Vikan - 07.12.1961, Page 41
Allir utan hættu, austur gefur.
V
♦
*
0‘ConneIl
A A-9
y 9-8
y Á-K-D-4-3
JL D-G-9-3
Jóhann *
D-8-6-4-2
Á-G-6-4-2
6
hm
0‘Connell
A K-7-2
y 7-5
y G-10-7-5-3
* 8-7-5
Stefán
G-10-5
K-D-10-3
9-8
Á-K-6-2
Blóm á heimilinu:
Sveigblað og rússneskur vínviðnr
eftir Paul V. Michelsen.
BORÐ 1.
Austur Suður Vestur Norður
1 lauf pass 1 spaði pass
2 spaðar pass pass 3 tfglar
3 hjörtu pass 4 hjörtu pass
pass. pass
BORÐ 2.
0‘Dempsey Gauðlaugur Diamond Lárus
1 lauf pass 1 spaði 1 grand
pass pass 2 hjörtu pass
3 hjörtu pass pass pass
Spilið i dag er frá leik íslands ur. Útspilið var lauf og eftir það
við írland á Evrópumeistaramótinu. stendur spilið alltaf. Það sést, að
Þeir félagar Stefán og Jóhann spila með því að taka tvo hæstu í spaða
Culbertson-sagnkerfið og þar eð ein- og tromp þriðj a er hægt að hnekkja
föld hækkun á lit félaga merkir lág- spilinu, þvi að vörnin fær alltaf einn
marksopnun, segir Jóhann pass við á tígul. Fjórir spaðar eru hins vegar
tveimur spöðum. írinn i norður, alveg öruggur samningur, en ef til
sem hafði beðið átekta með sína 26
punkta, þótti lint að gefa tvo spaða
eftir og þvi sagði hann 3 tígla. Þetta
var gullið tækifæri fyrir austur að
vill er erfiðara að ná honum.
Á hinu borðinu komust írarnir að-
eins í 3 hjörtu, enda hjálpuðu Lárus
sína hinn litinn sinn og þegar vestur og Guðlaugur þeim ekkert. Útspilið
sá hvað hans spil mundu passa vel var tígulkóngur og meiri tigull og
við spii félaga, hækkaði hann i fjög- eftir það standa fjórir. ic
Aechmea fasciata, eða sveig-
blað, eins og jurtin er nefnd, er
af ananasætt og finnst í mörgum
afbrigðum, vex aðallega í hita-
beltislöndum Ameríku. Margar
tegundir þeirra vaxa aðallega á
trjám, án þess þó að vera sníkju-
jurt, en afla sér næringar úr
vatni, er sezt í hvirfingar blað-
anna. Það er mikill kostur á þess-
um plöntum, að þær þola vel
þurrk. A.fasciata er skrautleg
jurt, með breið, niðursveigð löng
grágræn blöð í trektlaga hvirf-
ingu. Neðan á blöðunum eru ó-
reglulegar gráleitar þverrákir.
Blómin í kolli á alllöngum
stöngli, blá að lit, en hulin að
mestu af rósrauðum, þyrnóttum
háblöðum, er endast mánuðum
saman. Hinar ýmsu tegundir bera
ýmist blá og hvít blóm.
Billbergia eða sveigblaði er
fjölgað með skiptingu og hliðar-
sportum. Þarf lausa, létta mold,
vel blandaða með lyngi eða mosa,
gömlum húsdýraáburði og sandi.
Þarf allmikið vatn á sumrin
en lítið á veturna. Þrífst bezt
í röku lofti. Þolir ekki vel sól,
en getur með mjög góðum árangri
þrifist nær hvar sem er í stof-
unni.
Cissus antarctica, eða rúss-
neskur vínviður. Margir hvarta
undan því, að það sé erfitt að
halda honum fallegum yfir vet-
urinn, eða i skammdeginu. Vilja
koma brúnir blettir á blöðin og
þau detta af, svo stilkur verði
ber. En aðalorsök þess mun vera
ofvökvun að vetri til. Það er
fremur lítið rótarnet á „rússa“
og þolir hann því illa að standa
blautur alla tíð, „Rússinn“ er
annars mjög fögur hengiplanta,
ættuð frá Ástralíu. Blöðin dökk-
græn, gljáandi, egglaga, ydd, sag-
tennt og grófstrengjótt. Grein-
arnar geta orðið langar og með
sínum sterku gripþráðum gela
þær fest sig í uppbindingu af
bambusvegg. „Rússa“ er fjölg-
að með hæfilega jurtakenndum
græðlingum, en þó enganveginn
létt í heimahúsum. Má ekki vera
i sól, en þolir aftur á móti nokk-
urn skugga. Er áburðarfrek að
sumri. Vínviðir eru til i ótal af-
brigðum og mun ég koma að
fleirum síðar.
