Vikan - 27.07.1961, Síða 28
I>etta er sagan, sem Kalli fugla-
liræða, sagði Maju og Pésa einn sói-
ríkan sumardag, þegar þau höfðu
komið að heimsækja hann út á ak-
urinn.
_ — Eins og ]>ið vitið, sagði Kalli
** fuglahræða, vorkenna ailir mér
mjög mikið. Ég verð að standa hér
dag og nótt, jafnt i regni og sól, ég
KALLIFUGLAHRÆÐA
stend hérna einsamall og hef aðeins
nokkrar smájurtir í kringum mig.
— Þið vitið áreiðanlega, hvers
vegna ég stend hérna, hélt hann
áfram. Ég er hér til að líta «eftir
gróðrinum, svo að krákur og aðrir
fuglar éti hann ekki. Og krákunum
og hinum fuglunum geðjast alls ekki
að mér. Þeir sitja á grindverkinu
og stara á mig, en þora ekki að
koma nær. Og það gera heldur eng-
ir aðrir.
— Hvers vegna ekki? spurði Pési.
— Já, það þætti mér gaman að
vita, sagði Kalli fuglahræða. — Þið
haldið kannski að ég eigi marga
vini, þó að krákunum og hinum
fuglunum geðjist ekki að mér. Ein-
staka fuglar koma og setjast á hatt-
ínn minn eða pípuna til að hvíla
sig, en ég reyki aldrei pipuna. Öðru
hverju eiga einnig nokkrir vegfar-
endur leið fram hjá og heilsa upp
á mig, eins og þið núna.
— En það voru ekki dagarnir, sem
ég hafði mestar áhyggjur af, það
voru langar og einmanalegar næt-
urnar. Stundum hefði ég gert hvað
sem var til að heyra einhverja vin-
gjarnlega rödd tala til mín utan úr
myrkrinu. En hvað átti ég að gera?
Ég stóð hér einmana og gat ekkert
aðhafzt.
— En einn daginn kom nokkuð
einkennilegt fyrir, sagði Kalli fugla-
hræða og hló íbygginn.
— Dag nokkurn fyrir fácinum
vikum komu tveir spörvar fljúgandi
yfir akurihn. Þeir settust á aðra
öxlina á mér, og ég heyrði, að ann-
ar sagði við liinn: —■ Já, vina mín,
þetta er rétti staðurinn.
— Og svo sá ég að þeir liöfðu
mikið að gera og flugu fram og
aftur yfir höfuðið á mér. Já, satt
að segja byrjuðu þeir að byggja
eitthvað ofan á gamla hattinn minn.
Ég gat ekki séð, hvað það var, því
eins og þið vitið getur enginn séð
hattinn á sjálfum sér.
— Jú, ef maður lítur i spegil,
sagði Maja.
— En það eru engir speglar hérna
á akrinum, sagði Kalli fuglahræða
og andvarpaði. Og svo dag nokkurn
gerðist nokkuð dásamlegt. Þar sem
ég stóð þarna og fannst ég vera
mest einmana fuglahræðan í öllum
lieiminum heyrði ég í fjórum veik-
byggðum og tístandi röddum: Kalli,
Kalli, Kalli.
— Hvaðan kom tíslið, spurðu
Pési og Maja bæði í einu.
— Það kom frá fjórum litlum
spörvaungum,, sagði Kalli fugla-
hræða. Og getið þið imyndað ykkur
hvar þeir bjuggu?
Pési og Maja ætluðu að fara að
svara, en þögnuðu skyndilega, þeg-
ar þau heyrðu tístandi hljóð frá hatti
Kalla fuglahræðu.
Og á næsta augnabliki stnngu fjór-
ir litlir fuglsungar höfðunum út um
fjórar holur á hattinum hans Kalla.
— Góða kvöldið, vinir mínir,
brópaði Kalli fuglahræða. Já, þarna
sjáið þið, hélt hann áfram og sneri
sér að Pésa og Maju. Þeir búa í hatt-
inum mínum, er það ckki dásamlegt,
nú þarf ég aldrei að vera einmana
framar. ★
Þetta litla seglskip á vatn-
inu á að sigla í kringum eyj-
una og aftur til hafnarinnar
án þess að stanza eða stranda,
en það er góður meðvindur,
svo þið skuluð reyna.
Þessi litli hvolpur hefur komið auga á eitthvað úti á
túninu. Þið getið hjálpað honum við að finna það, með
því að draga linu á milli punktanna í réttri röð.
KARTÖFLUSTIMPILL.
Þið getið búið til skemmtilegan stimpil úr stórri, stinnri
kartöflu. Skerið fyrst af henni stykki, þannig að annar endinn
Ilve giögg eruð þiö?
Hér eru tvær eins myndir, að því er virðist.
En neðri myndin er frábrugðin þeirri efri í
sex atriðum. Reynið nú að finna þessi atriði,
og verið ekki lengi. — Lausnin er á 'i£ 'siq
verði'sléttur. Síðan skerið þið á hann mynztur
t. d. stjörnu, og fjarlægið það, sem er i kringum
liana, þannig að mynztrið sé uppliækkað. Þá
og verið ekki lengi. — Lausnin er á bls. 27.
kaupið þið yenjulega stimpilpúða í hvaða lit,
sem þið viljið og stimplið svo eftir vild á bæk-
ur, blöð, bréf, einkennisbúninga og annað þess
háttar, t. d. i sambandi við félagsstarfsemi.
2B VIKAN