Vikan


Vikan - 19.07.1962, Page 42

Vikan - 19.07.1962, Page 42
Dúkur Framh. af bls. 25. in út frá beim með því ljósa. Athugið vel skýringarmyndina. Þrjár efri nálateikningarnar sýna hvernig saumað er til hægri, en þrjár neðri hvernig saumað er til vinstri. Takið nú dúkefnið, finnið miðju þess og merkið. Mælið 15 cm frá miðju á 4 vegu og merkið, þann- ig niyndast ferhyrningur, sem mynztrið situr á. Nauðsynlegt er að telja út fyrstu stjörnuröðina. Gjarnan má fjölga eða fækka stjörnum og hreyta þann- ig stærð ferhyrningsins. Byrjið að sauma á miðri fernings- h!ið og saumið 5 stjörnur til hægri og 5 til vinstri, síðan frá livoru horni 10 stjörnur og þannig áfram þar tií stjörnurnar mynda ferhyrn- ing. Gengið er frá dúknum með gata- faldi (hullfaldi). Brjótið fyrst % cm inn á röngu og síðan 2 cm, mæ ið og þræðið. Nauðsynlcgt er,, að faldurinn sé þráðréttur. Ivlippið undan hornun- um, svo þau verði ekki of þykk. ★ Tækniþáttur Framh. af bls. 3. gamalt af nýyrði að vera, en hefur aldrei náð almennri hylli, þótt það fari vel í murini. Kannski er or- sökin sú, að merking þess er óeigin- leg — „diktafónninn“ getur að vísu varðveitt hljóðin og skilað þeim aftur, en hann ritar þau ekki niður i bókstaflegri merkingu. Það gerir þessi „hljóðriti" aftur á móti. Maðurinn talar inn í hljóð- nema, en „rafeindaheilafrumurnar“, sem sjá má á veggnum, skilgreina hljóðin og breyta þeim í bókstafi, sem ritvélin skráir siðan á pappírs- örkina í formi orða og setninga. Hljóðriti þessi vinnur, þótt flókinn sé að gerð, ákaflega hratt — hefur fyllilega við, þótt mjög hratt sé les- ið. Aðalgallinn er sá, að hann er bæði dýr og fyrirferðarmikill — aðallega fyrir rafeindakerfið — enn sem komið er, en talið er að hann verði mun einfaldari að sama skapi og hann fullkomnast. Og svo hefur hann auðvitað enn einn galla ... hann útrýmir vélritunarstúlkunum smám saman, en þess mun þó enn nokkur bið. ★ t----------------------------------------------- Blóm á heimilinu: jSólelshðr skrautplóntur í sólskúlanu eftir Paul V. Michelsen. í síðustu grein sagðist ég myndi nefna nokkrar plöntur, sem þola sól, og vil ég þá fyrst nefna þá fegurstu, að mínu á- liti, og eina þá beztu klifur- plöntu, sem völ er á: Bouagin- villea glabra, en hún getur blómstrað allt að tíu mánuði ársins, og hvert blóm á að standa minnst 3 mánuði, svo að maður getur rétt ímyndað sér, að eftir sumarið er komið mikið blóm- skrúð. Bouaginvillea eða þrí- burablóm er til hér í 4 litum (afbrigðum): rautt, gulbrúnt, ljóslilla og dökklilla, sem er nýjast og fegurst. Hörpulauf, Vinca major, í tveim afbrigðum, er góð hengi- planta, sem þolir vel sólina og er sérlega falleg, getur blómstr- að bláum blómum. Þegar planta á í beðin með- fram glerveggjunum, má ekki gleyma „Havairósunum“. Þær ættu að geta orðið mjög grózku- miklar á slíkum stað, og hlóinstra hundruðum blóma. Blaðskrúðið er lika m'ikið og fallegt, og fást þær i mörgum litum. Þá mætti og nefna ýinis rósa- afbrigði, bæði „búketrósir“ i mörgum litum og ofkrýndar rósir með ilmandi blómum, einn- ig i mörgum litum og gerðum. Nú eru t. d. fáanleg mörg af- brigði í áður óþekktum litum, mjög fagrar og nokkrar sem standa í margar vikur í blóma. Þá eru það kaktusarnir og þykkblöðungarnir, að ógleymdri okkar gömlu og góðu plöntu, tannhvössu tengdamömmunni, sem allar þola mikla sól, og ekki eru mjög kröfuharðar um áburð né aðra hirðingu. Einnig 12—15 tegundir af Croton, hver annarri fallegri, sem myndu prýða blómabeðin, með öllum sinum fögru