Vikan - 07.12.1961, Blaðsíða 33
LIDO.
Framhald af bls. 27.
sagði það engin undur þar sem fólki
innan 21 árs aldurs væri meinaður
inngangur. Sagði hann, að margir
áfelldust skemmtistaðina fyrir það að
selja unglingum vin og einfaldasta
ráðið til þess að koma í veg fyrir
drykkju unglinga væri, að þeir fengju
ekki aðgang að þeim stöðum, þar
sem vín væri selt.
Húsakynnum hefur verið breytt
nokkuð i Lidó og virðist það hafa
verið til bóta. Settur hefur verið upp
lítill bar nærri anddyri salarins og
tvær litlar setustofur, sín hvorum
megin við hann. Þá hafa verið sett
upp blómaker á nokkrum stöðum
ásamt lýsingu. Konráð sagði, að ætl-
unin væri, að breytingar yrðu gerðar
á húsinu framan við dyr salarins,
en þar eru borð og þar er jafnan
setið um helgar þegar fjölmennast
er í Lidó.
Það er ástæða til Þess að geta sér-
staklega hljómsveitar Svavars Gests,
sem leikur í Lidó. Þetta er allstór
hljómsveit, eða sjö manna og þar af
tveir söngvarar, Ragnar Bjarnason
og Helena Eyjólfsdóttir. Magnús
Ingimarsson, píanóleikari, hefur út-
sett lögin af þekktri smekkvísi, en
Svavar Gests stjórnar. Hann er nú
löngu landsþekktur, einkum fyrir út-
varpsþætti sína, en honum tekst ekki
síður með hljómsveitarstjórnina og
þá ber sérstaklega að geta eins mik-
ilvægs atriðis: Það hefur oft háð ís-
lenzkum danshljómsveitum, hversu
afsltaplega mönnunum virðist leiðast
starfið. Þeir hafa tæpast álitið, að
þeir væru komnir á sviðið til þess
að skemmta, að minnsta kosti alls
ekki eftir svipnum á þeim að dæma.
Þeir hafa staðið helfrosnir og þar á
ofan með ólundarsvip. Þetta hefur
ótrúlega mikil áhrif á públikum.
Andstæðan kemur í ljós hjá Svavari
Gests í Lidó, en þar smitast mann-
skapurinn af fjöri og gáska hljóm-
sveitarinnar. Það hlýtur að vera ein-
hver misskilningur, að dansmúsík
verði betri að viðbættum jarðarfarar-
svip hljóðfæraleikaranna -—■ að
minnsta kosti hefur Svavar afsannað
það rækilega.
Við tókum nokkrar myndir af gest-
um í Lidó þetta kvöld og nú er bezt
að láta þær tala.
Ég býst ekki við að við getum komið
í kvöld. Alfreð er með höfuðverk.
Spyrjiö Bólstrarann
um ÚLTÍMA-
i
ÁKLÆÐI
ÚLTÍMA
KJÖRGARÐI
AKLÆÐI
PÆRIjS CHAPEÁU
kuMobúfAn
Fröken Theodóra Þórðardóttir er í góðu
skapi. . . . Ekki að undra, segir liún! Ég
hef loksins fengið höfuðfat sem ég e.
ánœgð með. Ég er dökkhærð og með
brún augu svo ég valdi mér Orange-gúla
Paris C hapeau kuldahúfu. Ég segi ykkur
stúlkur mínar (alveg í trúnaði) að í síð-
asta bréfi frá Birgitte Bardotte segir hún
að Paris Chapeau kuldahúfan seljist eins
og plöturnar hans Prestley og bað mig að
skila til ykkar að hver kona sem notaði
Paris Chapeau væri smekkleg og listræn.
Amor miðar örvum sínum á þær sem
bera PARIS CHAPEAU
Heildsölubirgðir:
UMBOÐS- & HEILDVERZLUN
Laugavegi 178. — Símar: 36840 — 37880.
VIKAN 33