Vikan - 07.12.1961, Page 27
■ ■: W.:
' 'y '':x
Þeim veitinga- og skemmtistöðum fjölgar nú pr frá ári, sem bjóða ný-
tízkuleg og þægileg húsakynni, fullkomna þjónujtu og vandaða skemmti-
krafta. Við höfum ákveðið að lita inn á einn ágætan stað með ykkur,
lesendur góðir, og kynna fyrir ykkur skemmtistað, sem er í fyrsta lagi
gott sýnishorn af nútima arkitektúr, í öðru lagi fara sögur af mjög
fullkominni matargerð þar og í þriðja lagi leikur þar hljómsveit, sem
unun er á að hlusta.
Þetta er Lidó, staður með alþjóðlegu nafni og heimsborgaralegum
svip. Þetta nafn á uppruna sinn að rekja til mjög frægrar baðstrandar
á Italíu, en af öllum þeim skemmtistöðum, sem nefndir hafa verið eftir
ströndinni, mun Lidó í París frægastur. Lidó við Skaftahlíð í Reykjavík
er samt sem áður staður, sem fólk hvaðanæva úr veröldinni mundi meta
og virða ■— ef það á annað borð kann að meta góða þjónustu, fallegt
umhverfi og skemmtilega hljómsveit.
Við hittum að máli Konráð Guðmundsson, framkvæmdastjóra, sem
vakir yfir öllu og aðgætir að allt gangi eins og vera ber. Þetta var á
föstudagskvöldi og okkur virtist meiri partur gestanna vera hjón, sem
komið höfðu til að borða og njóta síðan kvöldsins i Lidó. Konráð sagði, að
matargestum færi mjög fjölgandi, eða Þá að fólk keypti smurt brauð.
Við höfum orð á því við hann, að ekki væri margt um ungt fólk og hann
Framhald á bls. 33.
<1 Föngulegt par
fallegu umhverfi: Guðrún
Bjarnadóttir úr Njarðvíkum, sem er lesenduni
Vikunnar kunn. — Forsíðumynd birtist af henni
hinn 26. október nú í haust. Með henni er Guð-
brandur Geirsson frú Borgarnesi, sölumaður
hjá Eggert Kristjánssyni & Co.
MiiÍiM?
■
Ungt og ástfangið par á barnum í Lidó: Sigrún
Sigurðardóttir úr Landeyjunum, sem tók þátt
í keppninni um titilinn „Sumarstúlka Vikunnar
1960“ og Sigurdór, sem söng um tíma með
hljómsveit Svavars Gests í Sjálfstæðishúsinu.
og syngur þar enn.
Þau syngja saman fjögur, stundum
tvö og stundum Ragnar einn, en
alltaf er unun á að hlusta. Hljóm-
sveit Svavars Gests er einmuna
skemmtileg og vafalaust með þeim
beztu, sem hér hafa komið fram.
Frá vinstri: Finnur Eydal, Ragnar
Bjarnason, Helena Eyjólfsdóttir og
Garðar Karlsson.
<3 Allmiklar breytingar hafa verið gerðar á saln-
um í Lidó og hefur til dæmis verið bætt við
litlum bar með sætum og tjöldum í kring. Hér
er Jóakim Snæbjörnsson, skfðakappi á nýja
barnum og hefur góðan félagsskap.
26 VIKAN
: ý' I
.
,__sj
Slappað af í Lidó eftir erfiði [>
dagsins. Hér er Oddur Ólafs-
son ljósmyndari — lengst
til hægri ásamt hjónunum
Kristni Baldurssyni, sölu-
manni hjá Kristjáni G. Gísla-
syni og konu hans, Katrínu
Magnúsdóttur.
Tveir ungir og efnilegir menn [>
úr viðskiptalífinu ræða saman
*m „bísnis" meðan beðið er
eftir matnum. Þeir eru Magn-
ús Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Skeifunnar og Ágúst
Kristmanns framkvæmdastjóri
í Snyrtivörur h.f.
Hjónin til vinstri áttu 15 ára [>
hjúskaparafmæli og í tilefni
áf því færði Konráð Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
í Lidó, þeim kampavínsflösku
að gjöf. Þau heita Karólína
Júlíusdóttir og Rafn Péturs-
son, búsett á Flateyri við Ön-
undarfjörð og Rafn er for-
stjóri Fiskiðjunnar þar. Þau
skála við hjónin Ingibjörgu
Ólafsdóttur og Valdemar
Indriðason, forstjóra Sildar-
verksmiðjunnar á Akranesi.
Útlendir gestir reyna kræs-1>
ingarnar í Lidó og finnst auð-
sjáanlega mikið til þeirra
koma.
-
iiililli
1
1
mm