Vikan - 25.01.1962, Qupperneq 29
þúsundir króna
árlega með því að kaupa mjólk í eigin umbúðum.
Þessir plastbrúsar eru algjör nýjung hér, tilvaldir fyrir bæði
heita og kalda drykki.
ÓBRJÓTANDI
FISLÉTTIR
ÞOLA SUÐU
Þeir kosta í heildsölu kr. 89.00 — 4ra lítra og kr. 65.70 —
2ja lftra.
Talafell
Garðastræti 2, sími 16976.
7 'i
’DifWai0
Hrútsmerkið 21. marz—20. apr.): Þessi vika verð-
ur allt öðruvisi en þú hefur gert ráð fyrir, en ekki
skaltu samt kvíða neinu, nema síður sé. Þú kynn-
ist líklega manni í vikunni, sem gæti orðið þér
góður vinur, þegar fram líða stundir. Þú munt
komast að því, að þið eigið margt sameiginlegt. Um helgina
gerist eitthvað, sem á eftir að valda þér óþarfa áhyggjum.
NautsmerkiÖ (21. apr.—21. maí): Líklega verður
þessi vika ekki eins neikvæð og þú hafðir gert
ráð fyrir, og mátt þú þakka það viljastyrk þin-
um. Um helgina gerist meira að segja það, sem þú
hafðir aldrei þorað að vona — langþráð ósk þín
rætist — kannski þó ekki nema að nokkru leyti. Þú segir
eitthvað við vin þinn i gamni, en hætt er við að haijn taki
þig alltof alvarlega i fyrstu.
TvíburamerkiÖ (22. maí—21. júní): Þetta er vika
mikilla freistinga, en líklega ert þú maður til
þess að standast þær flestar. Á vinnustað gerist
eitthvað, sem ekki fellur í góðan jarðveg meðal
yfirboðara þinna, og átt þú líklega einhverja sök
á því. Þú getur þó hæglega bætt fyrir brot þitt. Hrintu ekki
þessu í framkvæmd, sem þú hefur á prjónunum, fyrr en i
næstu viku.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þú gerðir
eithvað i vikunni, sem leið, sem félögum þinum
féll afar illa, og finnur þú það vafalaust á fram-
komu þeirra í þessari viku. Þú getur líklega
ekkert við þessu gert — en þú skalt hugga þig
við, að í næstu viku verður þetta gleymt og grafið. Þriðju-
dagurinn verður mikill hamingjudagur.
LjónsmerkiÖ (24. júlí—23. ág.): Þú munt eiga
skemmtilegt stefnumót í vikunni, og ef vel á að
fara, verður þú að sýna fyllstu tillitssemi og
kurteisi. Þú ert dálitið viðkvæmur fyrir gagn-
rýni þessa dagana. Mundu, að það verða allir að
þola gagnrýni. Réttlát gagnrýni er til þess að láta sér'að
kenningu verða, ekki til þess að fyrtast við.
Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Þú hefur einn
vin þinn fyrir rangri sök, og er leiðinlegt til þess
L*JRS3B að vita, en úr þessu rætist samt í vikunni. Það
ber dálítið á þrjózku i fari þinu þessa dagana. og
verður þú að reyna að venja Þig af þessum ó.sið.
Þú vorkennir þér ailt of mikið. Kvöldin verða yfirleitt mjög
ánægjuleg, einkum þó sunnudags- og þriðjudagskvöld.
Vogarmerkiö (24. sept.—23. okt.): Þú munt eiga
afar annríkt í vikunni, en yfirleitt mun þér verða
mikið ágengt, þvi að þú vinnur vel og skynsam-
lega, og verða launin sannarlega ekki af verra
taginu. Þú ert afar bjartsýnn þessa dagana Bjart-
sýni er að vísu kostur, en gæti þessi óeðlilega bjartsýni þin
ckki orðið til þess að valda þér sárum vonbrigðum?
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): 1 þessari viku
verður þú að gæta hófs í einu og öllu, einkum þó
um helgina — ekki sízt heilsu þinnar vegna •—
kannski hvað mest andlegrar heilsu þinnar vegna.
Vinur þinn veldur þér einhverjum vonbrigðum,
en hefðir þú sjálfur ekki brugðizt eins við í hans sporum?
Þú verður litið heima í vikunni, og er það miður.
Bogmannsmerkiö (23. nóv.—21. des.): Þú ert
einhvern veginn fyllilega ánægður með lífið og
tilveruna þessa dagana. Að vísu verður þú að
sigrast á smávægilegu mótlæti, en þú ert sann-
arlega maður til þess þessa dagana. Um helgina
gerist eithvað, sem þú skilur ekki til fulls, en vertu samt
ekki að brjóta heilann allt of mikið um þetta.
GeitarmerkiÖ (22. des.—20. jan.): Skapið verður
víst ekki sem bezt fyrstu daga vikunnar, en einn
daginn ferðastu eitthvað, sem snýr öllu við. Þú
skalt ekki leggja út i þetta fyrirtæki, sem vinur
þinn er með á prjónunum. Að vísu væri skemmti-
legt, ef heppnaðist, en líkurnar fyrir þvi eru því miður
hverfandi. Heillalitur rautt.
eVatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.): Þú verður
mikið heima við í þessari viku, en líklega mun
verða mjög gestkvæmt hjá þér. Þú sýnir einum
félaga þinum ekki nægilega tillitssemi, og er það
miður. Amor verður mikið á ferðinni í vikunni,
en líklega rista örvar hans ekki alltaf ýkjadjúpt. Gleymska
þín kemur þér illilega i koll um heigina.
______FiskamerkiÖ (20. feb,—20. marz): Þú skalt vanda
allt það, sem þú skrifar í þessari viku, einkum ef
■það snertir peninga á einhvern hátt. Þú munt
glíma við skemmtilegt verkefni i vikunni.
Þú lýkur þvi reyndar ekki eins fljótt og þú viidir,
en láttu það samt ekki á þig fá.
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til föstudags.