Vikan - 09.08.1962, Blaðsíða 43
auki eru þrír dauðadæmdir menn
hérna í klefanum. Ég er að halda,
að nærvera mín liérna geti orðið
þeim nokkur styrkur, þegar stundin
kemur“.
„En ég hélt, að allir, sem dæmdir
væru til dauða, væru skotnir á
stundinni".
„Jú, venjulega er það svo, en það
eru alltaf til undantekningar. Hér
eru t.d. yfirheyrslur aila 24 klukku-
tímana í sólarhringnum. Allir eru
yfirheyrðir. Nú, þrátt fyrir það hef-
ur hann Tchéco þarna dúsað hér í
fjórtán mánuði. Aðalreglan er þó sú,
að unglingar undir sextán ára aldri
cru ekki sendir í G-2. Þó höfum við
nú hérna l'immtán ára strák. Bróðir
hans, sem er þrettán ára, er í klefa
nr. 1, í vikunni sem leið, var hér
tólf ára drengur, sem hafði verið
tekinn fastur með pabba sinum. Fað-
ir Cilio var vissulega sérliennilegasti
maðurinn í klefanum. Hann var mað-
ur fjarskalega blátt áfram og kom
frá Minas del Frio, smáþorpi fyrir
sunnan Havana. Þegar skapið fór
með hann, sem kom alloft fyrir,
minnti tungutak hans allmikið meira
á ökuþór en Drottins þjón. Þar eð
þessi köst hans völctu jafnan kæti
mína, sneri hann reiði sinni að mér.
„Að hverju ertu að hlægja, bölv-
aður bjáninn þinn? Er það af því,
að ég tala ekki prestslega? Það er
þó nauðsynlegt að maður tali endr-
um og eins eins og maður og ég er
maður, eða hvað finnst þér? En það
get ég sagt þér, að Drottinn reiðist
ekki. Hann þekkir sína“.
Kvöld eitt tók Osvaklo yfirforingi
sér fyrir hendur, að svivirða prest-
inn með þeim afskaplegustu fúkyrð-
um, sem hann átti til og gekk það
langa stund. Þegar öskri hans loks-
ins linnti, horfði prestur á hann í
ís'kaldri ró, hrækti síðan milli fóta
hans og geklt svo þegjandi burtu yfir
að hinum veggnum í herberginu.
„Castro er heimskingi", sagði hann
svo. „Ef hann heldur áfram að kljást
við kirkjuna, verður hann settur út
af sakramentinu. Honum gengur þá
vel á eftir eða hitt þó heldur“.
Þegar einn af föngunum var sótt-
ur til aftökusveitarinnar, kraup fað-
ir Cilio á kné og tók að biðjast fyr-
ir með slíkri þrumuraust, að hávað-
inn þagnaði í hinum klefunum, sem
næstir voru. Þannig las hann langa
bænaromsu, stóð svo upp og geklc til
mín. Hann titraði af bræði.
„Hugsaðu þér, hvernig vesalings
garmurinn deyr, ekki einu sinni í
hreinni skyrtu“.
Svo sneri hann sér að einum
hinna dauðadæmdu og skipaði hon-
um með rödd sem ekki vænti neinna
mótmæla, að þvo skyrtuna sína. Það
fauk í Tchéco, sem sagði, að þetta
væri ekki ráðið til þess að halda uppi
siðferðisþrekinu.
„Þú ert vitlaus“, hrópaði prest-
ur. „Þegar liann stendur frammi fyr-
ir aftökusveitinni í hreinni skyrtu,
veitir það honum meira hugrekki
cn þú getur imyndað þér.
Meðan á þessu stóð höfðu þrír
menn tekið sig til að lireinsa gólfið.
Meðan á því stóð héngu fangarnir
i kippum utan um rúmin til þess
að þeir gætu komizt að. Jafnskjótt
og búið var að hreinsa gólfið þustu
allir niður til þess að reyna að ná
sér i þægilegt pláss. Þetta bar svo
f jótt að, að áður en ég gat áttað
mig, stóð ég einn uppréttur við súlu,
án þess að sjá nokkurn blett til þess
að setjast á, hvað þá heldur að leggj-
ast endilangur. Skórnir, sem ég var
alltaf með í hendinni, voru orðnir
þungur baggi. Ég sá loðið höfuðið
á föður Cilio, sem gægðist fram und-
an einu rúminu. IJann horfði hlægj-
andi á mig. Ég hef sjálfsagt litið
kjánalega út. Hann bauð mér að
skríða undir rúmið.
