Vikan - 12.07.1962, Qupperneq 16
ÚTDRÁTTUR.
Hjúkrunarkonan unga, Eva Rönne,
hefur ráðið sig sumarlangt til starfa
við sjúkrahúsið í Sólvík, en áður
hafði hún kynnzt skurðlækni þar,
Einari Bang, við nám í Ríkissjúkra-
húsinu, auk þess sem hann er
kvæntur Lilian, frænku hennar. Þau
hjón bjóða henni dvöl heima hiá
sér, á óðalssetrinu Fosshlíð. Einar
er bundinn starfi sínu öllum stund-
um, en Lilian, hin unga og fagra
eiginkona hans, hefur orðið sér
úti um auðfengna dægrastyttingu
hjá ungum og glæsilegum liðsfor-
ingja, Gustav Lange — lætur sig
jafnvel ekki um það muna að byrla
heimilisfólkinu svefnlyf í kaffi eitt
kvöldið, til þess að geta átt nótt með
honum, þegar Einar og Eva eiga
næturvörzlu f sjúkrahúsinu. Svo
einkennilega tekst til, að einmitt
þetta sama kvöld ber ástríðan þau,
Einar og Evu, ofurliði þegar þau
eru á leiðinni til sjúkrahússins.
Þeim keraur saman um að gleyma
því, sem þeim hafi farið á milli, en
þegar hún aðstoðar hann við skurð-
aðgerð að næturlagi skömmu seinna,
verða þau bæði sömu ástríðu gripin,
tekst þó að sigrast á henni í svip
og verður það að samkomulagi, að
þau skuli reyna að halda vináttu,
en láta þar við sitja. Eva hefur ó-
viljandi heyrt símtal Lilian við
elskhugann, og það er með naum-
indum að hún stenzt þá freistingu
að segja Einari frá því. Nú fer Jóns-
messuhátíðin í hönd; Einar er hald-
inn samvizkubiti gagnvart Li'ian og
færir henni dýrmæta eyrnalokka að
gjöf, en Eva hefur sett sér að eiga
nótitna með Gustav Lange, f þeirri
von að sér megi takast að gleyma
Einari. En ástin fer sínar eigin
götur, eins og allir vita ...
Lilian gekk hægum skrefum niður
stigaþrepin. Þetta skildi hún alls ekki.
Gustav hafði þvertekið fyrir að hann
gæti komið i kvöld. Og nú var hann
16 VIKAN
kominn — í fylgd með Evu meira
að segja. Gat það átt sér stað að
hann .. . og Eva? Nei, það var með
öllu útilokað. Og nú skildi hún hann.
Hann hugðist vitanlega gera hana
afbrýðisama. Hún brosti. Bndur-
heimti öryggi sitt. Hann skyldi svo
sannarlega ekki geta hrósað sér af að
honum hefði tekizt það. Hún mundi
sjá um það.
— Halló, Lilian, kallaði Eva. Eg
hef samvizkubit af því að ég skuli
ekki koma fyrr. Þú hefur kannski
þurft á hjálp minni að halda, en ég
hitti Gustav, og við gengum saman
lengstan hluta leiðarinnar.
— Það gerði ekkert til, góða min.
öllum undirbúningi er þegar lokið.
Sæll, Gustav — og innilega velkom-
inn ...
Lilian brosti, blítt og áhyggjulaust.
Hún þóttist geta lesið svip Evu eins
og opna bók.
Gustav tók kveðju hennar dálitið
fálega. Og allt í einu kom hann auga
á gimsteinamenin í eyrum Lilian.
— Eru þau ekki dásamleg, spurði
Lilian ögrandi, þegar hún sá hve
undrandi hann varð. En svona er það
að eiga mann, sem færir konu sinni
Jónsmessugjafir . . .
Hún smeygði hendinni undir arm
eigínmanni sínum og brosti eins og
einungis glöð og hamingjusöm eigin-
kona getur brosáð. Einar reyndi líka
að brosa, en honum fannst sjálfum
sem það væri ekki annað en gretta.
Honum hafði orðið litið á Evu. Og
hún hafði fölnað við augnatillit hans
og snúið sér undan.
— Jú, þetta eru fallegir skartgrip-
ir. Þeir hijóta að hafa kostað skild-
inginn sinn, svaraði Gustav. Það var
ekki laust við að nokkurrar illgirni
gætti i rödd hans. Hefurðu nokkurn
tima séð svo falleg eyrnamen, EVa?
Eva varð að líta á menin og láta
i ljós aðdáun sina. Einar fór nærri
um hugsanir hennar þessa stundina,
og nú sá hann eftir því, að hann skyldi
ekki hafa látið það bíða þangað til
seinna um kvöldið að afhenda Lilian
gjöfina.
