Vikan - 12.07.1962, Page 21
lest, sáu þeir, sem i brúnni voru ekki feröalag Skafta og höföu
enga hugmynd um það, sem var að gerast. Svo mikill var veður-
ofsinn.
Sunnudagurinn rann upp, og veðrið náði hámarki. Enginn okkar
hafði kynnzt öðrum eins hamförum náttúrunnar. Auðvitað var
reynt að halda skipinu upp i sjóina og vindinn, en s.jórinn reið
yfir úr öllum áttum. Þennan dag mun mastrið aldrei hafa sézt úr
brúnni, enda þótt ekki væri langt í það, vart meira en seilingar-
fjarlægð. Svo mikið var sjórokið og isingin á brúargluggunum.
Um eða rétt eftir liádegi skeði það, að háseti einn, Sigurgeir
Sigurjónsson frá Kringlu i Grimsnesi, reyndi að komast upp í
brúna. Hljóp hann beint af augum aftur eftir lestarhlerunum, upp
á spiiið og komst alla leið. Hann hefur eflaust ekki gert sér grein
fyrir þvi hversu fáránleg fífldirfska þetta var. Það er sama hve
oft þetta hefði verið reynt aftur þennan dag, aldrei hefði það
tekizt.
Vélstjórinn okkar, sem var enskur, stóð sig afburðavel. Hann
kvikaði ekki frá vélinni meðan veðrið var sem verst, en annar
vélstjóri og kyndari höfðu sig lítið í frammi. Eitthvað mun enski
skipstjórinn hafa hjálpað til við kyndinguna. Útgerðarfélagið. laun-
aði vélstjóranum fyrir verk sitt að verðleikum, þegar til Englands
kom. Sagði mér maður, sem fór utan með skipinu, að vélstjórinn
hefði verið gerður að eftirlitsrnanni með viðgerðum á skipum fé-
lagsins. Englendingar kunna vel að meta það, sem vel er gert, en
íslendingar gleyma þvi stundum og þvi miður of oft.
Ég spurði þennan vélstjóra einu sinni að þvi hvað vélin færi
marga snúninga með eim á toppi og útopnað sem kallað er, og
kvað hann það vera 114 snúninga á minútu, en 112 snúninga hefði
hún farið i veðrinu mikla. Aðeins tveir snúningar í viðbót, og
skipið hættir að draga veðrið. Við, sem höfum verið á sjó, vitum
hvað það þýðir.
Á mánudagsmorgni var farið að lygna, og var þá farið afS leita
fyrir sér livar við myndum vera staddir eftir öll ósköpin. Lóðað
var, en enginn botn fannst, og var þá haldið til lands, og komið
inn á Dýrafjörð og lagzt við bryggju á Þingeyri. Þegar við litum
skipið frá bryggjunni, brá okkur i brún, sáum eiginlega litið
Framhald á bls. 37.
Frásögn Bjarna Haraldssonar segla-
saumara frá Halaveðrinu og leitinni að
togurunum tveim. sem í því fórust.
Skráð af blaðamanni Vikunnar.
Bjarni Haraldsson.
heppni, annar togaranna sem fórst í Halaveðrinu.
Togarinn Leifur