Vikan - 25.01.1962, Qupperneq 17
Guðmundur í bankanum.
Guðmundur Gíslason sundkappi er annar mesti met-
hafi íslendinga, því hann hefir leikið sér að þvi að setja
hvorki meira né minna cn 43 Islandsmet, og á ekki eftir
að setja „nema“ 14 met til að slá út methafann í metutn,
Jónas Halldórsson sundkennara.
Jónas vinnur sjálfur að þessu öllum árum, ]jví hann
er þjálfari Guðmundar, og þeir sögðu mér fyrir skömmu,
að þegar Guðmundur tæki 50. metið, ætluðu þeir að
efna til veglegrar veiziu. Sjálfur setti Jónas 57 íslandsmet
þegar hann var upp á sitt bezta.
Annars á Guðmundur i rauninni ekki „nema“ 15 met
núna, þótt hann hafi sett þau 43, því hann hefur tekið
sín eigin met aftur og aftur. Hann á t.d. öll metin i
skriðsundi — á öllum vegalengdum, í flugsundi og bak-
sundi.
Á daginn, þegar hann er ekki að safna metum, vinn-
ur hann eins og annað venjulegt fólk í Útvegsbankanum
í deild, sem nefnist „Erlendir tékkar“ og aðstoðar við
sölu á gjaldeyri til viðskiptavinanna.
Guðmundur fór að æfa fyrir alvöru 1956, svo hann
hefur verið í sundþjálfun stanzlaust í 5 ár. Hann er
tvítugur að aldri, — þ. e. a. s. hann er núna orðinn
tuttugu og eins, þvi hann átti afmæli á sunnudaginn var,
21. janúar, og varð þá fullmyndugur, fékk kosningarrétt
og alll livað eina, e-ins og fullorðna fólkið.
Annars er hann í rauninni ekkert öðruvísi en fólk
er flest, nema þá ef til vill að því leyti að hann hvorki
reykir né drekkur, enda hefði hann ])á vafalaust ekki
komizt svona langt i sinni íþrótt. Samt finnst honum
ekki að hann sé kominn nógu langt, og ætlar sér greini-
lega meira, og það eru þeir báðir sammála um, hann og
Jónas. Þess vegna heldur hann stöðugt áfram að þjálfa
sig, og það er ekkert smáátak, sem þarf til þess að vera
keppnisfær um íslenzku sundmetin. Þannig syndir Guð-
mundur að jafnaði milli 7 og 8 kílómetra á dag af fullum
krafti. Venjulega fer hann í sundhöllina á morgnana
kl. háifátta og syndir til niu, en þá fer hann í vinnuna.
Siðan fær hann matartíma frá hálftólf til eitt, og þann
tíma hefur hann oft notað á sama liátt, en gleypt í sig
einhvern matarbita að því loknu. Þó er það oftar að
hann fer þess í stað á kvöldin kl. um hálfsjö og syndir til
um hálfníu. Framhald á bls. 42.
SYNDIR
8 KM
ADAG
Sumum þykir þó nokkuð að synda einn km,
jafnvel að hafa gert það einu sinni á ævinni.
En Guðmundur Gíslason hefur þá átta á degi
hverjum og hefur nú sett samtals 43 íslands-
met.
Guðmundur með Jónasi Halldórssyni.
VIKAN 17