Vikan - 19.07.1962, Qupperneq 25
Illllll
: :
FLOS
Það er ekki nauðsynlegt að
hafa vefstól til þess að búa til
„flos“-mottu. Hér er sýnd ein-
föld en nokkuð seinunnin aðferð.
Efni: Grófur gólfmottustrammi,
gróft ullargarn, sem hæfir
strammanum og nál til þess að
hnýta með. Auðvellt er að telja
út í strammann hvaða kross-
saumsmynztur sem er og velja
liti eflir 'því. En óregluleg, rönd-
ótt, eða beklcjótt mynztur hnýtt
úr sauðalitunum fara örugglega
mjög vel við öll nýrri húsgögn.
Byrjið á að ákveða hæð „flos-
ins“.
Mynd A sýnir hvernig garninu
er vafið um hlut sem hefur þann
gildleika að niðurklippt garnið,
gefi hæfilega hæð „flosins“.
Sjálfsagt er að klippa niður að-
eins fáeina þræði til að byrja
með, bera saman og finna út
æskilega hæð.
Myndir B og C sýna aðferðina
við að hnýta hnútinn i 4 áföng-
um. Myndin þarfnast ekki skýr-
Framhald á bls. 41.
iailSlíli:
______JfillilfillliS
l||!a|^[[il!a|[|[li[ii[l _
iliiai!
iWÉlWjliBBIilllBlri
iÉK-lMlPÍffííSlill
Dúkur
Hér er sýndur dúkur með ó-
venju stílhreinu og failegu
mynztri.
Efni: 100x100 cm af fíngerðum
herpisaumshör, 2 Iiankir af
dökkgrænu og 1 hönk af ljós-
grænu jurtalituðu bómullargarni,
javanál, sem hentar grófleika
efnis og garns.
Saumið með tvöföldu garninu
og þræðið það þannig á nálina,
að tveir endarnir gangi í gegn um
augað, en þráðurinn, þar, sem
liann brýzt tvöfaldur, saumist
fyrst í efnið. Er þetta gert til þess
að allar ójöfnur, sem myndast
við að sauma með tvöföldum
þræði, gangi jafnóðum út um
nálaraugað.
Mynzturstjörnurnar eru saum-
aðar með löngum sporum, sem
ná yfir 8 þræði og stuttum, sem
ná yfir 2 þræði.
Stjörnurnar eru saumaðar með
dökkgræna garninu, en skáspor-
Framhald á bls. 42.
VIKAN 25