Vikan - 25.01.1962, Side 16
Tómstundaiðja
STÓLL
sæmilega lagtækur maður getur hæg-
lega smíðað þá sjálfur úr hæfilega
víðri stálpípu; bútað hana niður sam-
kvæmt málinu og fengið þverslána
soðna á í smiðju fyrir lítinn pening
Plasthólka á endana má fá í verzl-
unum, og kosta þeir sáralítið.
Nýstárlegur — þægileg r
auðsmíðaður — ódýr
Öllum ber saman um að smíðar
séu einhver sú skemmtilegasta og
hollasta tómstundavinna, sem völ er á
fyrir drengi og karlmenn á öllum
aldri. Fátt veitir jafn gagngera tauga-
slökun og hugarhvíld frá annríki
dagsins, og fátt þroskar betur auga,
smekk og handastjórn. Auk þess er
það flestum karlmönnum nauðsyn að
vera „bang-hagir“, eins og það var
kallað; að minnsta kosti getur það
ailtaf komið fyrir, að þeir þurfi að
gripa til þess.
Stóll sá, sem hér er lýst í orðum
og myndum, er svo einfaldur að allri
gerð, að sérhver sæmilega lagtækur
piltur getur smíðað hann svo vel, að
hann verði bæði honum og öðrum til
ánægju. Og efniviðurinn, sem með
barf, er bæði auðfenginn og ódýr til
hess að gera — harðviður, nælonlína,
stf lpípufætur.
Eins og myndirnar sýna, er þarna
•eiginlega um þrjár ólikar stólgerðir
að ræða, sem þó má smíða allar eftir
sömu teikningunni. Sú gerð, sem sýnd
er á fyrstu mynd er auðsmiðust.
Önnur gerðin, sú sem sýnd er á síð-
ustu myndinni, er með örmum — til
mikillar prýði, ef vel tekst.
Fæturna má kaupa tilbúna, en hver
1 stað harðviðar má nota gabon í hlið-
arnar, en þá verður að líma þunna
lista á rendurnar, eða sþónleggja þær,
og hvorugt er með öllu vandalaust.
Sé harðviður notaður — t.d. eik,
ahörn eða askur — þarf platan sem
keypt er að vera 90x69x3 sm að stærð,
og ekki stærri, þótt um þriðju gerðina
sé að ræða Teikningin til vinstri sýnir
hvernig hún er söguð niður. Sé það
fyrsta gerðin, sem smiðuð skal, gildir
skálínan svarta frá neðsta horni til
Framhald á bls. 36.
Þetta er þriðja og vandsmíðaðasta
gerðin af þessum nýstárlega stól.
Ef viF má bólstra armana með
svampplasti og klæða yfir, en það er
ekki nauðsynlegt.
Leynilögregluþrautin:
Morðið í kvikmyndaverinu
Þú hefur unnið veðmálið! Þetta
er kraftaverk, sagði kvikmynda-
stjórnandinn Jules Jabot við vin sinn,
dr. Walnut, sem einmitt hafði gisk-
að rétt á nafn og árgang vínsins,
sem borið var á borð með matnum.
Hann hellti aftur í glasið hjá vini
sínum og vinum hans, Hurlock lög-
reglumanns og aðstoðarmanns hans,
Snapham.
— Þar með hefur þú unnið hlutverk
i nýju myndinni minni, hélt Jules Ja-
bot áfram — ég sé þig þá og vini þína
í fyrramálið í kvikmyndaverinu. Við
erum að taka ævintýramynd um
framtíðina, og Þið getið allir leikið
Marzmenn.
Leikstjórinn skýrði gang myndar-
innar fyrir mönnunum þrem. Fijúg-
andi diskur hafði nýlega lent og
nokkrir menn, sem höfðu tekið eft-
ir því, höfðu flýtt sér til húss borg-
arstjórans til að segja honum frá
Framhald á bls. 42.
10 VIKAN
Elvis Presley af- O
greiðir ferðalang á
Hawai.
Slagsmála-
hundurinn
ELVIS
Eftirlætissöngvarinn EIvis
Presley er orðinn heilmikill
slagsmálahundur. þ. e. a. s. á
léreftinu. Þær eru víst orðnar
fáar myndirnar, þar sem Elvis
lendir ekki í einhverjum slags-
málum, og leikur harðgerðan
vöðvakarl. Hann blandast ávallt
í einhver stórkostleg áflog, og
auðvitað enda þau ávallt með
því að mótstöðumaður hans, —
eða mótstöðumenn, — eru
slegnir í gólfið.
1 nýjustu myndinni „Blue
Hawai", sem tekin er í mjög
rómantísku umhverfi, er Elvis
leiðsögumaður hjá ferðaskrif-
stofu, og á að leiðbeina hóp unglinga, sem eru þar í heimsókn. Eitt
kvöld, er hann fer með hópinn í næturklúbb, lendir hann í slagsmálum
við ferðamann, sem gerðist of nærgöngull við eina stúlkuna í hóp
Elvis. Þannig fær Elvis aftur tækifæri til að sýna krafta sína.
Nú skyldi maður ef til vill halda að það væri ekki skynsamlegt að
láta Elvis, leika slagsmálahund í hverri myndinni eftir aðra, en það
er þvert á móti mjög skynsamlegt, segir umboðsmaður hans.
— Aðdnendur hans mega aldrei láta sér detta í hug að hann sé
einhvers konar mömmubarn, segir hann. — Það er ekki nóg að hann
syngi. Hann Þarf líka að vera karlmaður. Aðdáendur hans eru mjög
hrifnir af að sjá hann slást og útkljá deilumál á þann, hátt.
Og hér er slags-
málaatriði úr mynd-
inni „Creole“, en þar
er Elvis að berjast
við náunga með hníf.
Vil ekki kaviar, -
segir Armstrong.
Eins og kunnugt er,'þá hætti Louis
„Satchmo" Armstrong við það að
fara til Rússlands, eins og til stóð
fyrir nokkru, en þangað var honum
boðið.
Hann var spurður að því hvernig
á þessu stæði, og svaraði hann þvi
til, að það væri í rauninni ekki vegna-
stjórnmálaerfiðleika eða stríðshættu, heldur aðeins vegna þess að Það
kom upp úr kafinu að það átti að greiða honum í rúblum. Nú er
ekki leyfilegt að flytja rússneskan gjaldeyri út úr landinu, og eins
og Louis sagði þá „væri ég nauðbeygður til að kaupa vodka og kavíar
fyrir alla summuna og fara með það heim. Og hvað ætti ég svo sem
að gera með Það, þegar ég drekk bara whisky og ét svínakjöt ... ?“
„My fair Iady“ endalaus.
Það er vist alveg ýkjalaust, þegar sagt er að „My fair lady“ sé
vinsælasti söngleikur allra tima. Hann hefur nú gengið i um fimm
ár i New York, og i einu og sama leikhúsi hefur hann verið leikinn
2250 sinnum fyrir fuliu húsi. Rúmlega þrjár milljónir manna hafa
nú þegar séð leikinn í þessu leikhúsi og hafa greitt samtals yfir
18 milljónir dollara í inngangseyri.
Tónskáldið og ljóðskáldið geta rólegir haldið áfram að sóla sig
suður á Miami Beach i nánustu framtíð.