Vikan - 13.02.1964, Blaðsíða 2
í fullri alvöru:
heildsolubirgðir: EGGERT KRISTJÁNSSON & CO. H.F.
Heim I
Skalholt
Skálholtsstaður liefur verið
hafinn úr niðurlægingu og nú
er hægt að sýna ferðamönnum
höfuðstað landsins í margar ald-
ir án þess að blygðast sin. Ef
til vill er ekki hægt að segja,
að Skálholt sé tignarlegur stað-
ur frá hendi náttúrunnar, en
þó hefur landslagið þar ein-
hvern sérstakan þokka sem
vandfundinn er annarsstaðar.
Ef til vill er það vegna sögunn-
ar, en mér finnst alltaf eitthvað
stórt og tilkomumikið við Skál-
holt og það jafnvel áður en end-
urreisnin hófst. Kirkjan gnæfir
yfir og ber af öðrum mannvirkj-
um staðarins svo sem vera ber.
Hörður Bjarnason hefur lagt sig
fram við þessa kirkju og hún er
að flestra dómi gott og virðu-
legt verk. Hún stendur eins og
minnismerki i ströngum og ein-
földum linum, laus við tildur og
eftirlikingar á útlendum tízku-
kirkjum.
í sumar voru haldnar guð-
þjónustur í Skálholtskirkju um
hverja helgi eftir að kirkjan var
vígð. Þar var jafnan margmenni;
fólk úr nærliggjandi sveitum,
Reykvíkingar og lengra aðkomið
fólk. Prestarnir í prófastsdæm-
inu skiptust á um messur og
æfður kirkjukór hafði veg og
vanda af söng. Þessi kirkja virð-
ist marka tímamót og hafa stuðl-
að meira að kirkjulegum áhuga
fólks en aðrar framkvæmdir,
Sjálfsagt á staðurinn sinn þátt
í því; sú helgistemming, sem
nauðsynleg er við guðsþjónust-
ur verður einmitt betur fundin
í Skálholti en viðast annars-
staðar.
Samt eru menn sífellt að bolla-
leggja, hvað frekar sé hægt að
gera við Skálholt; staðurinn
verði að hafa eitthvert prakt-
iskt gildi. Biskupinn var látinn
stinga eina skóflustungu fyrir
lýðháskóla í grenjandi mold-
roki i sumar. Enginn veit, hvort
nokkur mundi fást til að sækja
slíkan skóla, nú þegar margt
virðist byggjast á prófum og
gallhörðum einkunnum. Líklega
verður þessi lýðháskóli samt
byggður — svona út í bláinn.
Eitt sinn var talað um búnaðar-
skóla sem einhverskonar örvænt-
Framhald á bls. 45.