Vikan - 07.12.1961, Blaðsíða 24
BÖNORÐ
TRÖLLA-
PABBA
Það var bjart vorkvöld og tröllapabbi og trölla-
mamma sátu á bekknum fyrir utan tröllahúsiö
og héldust í hendur. Aldrei þessu vant voru þau
alein. Ekki eitt einasta af þeirra fjórtán óþægu
tröllabörnum var í nálægð.
— Þetta er næstuin því eins og þegar við vorum
ung, sagði tröllamamma, ó, þú varst svo fallegur.
— Já, ég hef látið dálítið á sjá með árunum,
sagði tröllapabbi, en þú ert jafnfalleg og þú varst
þegar ég bað þín.
— Ó, já, sagði tröllamamma, manstu eftir því?
— Hvort ég geri, sagði tröllapabbi, það var
þegar ...
— Biðið þið, bíðið aðeins, hrópaði allt í einu
einhver. Það var eitt af tröllabörnunum, sem hafði
falið sig undir bekknum.
— Ég ætla rétt að kalla á hin, sagði trölla-
barnið, því við viljum lika heyra hvað það er,
sem tröllapabbi man. Svo flautaði strákur liátt og
hvellt.
— Nei, þetta gengur nú einum of langt, sagði
tröllapabbi, hlerarðu hjá þínum eigin foreldrum?
Getur maður ekki einu sinni talað saman án þess
að allur þessi skari af tröllabörnum, sem maður
á, þurfi að hlusta á.
— Æ, leyfðu þeim það, sagði tröllamamma, ann-
ars læra þau aldrei neitt, og þau eiga það svo
sannarlega skilið, því að þau hafa verið svo óþæg
í dag, alveg eins og regluleg tröllabörn eiga að
vera.
— Er hægt að treysta því, sagði tröllapabbi,
mér fannst nú eiginlega að Hringsnúningur sæti
svo penn og stilltur við hádegismatinn. Þannig
hluti kæri ég mig ekki um.
— Ég verð að viðurkenna, að það munaði
minnstu að hann kæmi vel fram, sagði trölla-
mamma, en til allrar hamingju fór hann út í eld-
hús og hellti öllum hrísgrjónagrautnum niður í
gúmmístígvélin þín og það var nú fallega illa gert,
var það ekki?
— Jú, það hjálpar nú svolitið upp á sakirnar,
sagði tröllapabbi. Ég er næstum því stoltur af
honum. Jæja, látum þá alla krakkana hlusta.
Allir tröllakrakkarnir fjórtán komu nú þjótandi,
Framhald á bls. 47.
Pétur og Lfsa standa í
garðinum og stara berg-
numin upp í loftið? Við
ætlum ekki að segja ykk-
ur hvað þau sjá, en það
er nokkuð sem mörg-
um drengjum og stúlkum
finnst gaman að hafa úti
í garði.
Ef þið dragið línu á milli
númeranna í réttri röð
komizt þið fljótlega að því,
hvað er i loftinu, á eftir lit-
ið þið svo myndina.
Þessi dúkkulísa er
hollenzk. Það getið þið
séð á tréklossunum
hennar. Litið fyrst
dúkkuna og fötin henn-
ar og klippið síðan var-
lega út. Bezt er að líma
dúkkulísuna á pappa.
Síðan teiknið þið meiri
föt á hana og skírið
hana.
B A R N
Ef þú vilt gera töfrabrögð, ætt-
irðu að læra þetta litla bragð. Það
virðist sem þú haldir tveimur eld-
spýtum í kross, sýnt á teikningunni,
og nú segir þú að þú ætlir að búa
til ferkant úr þessum sömu eldspýt-
um. Leyndardómurinn er sýndur á
teikningunni. Áður en þú byrjar
hefurðu brotið báðar eldspýturnar
í miðjunni og nú er allur vandinn
fólginn i því, að halda eldspýtun-
um eins og sýnt er til vinstri, þann-
ig að fólk haldi að þú sért með tvær
heilar eldspýtur.
1 jólafríinu getiC þið skemmt
ykkur viö aö klippa út skugga-
myndir af fjölskyldunni. Þiö þurf-
iö aöeins aö festa vélritunarblaö
á vegginn, kveikja ljósiö á bak viö
litlu systur, eða hver sem þaö nú
er sem á aö teikna, svo teikniö
þiö útlínurnar meö vel yddum
blýant. Ef teikningin á aö vera
sérstaklega fín, má fylla myndina
út meö svörtu tússi, áöur en þið
klippiö hana út og límið hana á
pappa.
24 VIKAN