Vikan - 07.12.1961, Síða 43
frrrr
HÖRPU
MALNING
//
Jtaxpa h*
greiðslu. Það er ef til vill örlítill
slæðingur í einstaka verzlunum, af
gömlum „kúnnum“, sem gera svo
alltaf upp mánaðarlega, en það virð-
ist óðum að hverfa, sem betur fer.
Einstaka verzlanir hafa þó meira
af sliku, en það eru þá helzt þær
veTzlanir, sem selja mikið til stærri
fyrirtækja, svo sem útgerðarfélaga.
f kjörbúðum er lánsverzlun ó-
þekkt fyrirbrigði, enda þýðir ekkert
að fara fram á slíkt þar.
Yfirleitt — segja kaupmenn — er
mikið þægilegra að komast hjá láns-
verzlun, ef kaupmaðurinn er ekki
sjálfur við afgreiðslu. Viðskiptavin-
ir vita að það þýðir ekkert að fara
fram á slíkt við afgreiðslufólk, því
það segir bara eins og satt er: „Þvi
miður. Okkur er alveg bannað að
skrifa.“
Einn kaupmaður hafði það lagið
á ef einhvern vantaði nokkrar krón-
ur til að geta borgað, að hann sagði
því miður leyftói bókhaldið ekki
neina lánsverzlun, en það væri al-
veg sjálfsagt að lána upphæðina —
10 — 20 krónur — úr eigin vasa.
Svo tók hann upp veskið og borgaði
það sem á vantaði í kassann.
Reynsla hans er að slikar skuldir
eru mikið frekar greiddar en hinar,
— sem því miður vilja oft gleymast.
Nokkru öðru máli gegnir með
verzlanir víðsvegar í smærri kaup-
stöðum út um iandið. Þar er nokkuð
oft um töluverða lánsverzlun að
ræða, — en þó með öðru sniði en
ætla má.
Þar sem mikið er um kvikfjár-
rækt, t.d. fer mikill hluti verzlunar
við kaupfélögin fram á þann hátt,
að þau lána framleiðendum (bænd-
um) og útgerðarmönnum út á af-
urðaverð i næstu sláturtið. Þar er
því raunverulega um nokkurskonar
vöruskiptaverzlun að ræða. Öðrum
en framleiðendum lána kaupfélögin
yfirleitt ekki, en þess 1 stað er tölu-
vert um föst reikningsviðskipti hjá
öðrum kaupmönnum úti á landi. Þar
er það ýmist svo að reikningar eru
gerðir upp við hver mánaðarmót,
eða að viðskiptavinur hefur nokk-
urskonar hlaupareikning, sem
hann greiðir inn á, og fær svo yfir-
lit hjá verzluninni einu sinni eða
tvisvar á ári.
Annars láta kaupmenn yfirleitt vel
af því hvernig fólk stendur i skil-
um, þegar það fær vörur með af-
borgunarskilmálum. Það eru aðeins
undantekningar, sem ekki greiða á
réttum gjalddaga.
Einstaka sinnum hefur það þó
komið fyrir að verzlanir hafa þurft
að fara á staðinn og taka vörurnar
aftur, eftir að itrekaðar tilraunir
hafa verið gerðar til að fá fólk til
að standa við gerða samninga, en
þá er því oftast gefinn kostur á þvi
að Ijúka skuldinni, en varan — hvort
sem það eru húsgögn, teppi eða
heimilistæki — er geymd í verzlun-
inni og siðan afhent aftur, þegar
skuldin er greidd.
En þetta eru sem sagt undantekn-
ingar.
Þú ert engin undantekning, kunn-
ingi, því þú ert eins og annað fólk,
borgar þinn mat við móttöku —
og kaupir Vikuna — eins og annað
fólk.
G, K,
...allir þekkja
KIWI
gljáann
O. JOHNION ð> KAABER H/F, REYKJAVIK
VIKAN 43