Fréttablaðið - 22.12.2009, Blaðsíða 24
24 22. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
RÚSSLAND, AP Aðdáendur Jósefs
Stalín, bæði í Rússlandi og
Georgíu, minntust þess í gær að
130 ár eru liðin frá fæðingu þessa
alræmda einræðisherra, sem
stjórnaði Sovétríkjunum í tæpa
þrjá áratugi.
Vinsældir Stalíns hafa auk-
ist í Rússlandi síðustu árin, eftir
að stjórnvöld tóku að sér að verja
ímynd hans.
Meðal annars hefur Vladimír
Pútín forsætisráðherra lagt
áherslu á að Stalín eigi virðingu
skilda fyrir að hrinda á bak aftur
innrás Þjóðverja í seinni heims-
styrjöldinni ásamt því að hafa iðn-
vætt Sovétríkin. Skipulögð útrým-
ing andstæðinga Stalíns og kúgun
almennings sem varð milljónum
íbúa Sovétríkjanna að bana eigi
ekki að skyggja á þessi afrek.
Kommúnistaflokkur Rússlands,
sem enn lifir góðu lífi sem stærsti
flokkur stjórnarandstöðunnar,
hefur einnig lagt mikla áherslu á
að viðhalda fegraðri ímynd Stalíns
og bað gagnrýnendur hans sér-
staklega um að hafa hægt um sig
í gær.
„Okkur er mikið í mun að öll
umræða um mistök Stalíntímans
hljóðni í dag, svo fólk geti hugleitt
persónuleika Stalíns sem skap-
ara, hugsuðar og föðurlandsvin-
ar,“ sagði Ivan Melnikov, einn for-
ystumanna Kommúnistaflokksins,
í ávarpi á vefsíðu flokksins.
- gb
Standa með Stalín
Enn í dag láta einlægir aðdáendur grimmdarverk Jósefs Stalín sem vind um eyru
þjóta. Í Rússlandi og Georgíu minntust menn þess í gær að 130 ár voru liðin frá
fæðingu einræðisherrans sem stjórnaði Sovétríkjunum í nærri þrjá áratugi.
GAMAN Í GEORGÍU Í Gori, fæðingarbæ Stalíns í Georgíu, komu aðdáendur hans saman í tilefni dagsins.
GENNADÍ ZJÚGANOV Leiðtoi rússneska Kommúnistaflokksins í fararbroddi í Moskvu.
UNGLIÐAR MARSERA Ungliðahreyfing rússneska Kommúnistaflokksins tók þátt í fögnuðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
T Ý R BRAGI ÞÓRSMÖRK
Hlýir og góðir með gott grip. Mjög hlý og vatnsfráhrindandi.Vindhelt og vatnsfráhrindandi.
vettlingar barna dúnvesti úlpa
Verð: 64.800 kr.Verð: 19.800 kr.Verð: 3.200 kr.
Einnig fáanleg
í rauðu & svörtu
Einnig fáanlegirí svörtu