaktir hnappar í öllum regnbogans litum eiga að fullkomna hinar einföidu linur á kjólum og blússum í sumar. Og við skyrtublússuna eru saumaðir út fal^egir „mansjettuhnappar". <1 1. mynd. Klippið út tvær hringmyndaðar pappaskífur, í sömu stærð og hnappurinn á að vera, við mundum stinga upp á 6% cm í þvermál. Klippið svo hringlaga bita innan úr báðum skífunum (u. þ. b. 2 cm í þvermál). 2. mynd. Þræðið ullargarnið, eða garnið sem á að nota í stoppunál og saumið hring- inn í kringum pappaskifurnar sem lagðar eru saman. Saumið gjarnan með tvöföldu garni, þá er þetta fljótlegra. Og saumið þangað til ekki er rúrn fyrir meira garn í miðjunni. Því þéttar og þykkar sem þið saumið, þvi fallegri verður hnappurinn. 3. mynd. Klippið garnið i sundur með- fram ytri kanti skífanna. A milli þeirra bindið þið svo sterkt band, vel og vandlega, og síðan má fjarlægja skífurnar. Klippið upp í Þær hér og þar, þá er auðveldara að koma þeim i burtu. Síðast klippið þið hnappinn til ef að einhverjir þræðir hafa orðið lengri en hinir. Hér eru tveir fallegir hnappar, sem einnig er hægt áð nota sem skraut- nálar, en Það fer eftir stærð og gerð. Ef að þeir eru búnir til á pappaskífu, er auðvitað hægt að fá það lag sem bezt hentar, t. d. stjörnuformað, fer- kantað o. s. frv. Dúskhnappar, stórir og loðnir, eiga að vera á vordragtinni. Og þeim verð- ur ekki ofaukið, þar sem dragtin er eins einföld í sniðum og mögulegt er og algjörlega kragalaus. Þar sem það er ekki erfiðara en þetta að vera samkvæmt nýjustu tízku, sprettið Þið auðvitað gömlu hnöppunum strax af og byrjið að búa til dúskhnappa. Á teikningunum hér að neðan sjáið þið hvernig það er gert. Þessa skemmtilegu hnappa er einn- ig hægt að búa til sjálfur. Kringlótt og stinn pappaskífa er þakin með vatti eða skúmgúmmíi og perluút- saumaði efnisbúturinn festur á- Ef þið ætlið að sauma perlur á hnappa sem keyptir eru í búð verða þeir að vera úr grófu og laust ofnu efni, þá er auðveldara að sauma í þá. Notið bæði stórar og litlar perlur I litum sem passa saman. Eigi að sauma hnappinn út með garni, eins og einn- ig sést hér á myndinni, saumið þið fyrst út, og sendið hnappinn svo á eftir til að láta festa efnið yfir. ÚR EINU í ANNAÐ i Áður en keyptar eru snyrtivörur, verður að gera sér ljóst, hvað á að draga fram og hvað á að fela til að skapa persónuleika sinn. Nauðsynlegt er að þekkja húðtegnnd sina. Venjuleg húð er slétt án þess að vera feit. Þurr húð flagnar oft við nef og höku. Og venjulega gljáir nefið, ef húðin er feit. Ráðfærið ykkur alltaf við afgreiðslustúlkuna, þegar þið kaupið snyrtivörur. Þær eiga að hafa þekkingu á þessum hlutum. Og munið, að allra fínasta krem, sem þið getið fengið, getur borið slæman árangur, ef það hentar ekki húð ykkar. Talcið tillit til andlitslags ykkar, þegar þið velj- ið kinnalit. Réttur litur af honum getur gert kraftaverk fyrir of breitt eða of langt andlit. Framhald á hls. 47. 1 6 VIKAN

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.