Vikan - 07.12.1961, Blaðsíða 3
HVAÐ FINNST LESENDUM? ...
Kæri Póstur.
Ég er nýbyrjuð í Tónlistaskólan-
um og er 14 ára. Mig hefur alltaf
langað svo til að læra á fiðlu,
en mamma og pabbi vilja ekki heyra
það nefnt og skipuðu mér að læra
á pianó, og það er ég að gera núna
og finnst það ágætt, en mig langar
alltaf að læra á fiðluna. Finnst þér
þetta rétt hjá pabba og mömmu?
X 7.
Nei, mér finnst þetta alrangt og
hef alla samúð með þér. Þú ert
fyrir löngu orðin nógu gömul
til að taka ákvarðanir sem þessa
SJÁLF.
HVAÐ LIGGUR EIGIN-
LEGA Á? . . .
Pósturinn i Vikunni.
Hvernig í ósköpunum ætli sé hægt
að venja islenzka kvikmyndahús-
gesti af þeim furðulega ávana að
rísa alltaf úr sætum sínum, áður en
myndinni lýkur — þeir hafa þrauk-
að við að sitja í sætum sínum næst-
um út alla myndina, en svo, þegar
eitthvað bendir til þess að henni
sé að ljúka, virðist flestum liggja svo
á, að ætla mætti, að allir væru allt
í einu að missa af strætó, eða eitt-
hvað svoleiðis. Hvernig er hægt að
venja fólk af þessum fjanda?
Magnús.
Það hefur áður verið minnzt á
þetta í Póstinum, og er sannar-
lega full ástæða til — þótt ekki
kunni ég ráð við þessum „fjanda“
— nema menn láti þetta bréf þitt
sér að kenningu verða.
HJÚKRUN ...
Kæra Vika.
Ég er 14 ára og langar að læra
hjúkrun. Þarf ég að halda áfram í
gagnfræðaskóla (verða gagnfræð-
ingur) til að geta byrjað að læra
hjúkrun, ef svo er, er þá sama, hvort
ég fer í bóknám eða verknám? Hvað
þarf ég að fá háa einkunn, til að
geta byrjað að læra hjúkrun? Hvað
er hjúkrunarnámið langt?
Með fyrirfram þökk.
Ein, sem langar að verða hjúkr-
unarkona.
Yfirleitt er þess krafizt að hjúkr-
unarnemar hafi gagnfræðapróf,
þótt ýmsar undanþágur séu frá
því, og kveður skólastjóri hjúkr-
unarkvennaskólans nánar á um
það, og væri þér réttast að snúa
þér þangað. Námið tekur þrjú ár,
ef vel er að verið.
ÚTVARPIÐ ENN ...
Góða Vikal
Ég ætti nú liklega að skrifa út-
varpsráði eða Skipaútgerð ríkisins.
En ég vil heldur biðja Vikuna um
að birta bréfið:
Ég óska þess eindregið, að skipa-
fréttir verði lesnar i hádegisfrétt-
um eða kvöldfréttum, vegna þess að
þá hefur fólk frekar tækifæri til
þess að hlusta á útvarp, sérstaklega
finnst mér, að fréttir um farþega-
skip ættu að koma á áðurnefndum
tímum, þvi fólk úti á landi fær ekki
blöðin á hverjum morgni með skipa-
fréttunum.
... Ég þakka allt fróðlegt og
skemmtilegt, sem ég hef lesið í Vik-
unni. Ég vildi líka hafa tækifæri til
að þakka útvarpinu allt gott og
þakkarvert. En mér finnst hlust-
endum misboðið, þegar sömu til-
kynningar og fréttir eru lesnar oft-
ar en tvisvar á hálftimafresti — og
lái mér hver, sem vill.
Skipaafgreiðslumannsfrú úti á
landi.
OG ENN:
Ég hef stundum lesið um það í
Póstinum og reyndar annarsstaðar,
að fólk sé ekki ánægt með ríkisút-
varpið, sem reyndar er ekki nema
von ... Nú datt mér i hug að leggja
fram tillögu: Af hverju ekki að út-
varpa á t. d. tveimur bylgjum eða
hafa tvær útvarpsstöðvar, þannig að
hægt væri að hafa léttari tónlist,
leikrit og kannski auglýsingar á
anarri stöðinni, og svo kannski al-
varlegri „prógrömmin“ á hinni ...
(Þetta, eða eitthvað þessu líkt þarf
að komast á, svo að sægur af fólki
þurfi ekki að skipta yfir á ,,kan-
ann“ til þess að fá smáhvíld og til-
breytingu frá rikisútvarpinu.
Beztu kveðjur. S. J.
Tillagan er góð, en vafasamt
finnst mér hjá þér að eigna sjálf-
um þér hana. Þetta er gömul hug-
mynd, og eins og þú segir, verð-
ur beinlínis að fara að láta til
skarar skríða í þessum málum.
OG ENN ENN ...
... Alltaf eru þeir samir við sig,
þulirnir hjá okkar „vinsæla" út-
varpi. Hvað heldurðu nú að einn
hafi misst út úr sér fyrir skömmu,
í einum ágætum þætti, þar sem hann
kynnti aðallega þýzka listamenn?