Niðurlag í næsta blaði
Kalt salat
Framhald af hls. 19.
LAXASALAT MEÐ EGGI
200 gr hvítkál, 1—2 salathöfuð, 3
harðsoðin egg, soðinn lax, grænn
pipar, sveppir, gúrkubiti, 3 tómat-
ar, vinaigrettesósa I eða II.
Skerið hvítkálið í mjög mjóar og
þunnar ræmur og rífið salathöfuðið
í litla bita. Blandið vinaigrettesós-
unni saman við. Setjið í salatskál
og leggið lax í smábitum, grænan
pipar slcorinn i liringi, sveppasneið-
ar, gúrkusneiðar og tómatstykki ofan
á. Berið strax fram.
MAKKARÓNUSALAT
200 gr stuttar makkarónur, vatn,
salt, 3 matsk. smáhakkaður laulcur,
rifinn ostur, majones, harðsoðin egg,
tómatar, persilja og ef vill tunga eða
skinka.
Sjóðið makkarónurnar í nægu salt-
vatni. Skolið úr köldu vatni og látið
renna vel af þeim og kælið. Blandið
lauknum, ostinum og majonessós-
unni saman við og raðið eggjum, tó-
mötum og persilju ofan á. Þetta má
bera með kaldri tungu eða skinku,
eða skera skinkuna í þunnar ræmur
og blanda henni saman við. Annað
kjöt má lika nota saman við þetta
salat.
CAESARSALAT
Lítið hvítlauksstykki, % bolli sal-
atolía, 1 salathöfuð, svolítið hvítkál,
1 bolli ristaðir brauðteningar, 1 dós
sardínur, 4 tómatar, 1 hrátt egg, 14
bolli appelsínusafi, salt, pipar,
Worchestershiresósa eftir smekk
(má sleppa henni), grænn eða rauð-
ur pipar.
Saxið hvítlaukinn og látið hann
liggja í olíunni um stund. Rifið sal-
athöfuðin smátt og leggið þau í
salatskál. Skerið sardínurnar í smá-
bita og blandið þeim og tómötunum
í eggið, sem hefur verið þeytt lítil-
lega, og appelsinusafann, sem salti
og pipar. Siið hvitlaukinn frá oli-
unni og bætið lienni í. Ilellið þessu
yfir salatið og brauðteningana.
Skreytið með tómat og skornum pip-
arnum. Berið fram strax.
CHEFS SALAT
150—200 gr soðin skinka, 150 gr
soðin tunga, 3 harðsoðin egg, 3—4
tómatar, 3—4 soðnar gulrætur,
gúrkubiti, hálfdós af grænum baun-
um, 2 salathöfuð, vinaigrettesósa og
hvítlaukur ef vill.
Skerið kjötið og allt grænmetið og
eggin í bita og sneiðar. Látið renna
vel af baununum. Þvoið salatið vel
og nuddið skálina með hvitlauk.
Hellið vinaigrettesósunni yfir allt
nema salatblöðin, og látið standa
um stund, en bætið salatblöðunum
í síðast, rifnum í smástykki, og ber-
ið strax fram.
RJÓMASALAT
Sú eina tegund salatsósu, sem hef-
ur náð verulegum vinsældum hér á
landi, er súr eða sýrður rjómi. Rjóm-
inn er þá venjulega þeyttur og sýrð-
ur með ediki eða sítrónu. Salatblöð-
um, gúrkusneiðum og tómötum er
velt upp úr rjómanum. Fleira græn-
meti má nota í þannig salat, bæði
smáskorið blómkál, livitkál og rifn-
ar gulrætur.
ÁVAXTASALAT
Nota má smurost sem salatsósu á
ávaxtasalat og hræra hann út t.d.
með sítrónusafa eða anasassafa. %
kg smurostur hrærður með ávaxta-
safa eða rjóma, epli 4—5, döðlur %
bolli, hnetur 14 bolli. Oft getur ver-
ið gott að blanda saman grænmeti
og ávöxtum, sérstaklega eru tómat-
ar, gúrka og selleri gott með alls
konar ávöxtum og er oft höfð rjóma-
blönduð majones út á slikt salat. ★
fr/stikistur fáanlegar í 2 stærðum, 150 lítra og 300 lítra.
Verð kr. I3.l00.oo og kr. I8.000.oo
VIKAN 43