Vikan


Vikan - 09.08.1962, Síða 20

Vikan - 09.08.1962, Síða 20
Áður fyrr voru loftleiðir aðeins meðfæri guða og disa, er fóru með himinskautum. En nú er þetta breytt. Afa okkar os ömmu hefði ekki þótt trúlegar ferðasögur niðja sinna nú á tíð, og mér er sem ég sjái frainan í hana ömmu mína sálugu, ef ég hefði sagt við hana i byrjun maí 1909: „Eftir nákvæmlega fimm- tíu ár verð ég staddur á skipi tíu þúsund fet uppi í loftinu iiérna beint yfir Þverfelli.“ Ég er alveg viss um, að hún hefði signt sig og beðið Guð sinn að hjálpa okkur báðum. — Nú er það orðið ósköp hversdagslegt að sigla yfir Þverfell i tíu þúsund feta hæð. En við fullorðnu mennirnir, sem fæddir erum fyrir þúsund árum, finnum eigi að síður töfra ævintýrisins á slikri siglingu. Það var óneitanlega ævintýralegt, en jafn- framt mjög þægilegt að sigla á einni af hinum vængjuðu skútum LOFTLEIRA upp úr regn- skýjum Reykjvíkur í þrettán þúsund feta hæð og lialda suður á bóginn til móts við vorið. Skútan fór vel í lofthafinu, likt og á lygnu vatni, og öll þjónusta urn horð var með af- brigðum góð. Til reiðu var matur og drykkur af bezta tagi, en út um gluggann sás.t yfir nýstárlegt landslag: snjóhvít skýjafjöll með pastelbláum dölum og róslitri tindaröð úti 20 VIKAN við sjónhring. Stöku sinnum blasti við hyl- dýpisgjá með dökkum bolni, hvítrákuðum: liafið niðri á jörðinni. Og áður en varði, grillti í þorj) undir grænni hæð við blá'a vík -— við vorum komin til Skotlands. Við áðum um stund i Glasgow, en síðan var haldið áfram. Hvít sumarský yfir vorgrænu, þéfttbyggðu landi, og svo tytltum við okkur niður á flugvöllinn utan við Lundúnaborg. Allt ferðalagið hafði ekki tekið lengri tíma en að skrölta með rútu frá Reylcjavík upp að Fornahvammi. Við tiöfðum pantað herbergi á Regent Palace Hotel, og ])ar var okkur tekið svo þægilega, að ég kunni naumast við það í fýrstunni. Þegar maður hefur um aldarfjórðungs skeið vanizt islenzkri gistihúsamenningu, liggur við, að máður fari Jijá sér og vtírði spéhræddúr, þegar komið er á stikan stað, þar sem reynt er að gera manni allt lil geðs og þjónkunar sem hægt er. Þrátt fyrir gífurlega gestaþröng var engu tíkara en að altir hefðu verið að bíða einmitt eftir okkur; töskur og pinklar þrifin af kátum og skemmtilegum burðar- karli, allír brosaudi og elskulegir, og okkur fylgt til herbergis af liðlegum manni, sem gaf okkur allar upplýsingar, er við ])urftum á.að hatda, og bað okkur btessuð að spara ekki hótelfólkinu neitt það ómak, er okkur gæti að gagni komið. Herbergið var gott og þægilegt, með síma, útvarpi og sjónvarpi — hið síðast- nefnda kostaði þó einhvern aukaskilding ■— og morgunmatinn gátum við fengið í rúmið, ef við vildum, enskan morgunverð, sem er raunveruleg undirstöðumáltið. Ekki fær maður húsnæðið ókeypis frekar liér en á íslandi, en þetta er fremur ódýrt hótel, eftir þvi sem gerist i London, kostaði þó rúma sextíu skildinga fyrir okkur bæði eða tæpar fjögur hundruð krónur á sólarhring. Það kann að þykja dýrt miðað við gildi istenzkra pen- inga, cn hér talið mjög skikkanlegt ver.ð. Þar eð við urðum að dveljast þarna nokkra daga, gerðumst við brátt kunnug og heima- vön á staðnum. Eins og í öðrum stórhótelum er liægt að fá þar hvers konar þjónustu, sem um er að ræða: rakstur og klippingu fyrir herrana, lagningu lianda dömunum, alls konar aðstoð, svo sem að ná í leikhúsmiða, nudda sára fætur og fá verðmæta liluti geymda. Þá er hægt að fá upplýsingar um þvínær alla hluti í Bretaveldi; í kjallaranuin er bjórstofa, bar og kaffisalur, sérstakt reykiugaherbergi — þótt rnaður megi reyndar reykja nálega Iivar sem er annars staðar — og au.ðvitað

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.