litum, og eru mjög sterkar og endingargóðar. Þá má og fylla upp með allskonar sumarblóm- um, s. sem: Dahlium, Tagetis, Petunium og mörgum fleirum, sem blómstra rikulega allt sum- arið. Þær plöntur, sem hér hafa verið nefndar eru auðvitað ekki nema litið brot af öllum þeim sæg plantna, sein til greina koma í svona skála, en eins og gefur að skilja, er ekki hægt að nefna allt í litlum greinarstúf. Að lokum vildi ég bera fram þá ósk, að sem flestir ættu þess kost, að koma upp hjá sér slikum „vetrargarði“, þvi með góðri hirðu eru þeir hinir yndisleg- ustu verustaðir, allt árið um kring. Gef mér líka! Svuiia, .wuna, ungfrú góð. Ekki svona mikið í einu! Sjáðu bara hvernig mamina fer að: Lítið á einu sinni oftar. Kn þú hefur rétt fyrir þér — maður byrjar aldrei of snemma á réttri húð- snyrtingu. Mamma þin hefir líka frá æsku haft þessa reglu: Nivea daglega. Gott er að til er N IV E A ! Nivea inniheldar Euee- rit.— efni skylt húðfil- unni — frá þvi stafa liin gúðu áhrif þess Bifreiðaskoðun Framli. af bls. 7. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR: Vélin er 4 strokka, 4 gengis topp- ventlavél, 02 hö við 4300 sn/m. Vatnskæld og. slaðsett framan i bílnum. Gírkassi: 3 gírar áfram, allir syncroniseraðir. Ralkerfi 6 volta. Breidd 1.63 og þyngd 975 kg. Hjólbarðastærð 6.40x13. Verð með miðstöð er kr. 175.820.00. Umboð: S.Í.S., véladeild. Gangverð á sams konar notuðum bil árgerð 1961 ca 160 þús. — Ár- gerð 1960 ca 150 þús. — Árgerð 1958 ca 110—115 þús. kr. * Læknirinn . . . Framh. af bls. 17. Ilann dró vindlakveikjarann upp úr vasa sínum og kveikti á honum, kraup á kné og lýsti milli stráanna. — Vertu bara róleg, sagði hann. Eg skal finna gripinn .... hætti ekki fyrr en ég hef hendur á honum. — Þú veizt áreiðanlega ekki hve mikinn greiða þú gerir mér, sagði hún og lagðist á hnén við hlið hon- um. —: Gættu þín, þú óhreinkar kjólinn, sagði hann aðvarandi. En hún virtist ekki taka það til greina. Loks fannst Hans Bertilsen sem hamingjuhjólið hefði snúizt sér j vil. Það var ekki einungis að honum byð- ist tækifæri til að gera Lilian greiða, heldur hafði hann aldrei verið henni eins nálægur og nú. Þau snertust hvað eftir annað, hendur þeirra og axlir og hann fann ilmvatnsanganina af henni leika sér um vit. 1 daufri skímunni frá kveikjaranum naut feg- urð hennar sín jafnvel enn betur en í fullri birtu. Honum stóð á sama, hve lengi leitin kynni að vara, hugsaði hann með sér, en sá í sömu svifum leiftra á eitthvað í grasinu. Hann hélt eyrnalokknum milli fingra sér, sigri hrósandi. —- Almáttugur, hvað ég er glöð, hrópaði Lilian. Þúsund þakkir, kæri Hans. Hann hjálpaði henni að rísa á fæt- ur. Hún reyndi að skrúfa lokkinn i eyrnasnepilinn, en hendur hennar titruðu. — Ég er orðin þvi svo óvön að ganga með eyrnalokka, sagði hún af- sakandi. — Leyfðu mér að reyna .... í fundarlaun .... ÞETTA átti að vera glettni, en hún heyrði annarlegan hreim í rödd hans, eins og af innibirgðri æsingu. — Ertu viss um að þú getir það, sagði hún og laut að barmi hans, svo honum veittist auðveldara að hafa tak á eyrnasneplinum. Oftar en einu sinni hafði hún orðið þess ótvírætt vör að hann dáðist að henni, en aldrei haft neinn áhuga á að komast að raun um hve djúpstæð sú tilfinning kynni að vera. Ekki heldur nú í nótt, en þó var eins og það veitti henni nokkrar sárabætur eftir þá framkomu, sem hún hafði orðið að þola af hálfu þeirra Einars og Gustavs. Hann fann mjúkan og heitan 42 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.