Vikan - 19.07.1962, Qupperneq 13
^ <• í
:
Halldór Eiríksson bílstjóri kominn á bak fyrir utan Fáks-húsin.
Tak hnakk þinn og hest
ReiSskjóti (góSur, fulltaminn hestur)
kr. 8—12.000
Reiðver (hnakkur, beizli
og svipa) ............... — 6.300
Fóðrun, hirðing og hag-
beit .................... — 4.000
Reiðstígvél, reiðbuxur og
fleira .................. — 2.000
Samtals kr. 20—24.3IK)
Við þessnr tölur skaðar ekki að hafa
i huga, að hestar hafa gengið kaupum
og sölum fyrir 5000 til 25.000 krónur
undanfarin ár. Ekki mun þó vera fjarri
lagi að reikna meðalverð vekringanna
frá 8.000 til 12.000 krónur.
Nærri lætur, að ful komið reiðver
kosti um eða yfir kr. 6.000.
Hér er reiknað með, að éigandinn
verði að kaupa allt fóður og samuleið-
is hirðingu, hagbeit, járningar o. s. frv.
(til dæmis hjá Fáki). Þeir, sem hafa að-
stöðu til þess að sinna hestum sínum
sjálfir, geta oftlega lækkað kostnað-
inn verulega og komizt allt niður i kr.
1.000 á hvern hest. í þéttbýlinu hafa
saint fáir slíkar úrvals aðstæður.
Hjónin, Anna Oddsdóttir og Friðjón
Stephensen eru meðal hinna mörgu,
sem heillazt hafa af hestamennskunni.
HESTAMENNSKA
Ragnar T. Árnason kennir einum syni sínum listina.
Hestamaðurinn segir:
Ragnar T. Árnason, útvarpsþulur.
Frá því að ég var smástrákur hcf ég haft mik-ið yndi af góðum peiðhestum og
gerðist snemma fylgisveinn og túikur erlendra férðamanna, sem leigðu sér
hesta til stuttra ferða í nágrenni Reykjavikur. Aðallega gerði ég þetta til þess
að komast á hestbak.
Á þeim tuttugu árum, sem ég hef átt hesta, hef ég átt þess kost að ferðasti
mikið um landið, svo sem norður Sprengisand og suður Kjöl — og ótal ferðir
i Borgarfjörð, vestur í Dali og víðar, og eru þær ferðir ógleymanlegar. Eins
er ég vissi um, að maður kynnist betur landi og þjóð með því að fara riðandi
um sveitir, heldur en akandi í bil.
Ég fer á hverju ári með fjölskylduna í ferðalög, og eru þá allir velriðandi,
t. d. var elzti strákurinn minn ekki nema sjö ára, þegar ég fór fyrst með hann
upp í Borgarfjörð, og liafði hann þrjá til reiðar.
Ég ef oft orðið var við þann misskilning ókunnugra, að erfitt sé að eiga
hesta í Reykjavík, vegna þess hve óhægt sé um vik að ferðast um nágrennið
vegna bifreiðaumferðar, en þetta er alger misskilningur. Ótrúlega víða er hægt
að fara fáfarnar leiðir um nágrenni borgarinnar, og það meira að segja leiðir,
sem helzt minna á óbyggðir. Þetta er nú reyndar orðið mörgum ljóst, og sann-
ast það á því, hve margir bætast stöðugt i hóp hestamanna höfuðborgarinnar.
Sem sport álít ég hestamennskuna m. a. hafa það fram yfir flestar aðrar úti-
iþróttir, að hana er hægt að stunda allt árið um kring, ekki sízt að vetri til,
þegar hestarnir eru nærtækir.
Á alþingisliátíðinni 1930 fékk ég auðvitað frí úr vinnunni eins og allir aðrir
og ætlaði að bregða mér á hestbak. Ég var þá sendisveinn í verzlun. Ég labbaði
mig til Hesta-Manga með 5 krónur i hendinni og leigði mér hest. Iiesta-Mangi
Framhald á bls. 43.
VIKAN 13