TREyja
Stærð 42, brjóstvídd 105 cm, sídd
62 cm.
Efni: 230 gr af meðalgrófu garni.
Prjónar nr. 4 og 5. 7 hnappar.
Mynztrið á peysunni: 1. umf. (rétt-
an) 1 1. br., 1 1. br. tekin óprjónuð
fram af prjóninum og þráðurinn lát-
inn liggja á röngu. 2. umf. 1 1. br.
(lausa lykkjan), 1 1. sl. Prjónað á
prj. nr. 5.
Brugðningsbekkur er neðan á peys-
unni, upp barmana og kringum krag-
ann, hann er prjónaður 1 1. sl. og 1
1. br. á prj. nr. 4.
Bakstykki: Fitjið upp 115 1. á
prjóna nr. 4 og prj. brugðning 4 cm.
Takið prjóna nr. 5 og prjónið mynzt-
ur þar til stykkið mælist 33 cm. Fellið
þá af 3 1. og 2 1. báðum megin fyrir
handvegum. Takið siðan úr þannig:
prj. 3 1. sl:, takið 1 1. óprj., prjónið
næstu 2 1. saman og fellið óprjónuðu
1. yfir, — prjónið þar til 6 1. eru eftir
á prjóninum, prjónið þá saman 3 1.
og prj. 3 1. sléttar. Endurtakið þess-
ar úrtökur í 4. hv. umf, 17 sinnum.
Fellið þá af í einni umferð 37 1. sem
eftir eru.
Vinstra framstykki: Fitjið upp 71
1. á prj. nr. 4 og prj. 4 cm brugðning.
1. umf. (réttan), byrjið og endið með
1 1. br. Látið 12 1. að framan á ör-
yggisnál og prjónið áfram 59 1. sem
eftir eru. Takið prj. nr. 5 og fitjið
upp 1 1. við framkantinn (sem saum-
far). Haldið áfram að prj. mynztur
þar til stk. er 33 cm. Fellið þá af
3 1. báðum megin 2 sinnum og takið
síðan úr eins á bakstykkinu fyrir
innan 3 endalykkjurnar báðum meg-
in á 4. hv. prjóni 17 sinnum. Um leið
og tekin er úr 15. úrtaka, er fellt af
fyrir hálsmáli: 4 1. 1 sinni — 3 1.
4 sinnum — 4 1. 1 sinni. Prjónið nú
12 1. að framan á prj. nr. 4 og fitjið
upp 1 1. að innan (sem saumfar),
prjónið brugðning þar til lengjan
nær að hálsmáli.
..Hœgra framstykki: Prjónið eins og
það vinstra, en á mótstæðan hátt. 1.
umf. í brugðningi að neðan byrjar
og endar með 1 1. br. Prjónið 7
hnappagöt á renninginn að framan
og staðsetjið þau eftir vinstra fram-
kanti. Fyrsta hnappagat kemur 4
cm frá uppfitjun, seinasta 1 cm frá
hálsmáli og þau sem milli eru með
8% cm millibili. Hnappagötin eru
gerð þannig: 5 1. brugðning, 4 1. felld-
ar af, brugðningur prjóninn út.
Fitjið siðan upp 4 1. yfir þeim af-
felldu frá fyrri umferð.
Ermar: Fitjið upp 52 1. á prj. nr.
4 og prj. 4 cm brugðning. Takið
prjóna nr. 5 og prj. mynztur. 1 umf,
(réttan) byrjið með 1 1. brugðna.
Aukið út 1 1. fyrir innan endalykkj-
urnar báðum megin í 6. hv. umferð,
8 sinnum, síðan 1 1. báðum megin í
4 hv. umf. 10 sinnum. Prjónið áfram
þar til ermin mælist 42 cm, fellið þá
af 3 1. báðum megin 2 sinnum. Takið
Framhald á bls. 50.
VIKAN 41