Ekki nema það, að þótt sumum
þættu danslagasyrpurnar leiðinleg-
ar, þá væru þær mjög vinsælar hjá
þulunum. Af hverju? Af þvi að þá
þurfa þeir sjaldnar að opna munn-
inn, blessuð tetrin ... Ef það eru
þulirnir, sem sjá um danslagadag-
skrána, skil ég hvar hundurinn
liggur grafinn ...
Blessaður, karlinn,
Gaflari.
Eigum við svo ekki að hvíla
Póstinn á útvarpssnakki í nokkr-
ar vikur? Það held ég.
EYFIRÐINGUR LÆTUR ENN
FRÁ SÉR HEYRA ...
Kæra Yika — og ritstjóri.
Það má vart minna vera en ég
sendi þér svolitla kvittun með þakk-
læti fyrir birtingu bréfs míns frá
13. sept. s.l. og þar með svars þíns
við því. Það skal fúslega viðurkennt,
að óþarflega fast var að orðum
kveðið og af fullmikilli hvatvisi
framsett, því ég vissi raunar, að
þetta átti að vera „grin“ — en frá
grundvallarsjónarmiðum gat ég ei
gengið. Ég hafði engu að síður hróð-
ur Vikunnar í huga, heldur en Skag-
firðinga, því ég veit, að þetta verð-
ur engin skrautfjöður á liatti henn-
ar, þó að „kunnur liúmoristi" hafi
sett það saman, enda enga fyndni
þar að finna, að minum dómi. Öllu
Úigefandi: VIKAN H.F.
Ritsljóri:
Gíalí SigurSsson (ibm.)
A'uglýsingaatjóri:
Jóhannes J.örundasoh.
Framkvæmdaatjóri:
Hilmar A. KrÍBtjénsson.
/ nassta blaði
sem er jólablað og verður 60 síður, er m. a.
þetta efni:
* Feigðarvaka á heiðarhjarni. Loftur Guðmundsson skrifar um
fræga hrakningaferð á Mosfellsheiði fyrir rúmum 100 árum,
þegar sex vermenn urðu úti en átta komust lífs af.
* Jól í Skálholti um 1200 eftir Sr. Sigurð Einarsson. Sr. Sigurð-
ur frumsamdi þessa lýsingu fyrir Vikuna og tekur til með-
ferðar jólin í tíð Páls biskups Jónssonar, þá er vegur Skál-
holtsstóls var einna glæsilegastur.
* í fullri alvöru eftir Drómund: Þegar klukkum er hringt.
* Jólin eru týnd. Jólasaga eftir Guðnýju Sigurðardóttur.
* Heimur Ramsesar II. Merkileg og skemmtileg grein um einn
athafnamesta faraó Forn-Egypta og verk hans.
* Jólagetraun Vikunnar. Bókstafaþraut í því fólgin, að búa til
sem lengst orð úr ákveðnum stafafjölda. Fimm verðlaun í
boði.
* Gengið í búðir. Þrjár síður með uppástungum um jólagjafir
ásamt upplýsingum um verð og hvar hlutirnir fást.
* Út í bláinn á aðfangadagskvöld. Jólasaga.
* Lífshlaup Eysteins Jóhannssonar, 1. hluti:
Mjólkurpóstur fer út í heim. Vilhjálmur S. Vilhjálmsson skráði.
* Með fingurinn á gikknum. Myndir af ljósmyndurum dagblað-
anna.
* Gervifrjóvgun og guðstrú. Grein eftir Dr. Matthías Jónasson
um tilraunir vísindamanna til að kveikja líf í tilraunaglasi
og trúarleg viðhorf til slíks.
* Jólamatseðillinn. Bryndís Steinþórsdóttir, húsmæðrakennari
velur jólamatinn.
* Jólaspil fyrir börnin. Barnasaga og annað fast efni eins og
venjulega.
gamni fylgir nokkur alvara, segir
gamalt spakmæli, og mun svo rétt
vera. Og ekki er mér grunlaust, að
æðimargir Skagfirðingar hefðu
frekar kosið þetta óbirt, þótt þeir
að skiljanlegum ástæðum láti það
ekki í ljós opinberlega — og er ég
ekkert hissa. Það er nú svo, að það
er staðreynd, að okkur hættir nokk-
uð mikið til að taka um of tillit til
hins verra, sem sagt er um náung-
ann, svo að jafnvel fimm fjaðrir geta
orðið að heilli hænu í umferðinni
— og er það efni út af fyrir sig,
eins og Vil hjálmur okkar Þ. segir.
Um dómgreind mina vil ég af skilj-
anlegum ástæðum ekkert segja, en
af kunnugum líklega talinn „eins
og fólk er flest“. Þá vil ég i trún-
aði geta þess, að ég hefi einstaka
sinnum sett saman nokkrar stökur
í gamanstíl, mjög fátæklegar að vísu,
en tel mig þó geta tekið góðu gamni.
Jæja, Vika mín, þetta er víst orðið
nóg að sinni, og bið ég þig að virða
á betri veg, en einmitt af þvi að
mér er reglulega vel við þig, sendi
ég þér þessar umvandanir, án allrar
illkvittni.
Með árnaðaróskum fyrir fram-
tiðina.
Þinn Eyfirðingur.