Vikan - 07.12.1961, Qupperneq 31
JóUwóttin 1961
n
n
* '4
'bi|pf?a(°
Hrútsmerkiö (21. marz—20. apríl): Þú hefur lifað
tilbreytingalitlu lífi undanfarið, en nú verður
eitthvað til Þess að koma lífi í tuskurnar, svo
um munar. Líklega verður þetta á þriðjudaginn.
Þú hefur lengi beðið eftir einhverju, og áttir
Þú fyrir víst von á því i þessari viku, en því miður verður
einhver bið á þvi að úr þvi rætist. Heillatala 7.
NautsmerkiÖ (21. apríl—21. maí): Þetta verður
mjög ánægjuleg vika, og þú munt skemmta þér
óvenjumikið. Um helgina er hætt við að gerist
eitthvað leiðinlegt, ef þú ferð ekki að öllu með
gát. 1 sambandi við merkisatburð í fjölskyld-
unni gerist dálítið óvenjulegt. Þú munt að líkindum eign-
ast nýtt áhugamál í vikunni, en áhuginn á því dvínar fljótt.
TvíburamerkiÖ (22. maí—21. júní): Það skiptast
á skin og skúrir í vikunni, og Það er engu líkara
en það séu á því dagavíxl —- einn dagurinn verður
leiðinlegur en næsti skemmtilegur. Vinur þinn
veldur þér einhverjum vonbrigðum, en hann bæt-
ir fyrir það, áður en langt um líður. Þrjóska þín í sam-
bandi við fjölskyldumál, er óeðlileg. Heillatala 6.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þú skalt ekki
leggja út í nein stórfyrirtæki i vikunni. Einkum
gildir þetta um það, sem þú og einn kunningi
þinn hafið á prjónunum. Þið skuluð ekki láta
verða úr framkvæmdum fyrr en í fyrsta lagi í
næstu viku. Fimmtudagurinn er mikill heiladagur, ekki
sízt fyrir nýgift hjón.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Það er svo sem
gott og blessað að vanda um fyrir öðrum — en
það er engu líkara en þú getir alls ekki tekið
góðri gagnrýni þessa dagana, og er það miður.
Til hvers ætlastu, þegar þú gagnrýnir aðra? •—
Þú skalt fara varlega með peningana um helgina. Líkur
eru á því að eitt áform þitt fari út um þúfur.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Þú virðist ekki
taka nægilegan þátt í félagslífi, einkum er eins
og þú sért að fjarlægjast félaga þina sakir hlé-
drægni. Þú verður að láta Þegar til skarar skríða
og láta ljós þitt skína svo um munar, svo að þú
fáir ekki viðurnefnið félagsskitur. Amor kemur talsvert við
sögu þína í vikunni. Heillalitur grænblátt.
VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Þú verður ó-
venju lánsamur í vikunni, og er jafnvel hætt við
því að þú fyllist ofdirfsku og um leið ofmetnaði
:— en lánið getur ekki haldíð áfram að elta þig
án afláts. Án þess að þú farir að leggjast i svart-
sýni, verður þú samt að gera ráð fyrir mótlætinu líka. Þú
verður fyrir miklum áhrifum af persónum, sem þú þekkir
lítilsháttar.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Það er eitt-
hvað í fari þinu, sem fer mjög í taugarnar á bæði
fjölskyldu þinni og vinum, og veizt þú bezt sjálfur
hvað það er. Þú verður að venja þig af þessu,
áður en illa fer. Þú verður óviljandi til þess að
spilla einhverju fyrir vini þínum, en Þótt einkennilegt megi
virðast verður þetta einmitt til þess að styrkja vináttuna.
Bogmannsmerki (23. nóv.—21. des.): Þú tekur
óvenjumikinn þátt i alls kyns félagslífi í vik-
unni. í samkvæmi, sem haldið verður um helgina,
ver'ður þú hrókur alls fagnaðar. Illur orðrómur
spililr dálítið fyrir vinkonu þinni — reyndu að
sýna fram á hið sanna í þessu máli. Þú skalt ekki taka allt
of mikið mark á þessari porsónu. sem :m kynntist nýlega.
_______GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): Það kemur
greinilega i Ijós í Þessari viku, að þú kannt ekki
að játa fyrir öðrum, að Þú hafir rangt fyrir þér.
Stundum gengur þetta svo langt, að þú telur sjálf-
um þér trú um, að þú einn hafir rétt fyrir þér.
Þetta er auðvitað óheilbrigt ■—• þú verður að læra að viður-
kenna víxlspor þín. Heillatala 12.
Vatnsbaramerkiö (21. jan.—19. feb.): Þú kynnist
persónu í vikunni, sem mun hafa talsverð áhrif
áhrif á þig næstu vikur, og er það vel — líklega
verðið þið mestu mátar í framtíðinni. E’f þessi
persóna er af hinu kyninu, geta kynni ykkar orð-
ið annað og meira en eintóm vinátta. Það freistar þín eitt-
hvað á mánudag, en þér er hollast að láta það sem vind
um eyru þjóta.
Fiskamerkið (20. feb.—20. marz): Atvik, sem
gerðist fyrir skemmstu rifjast skyndilega upp
fyrir þér og hvetur þig til þess að hefjast handa
— og er sannarlega tími til þess kominn. Vinur
þinn stingur upp á einhverju við þig, og er hug-
myndin góð, en framkvæmdir verða samt að bíða betri
tíma. Föstudagurinn er mikill heilladagur fyrir konur.