Vikan - 22.02.1962, Side 10
Þtir sjá um fasta þætti í Vikuna. Frá vinstri: Gísli Ólafsson, fyrrum ritstjóri Úrvals. Hann
hefur ffert krossgátuna í Vikuna í meira en 20 ár, svo gera má ráð fyrir, að hann sé búinn
að búa til um 1000 krossgátur fyrir blaðið. Dr. Matthías Jónasson, prófessor hefur skrifað
greinar að staðaldri í Vikuna, síðan blaðinu var breytt. Fyrsti greinaflokkurinn hét „Þú og
barnið þitt“ annar hét „Þekktu sjálfan þig“ og nú skrifar hann í annað hvert blað greina-
flokkinn „Sálkreppur og sálgreining“. Þar næst er Halldór Pétursson, listmálari. Hann teikn-
aði kápu á fyrsta blaðið sem kom út f breyttri mynd fyrir rúmum þrem árum. Síðan hefur Hall-
dór teiknað fjölmargar forsíðumyndir á Vikuna og myndirnar hans eru alltaf jafn vinsælar.
Næstur honum er Loftur Guðmundsson, rithöfundur. Hann hefur skrifað greinar í blaðið, svo
sem um mannskaðann á Mosfellsheiði og Kjalvegi, Kambsránið og atómskáldið á Ströndum.
Hann þýðir líka fyrir Vikuna og skrifar tækniþáttinn og um bók vikunnar. Næstur honum er
Gylfi Baldursson, sem þýðir fyrir Vikuna og lengst til hægri Stefán Guðjohnsen, sem sér um
bridgeþáttinn. Á myndina vantar Paul Michelsen, garðyrkjumann í Hveragerði, sem annast
þáttinn „Blóm á heimilinu“ og Hólmfríði Árnadóttur, sem séð hefur um handavinnuþætti.
e' i í 'I ■ , ... .
iflK
lllPSk
Wl
befur it«kkað
um fOOO°
á "i úrum
Starfsfólk á skrifstofu Vikunnar.
Talið frá vinstri: Elín Kröyer, vél-
ritunarstúlka, Ólafur Magnússon,
bókari, Pétur Ottesen, sölustjóri fyr-
ir prentsmiðju, Jóna Sigurjónsdólt-
ir, aðstoðarstúlka hjá auglýsinga-
stjóra. Erna Tryggvadóttir, skrif-
stofustjóri, Sigrún Sigurjónsdóttir
gjaldkeri og Nanna Guðjónsdóttir,
símastúlka.
10 VIKAN