Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 27.07.1961, Qupperneq 17

Vikan - 27.07.1961, Qupperneq 17
Ht'áir grAenmetis réttir Belti 4—5 gulrætur, 3—4 msk. salat- olía, 1 msk. sitrónusafi, 1—2 tesk. púöursykur, 1—2 dl þeytt- ur rjómi, rifið grænkál, biað- salat. Gulræturnar eru þvegnar, skafnar og rifnar á grófu rifjárni. Olían, sítrónusafinn og sykurinn (í stað- inn fyrir hann er gott að hafa hun- ang) þeytt vel saman. Blandað sam- an við gulræturnar og látið híða 1 hrjngmóti (sem áður hefur verið skolað) dálitla stund. Bezt er að nota glerinót. Salatblöðum raðað í iiring á fat. Gulrótahringnum er hvolft þar á og þeyttur rjómi ásamt fínrifnu græn- káli látinn í miðju hringsins. GULRÓTAHRINGUR. Hér kemur óvenju fallegt og skemmtilegt helti. Einnig er hér sýnd hugmynd af eyrnalokkum samstæðum við beltið. Efnið í bcttið er rúskinn og 2" hnappar. Sníðið beltið eftir meðfylgjandi málum skýringarmyndarinnar + 2 sm, sem brotnir eru inn af. Sjálfsagt er að stækka eða minnka beltið eftir sínu mittis- máli. Aukið bellið saman, ef með þarf, eins og sést á myndinni. Sé skinnið mjög þunnt er ágætt að leggja „vlieseline" á milli skinns og fóðurs. Brjótið 2 sm inn af beltinu og stingið siðan tæpt i brún, eina eða tvær raðir eftir smekk, með tvinna, sem fellur vel við lit beltisins. Sjálf- sagt er að hafa sporin nokkuð stór á vélinni. Fóðrið síðan beltið með fóður- renningi. Klippið linappagötin eftir þver- máli hnappsins + 2 mm. Saumið hnappagatakappmellu i hnappagat- ið, klippifc gjarnan „velieselinið“ undan brúnunum, svo þær verði ekki of þykkar. Festið hnöppunum á beltið á mótstæðan stað við hnappagötin. Á neðri myndinni sést hvernig sama belti er handstungið með þræðisporum allt í kring, einnig hnapparnir á beltinu og þeir, sem hafðir eru fyrir eyrnalokka. Hnapparnir eru yfirdekktir þannig að 2 hringlaga skinnbútar heldur stærri en hnappurinn, eru klipptir út og saumaðir saman með þræði- spori hálfan hringinn, síðan linappn- um smeygt inn í, gert gat fyrir fótinn á neðra borðið og haldið áfram að sauma allan hringinn. Þessi sama aðferð er notuð við yfirdekkingu hnappanna, sem notaðir eru fyrir eyrnalokka og síðan eyrnalokka- klemmunum smeygt i hnappsfótinn. EPLASALAT. Saman við þeyttan rjóma er blandað eplum, sítrónusafa og sykri. Bezt er að rífa eplin á grófu rif- járni beint út í rjómann, en hella sitrónusafanum og sykrinum yfir eplin áður en öllu er blandað sam- an. Það er bæði fallegt, hollt og ljúffengt að bera salöt fram á salat- blöðum, sem eru þvegin og látin á hreint þurrt stykki. Siðan raðað á fat. Ein til tvær matskeiðar af epla- salatinu látnar á hvert salatblað og skreytt með eplabát eða kirsuberi. í staðinn fyrir epli er ágætt að nota aðrar ávaxta eða grænmetistegundir og rjómanum er sleppt ef vill. HRÁTT SALAT m/steik. 200 gr hvítkál, 200 gr gulrætur, 50 gr grænkál, 2 msk. matarolía, 2 msk. edik, *4 tesk. sykur, V-i tesk. salt (örlítill pipar). Yztu blöðin eru tckin af hvítkál- inu og það skorið i fínar lengjur. Gulræturnar eru hreinsaðar og rifn- ar og grænkálið rifið eða fínsaxað. Blandað saman i skál. Matarolía, ed- ik og krydd þeytt saman og hellt yfir. Smásaxaðar hreðkur eru góðar í þetta salat. Salatblöðum raðað út við barma skálarinnar og salatinu hellt þar yfir. Einnig er það tilbreyt- ing að bera salatið á smádiskum, Framhald á bls. 35. Hflntluir Hanzkar, sem góðir eru til hlífðar höndunum við garðvinnu. Takið efnisbút, leggið hann tvöfaldan réttu mót réttiú Leggið höndina ofan á bútinn og teiknið í kring, atli. að hafa litla fingur við tvöföldu brúnina. Klippið hanzkann út eftir teikningunni, með 1 cm saumfari. Saumið hanzkann saman frá röngunni, klippið upp í saumana í greipinni og varpið saumförin. Snúið lianzkanum við og bryddið hann að ofan með skábandi eða renningi af efninu. Ágætt er að búa til renning úr efninu og sauma fastan við lófann, sauma síðan teygju og tölu við renningsendann og hneppslu á hinn teygjuendann. Hneppið síðan teygjunni fastri ef hanzkinn vill detta af. Gefnar eru upp hugmyndir um skreytingu hanzk- anna, hér að ofan. vikan 17

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.