— Eigum við ekki að fara að horfa
á brennuna? spurði hann hraðmæltur.
Hans og Gréta eru komin og bíða úti
i garðinum. En hvar er Súsanna litla?
Eva og Gustav héldu hópinn allt
kvöldið. Þau stigu saman dansinn við
bálið. Eva þrýsti sér fast að honum
og hann svaraði. Þetta var hennar
eina björgunarvon.
-—• Ég hef ekki dansað við brennu
síðan ég var strákur, sagði Gustav
og brosti til hennar. Þú getur leitt
mig út í hvað sem er, bætti hann við
og leit fast í augu henni.
E*va endurgalt honum bæði brosið
og augnatillitið, en var þó að gráti
komin. Hún gætti Þess vandlega að
líta ekki í áttina að langborðinu, þar
sem nokkrir af gestunum sátu og
nutu framborinna veitinga. En hún
varð þess vör að Gustav laumaðist
tii að hvarfla þangað augum við og
við. Hún fann líka, að Það var sem
hann hrykki við í hvert skipti sem
þau heyrðu Lilian hlæja sinum silfur-
skæra hlátri — en Lilian virtist ó-
venjulega hláturmild í kvöld. Hún sat
við hlið Einari og geislar kvöldsólar-
innar sindruðu og tindruðu á gim-
steinunum í eyrnamenum hennar.
Hún yfirgaf Einar ekki andartak og
hvorugt þeirra tók þátt í dansinum
við bálið. Gústav svaraði ástleitni hins
mjúka og heita iíkama Evu eins og
annars hugar. Honum fannst sem
væri hann að kafna — það hlaut að
vera vegna hitans frá brennuhni.
— Finnst þér nú ekki, að ég eigi
það skilið að fá mér svolitla hress-
ingu, spurði hann. Við erum orðin
hvíldarþurfi bæði tvö.
Eva gat ekki mælt honum í mót.
Þau leiddust að langborðinu.
— Jæja, hafið þið loksins fengið
ykkur fullsödd á því að brokka og
hoppa í hitasvækjunni frá brennunni,
spurði Hans Bertilsen og brosti, en
ekki var laust við að nokkurrar öf-
undar gætti í röddinni.
Eins og vant var, fannst honum
sem sér væri ofaukið og allir gengu
framhjá sér. Lilian hafði semsé ekki
gert svo mikið sem líta á hann allt
kvöldið. Jafnvel Gréta virtist ekki
hafa minnstu hugmynd um tilveru
hans. Honum gramdist, að hún skyldi
ekki einu sinni hafa svarað henni,
þegar hún spurði, hvort hann vildi
koma með í dansinn, fyrir bragðið gat
hann ekki talið sér trú um að hann
yrði að líða þetta allt að ósekju. Þeg-
ar hann hafði svo allt í einu gripizt
Þeirri löngun að sýna þeim hinum,
að hann væri ekki eins einmana og
hann virtist, og ekki nauðbeygður að
sitja einn þarna við langborðið, og
kallaði á hana, þá hafði hún látið
sem hún heyrði það ekki. Og hann
var of stoltur til þess að kalla aftur.
Þetta hefði svo sem verið í lagi, ef
hann hefði ekki unnið til þess.
Súsanna var farin að verða syfjuð.
Þegar heim skyldi haldið, bar EVa
hana nokkurn spöl. Gustav gekk við
hlið henni og vildi hvíla hana, en
þegar hann ætlaði að taka Súsönnu
í fang sér, fór hún að skæla, streitt-
ist á móti og tók um hálsinn á Evu.
Þegar heim undir kom, var tími
til þess kominn að hafa fataskipti
fyrir veizluna og dansinn í garðinum.
Lilian rétti fram höndina og hugðist
leiða Súsönnu það sem eftir var.
— Komdu Súsanna, sagði hún.
Rödd hennar var skipandi.
— Nei, nei, kjökraði telpan. Eva
frænka á að hátta mig og segja mér
sögur svo ég sofni.
— Ekki neinn mótþróa, Súsanna.
Eva frænka hefur aldrei stundlegan
frið fyrir þér. Hún getur þreytzt eins
og aðrir, skilurðu, sagði Lilian.
— Jæja, fyrst þú vilt leggja það á
þig. Og Lilian yppti öxlum. Fegin
er ég.
EVA bar Súsönnu heim garðstíg-
inn, milli trjánna. Það var styttri
leið en heim akbrautina, með Þeim
hinum.