Vikan - 12.07.1962, Síða 40
Valid er auduelt
begar varan er góð
H F. BRJOSTSYKURGERÐIN NÓI
fullu yfir þeltn allt saman....
. .SíSari drajumur þinn bendir
til ferðalaga, þar sem þig dreym-
ir ferðamiða. Dansleikurinn er
ekki yott tákn þarna, þar sem
þú uarst nokkuð miður þin og
þykir slíkur draumur venjulega,
benda til slæmra frétta af fjöl-
skyldunni.
Kæri draumráðningamaður.
Ég get ekki stillt mig um að skrifa
þér draum sem mig (íreymdi fyrir
stuttu. Mig dreymir á hverri nóttu.
Maðurinn minn er svo steinhissa
yfir öllum þessum draumum hjá
40 VIKAN
mér, en hann dreymir svona einu
sinni í mánuði. Er ekki vont fyrir
mann að dreyma svona mikið eins og
mig dreymir. Iivilist maður eins
vel og þeir sem sofa draumlausum
svefni. Ég er stundum heilan dag
og lengur að jafna mig ef mig
dreymir ljótan (Iraum. Má ég skjóta
hérna inn i stuttum drauin sem
mig dreymdi nýlega. Mig dreymdi
fullorðna konu, sem er dáin. Ég
sá hana niðri í kistunni. Mér fannst
kistan vera sprengd upp. Það eru
tvö ár síðan þessi kona dó, og mér
fannst það líka í draumnum. Líkið
var farið að láta dálitið á sjá en
liún var hvít í andliti og lá með
höfuðið til hliðar. Þessi kona hét
Guðrún, og unnum við saman fyr-
ir nokkrum árum og vorum góðar
kunningjakonur. Ég vona að þessi
draumur sé ekki fyrir vondu. En
aðaldraumurinn er þannig:
Mér fannst ég og móðir mín koma
inn í stóran matsal, við ætluðum
að fá okkur snæðing, en þar var
allt þéttskipað. Mér fannst við
labba gegn um þennan sal og kom-
um að hurð, sem var lokuð, en það
var lúga á henni og okkur fannst
að við yrðum að skriða gegn um
lúguna til þess að komast í anuan
sal, sem var þar fyrir innan. Og
við gerðum það, en það var hálf
erfitt því lúgan var svo þröng. En
við komumst þó og þar fyrir inn-
an var sæti, og man ég að við feng-
um okkur að borða, kjöt og súpu
á eftir. Svo fórum við að hugsa um,
hvernig við kaemumst út aftur, það
var þá smekklás á hurðinni og
vaknaði ég við það að við ætluð-
um okkur að opna hurðina, til þess
að sleppa við þröngu lúguna. Ég
vonast til að fá svör svona við tæki-
færi. Ég bý mig alveg undir bað að
bíða eitthvað, engin hæ'tta á að
svörin fari fram hjá mér.
Með fyrirfram þakklæti.
Sjómannskona, 28 ára.
Svar til Sjómunnskonu:
Ekkert er athugavert við það
að dreyma, þó manni finnist að
draumurnir standi a.lla nóttina.
Þetta er i lang flestum tilfellum
tákn töluverðs andlegs þroska.
Hins vegar er í flestum tilfellum
heppilegra upp á hvíldina að
sofa draumlaust, sem kalla,ð er
og hvíla algjörlega í skauti and-
ans eða föðurins, eins og það
var nefnt hér áður fyrr. Það
eru hins vegar fáir, sem hafa
vald á draumum sínum og þar
sem þú gefur til kynna að þig
dreymi drauma, sem þér finnst
óæskilegir þá vildi ég benda þér
á að ágœtt hefur reynst að hug-
leiða eitthvað fagurt, rétt áður
en fólk sofnar, svo sem eins og
blóm eða, lesa eitthvert fagurt
kvæði, af þeim er nóg hér á ís-
landi. Hugurinn þarf að tengjast
einhverju háleitu og fögru. Mjög
margir nola fögur blóm l. d. sól-
ey eða þá að imynda sér að ma,ð-
ur sé á gangi meðal fagurlitaðra
blóma, undir skínandi sól þar
scm eklcert ský sér á himni. Ef
þú æfir þessa aðferð þá þarftu
ekki a.ð kviða slæmum draumum
í framtíðinni.
Líkkistan i þessum draumi
mun vera tákn eihvers gamals,
sem kemur upp og veldur þér
óþægindum. Annars er það yfir-
leilt lalið fyrir góðu að dreynm
likkistur, sérstaklega ef maður
liggur sjálfur i þeim.
Hrynjandinn í siðafi draumn-
um er að eftir nokkra erfiðleika
munirðu ná settu marki þrátt
tV'ir ýmSar hindranir og erfið-
ieika.
Kæri draumráðandi.
Mig langar til að biðja þig að
ráða fyrir mig draum sem mig
dreymdi fyrir stuttu. Mér fannst
ég vera að skoða þrjár myndir af
mér og voru það litmyndir. Grunn-
urinn á þeim öllum var hárauður
en sérstaklega fannst mér ein
myndin góð. Á henni var ég með
mikið fallegt Ijósrautt hár (en ég
er dökkhærð). Þótti mér verst að
eiga ekki nema eitt eintak af
myndinni.
Með fyrirfram þökk fyrir ráðn-
inguna. A. J.
Svar til A. J.:
Draumur þessi er ábending
um útlit þitt í sambandi við
þrjú ástarævintýri, sem þú munt
lenda i yfir ævina. Hinn rauði
grunnur er táknlitur ástarinn-
ar og hinar þrjár myndir munu
vera bending um velgengni þina
á þrem mismunandi stigum lífs
þins og er sá kaflinn betzur, sem
er í sajnræmi við myndina, sem
þú varst Ijóshærð á.