Vikan - 13.02.1964, Blaðsíða 20
EFTIRMÁLI VIÐ ELDGOS VIKUNNAR
MDMA
BUAST
VID
GOSI
A
REYKJANESI
Reykjanesskagi er meir eldbrunninn
en nokkur annar hluti þessa lands. Ég
ætla að engin viti hversu margar eru
þær eldstöðvar og því síður hversu
mörg þau hraun eru, sem þar hafa
brunnið frá því að jökla leysti af land-
inu.
Um hraunflákana á þessu svæði fær
maður nokkra hugmynd ef það er at-
hugað að hægðarleikur er að ganga
alla leið frá Þingvallavatni út á
Reykjanestá án þess að stíga nokkurn-
tíma af hrauni.
Fyrsta gos, sem sögur fara af á þessu
svæði er það, sem átti sér stað árið
1000 og sem getið er um í Kristnisögu.
Það gos var á Hellisheiði norð-austur
og austur af Hveradölum og eru eld-
stöðarnar vel sýnilegar hverjum þeim,
sem um Hellisheiði fer. Ekki fara sög-
ur af fleiri gosum á austanverðum
Reykjanesskaga. Þó hefur þar gosið
síðar a.m.k. tvisvar sinnum, í Eldborg
nyrðri og syðri, milli Lambafells og
Bláhnjúks, því hraun frá þeim gos-
um hafa runnið út á hraunið frá 1000.
í námunda við þær eldstöðvar hefur
áður gosið oftar en einu sinni eftir
ísöld, og þaðan er komið það hraun,
sem næst hefur komizt höfuðborginni,
en það er hraunið sem runnið hefur
út í Elliðaárvog. Samkvæmt rann-
sóknum Þorleifs Einarssonar er þetta
hraun komið úr stórum gíg er nefnist
Leitin sunnan við Ólafsskarð austan
undir Bláfjöllum. Yngri hraun þekja
þetta að mestu vestur að Draugshlíð-
um, en þaðan er auðvelt að rekja það
alla leið til sjávar. Þetta hraun hefur
verið mjög þunnfljótandi og væntan-
lega runnið hratt. Það er helluhraun
og myndar hvergi kraga það ég veit,
en í því eru gervigígir á nokkrum stöð-
um og þekktastir þeirra eru Rauðhól-
ar við Elliðavatn. Skammt ofan við
brúna yfir Elliðaár á Suðurlandsvegi
er mór undir hrauninu. Hann hefur
verið aldursákvarðaður með C14 aðferð
og reynzt vera 5300 -(- eða — 340 ára.
Vestan við Bláfjöll eru allmargir
gígir og sumir þeirra stórir. Meðal
þeirra er sá sem gerður hefur verið
hinn mesti ógnvaldur í VIKUNNI á
undanförnum vikum.
Frá eldstöðvum á þessum slóðum
hafa hraun runnið norður á Sandskeið,
milli Sandfells og Selfjalls og vestan
við Selfjall, milli þess og Heiðmerk-
ur. Á síðast nefnda svæðinu ber hraun
þetta nafnið Hólmshraun. Þarna er þó
um a.m.k. 5 mismunandi hraunstrauma
að ræða, og verða þeir nefndir Hólms-
hraun I—V hér. Hólmshraun I er þá
þeirra elzt og V yngst. Ekki hafa þessi
hraun ennþá verið rakin til einstakra
eldstöðva, og er raunar óvisst hvort
það er mögulegt, a.m.k. með öll þeirra.
Af þessum slóðum hafa þau samt kom-
ið. Engar sagnir eru til um gos á þess-
um slóðum. Hólmshraun I hefur runn-
ið út á Leitahraunið rétt austan við
Gvendarbrunna og langleiðina yfir það
þar skammt fyrir austan. Hólmshraun
II hefur einnig runnið út á það austan
við Lækjarbotna og myndar hina áber-
andi, háu hraunsbrún ofan við gamla
Lögbergsbæinn aðeins norðan við Suð-
urlandsveginn. Af þessu er ljóst að
Hólmshraunin öll eru yngri en Leita-
hraunið, en um aldur þess var áður
getið.
Samkvæmt því sem hér hefur verið
sagt hafa orðið a.m.k. 9 eldgos á aust-
anverðum Reykjanesskaga á síðastliðn-
um 5300 árum. Auk þess er Nesjahraun
í Grafningi, en það er samkvæmt
rannsóknum Kristjáns Sæmundssonar
1880 + eða + 65 ára, C14 ald-
ursákvörðun. Þar með eru gos-
in orðin 10. Milli Selfjalls og
Helgafells virðist ennfremur vera
nokkuð á annan tug mismunandi
hrauna, sem öll eru runnin eftir ís-
öld, eru þá ekki talin með áðurnefnd
fimm Hólmshraun né heldur hraun það
sem komið er úr Búrfellsgígnum, og
sem nefnt er ýmsum nöfnum, svo
sem Hafnarfjarðarhraun, Garðahraun,
Gálgahraun o.s.frv., en sem ég mun
nefna Búrfellshraun. Á þessu hrauni
stendur meginhluti Hafnarfjarðarbæj-
ar. Ekki skal nú haldið lengra vestur
skagann að sinni, en aðeins geta þess
að fjöldi hrauna og eldstöðva eru þar,
5én Jónsson jarðfræðingur.
„Það er óhætt að slá því föstu að alls engar líkur eru til
E^ess að eldgosum sé að fullu og öllu hætt á Reykjanes-
skaga. Það verður þvert á móti að teljast í fyllsta máta
líklegt, að gos muni enn verða þar... “
20 — VIKAN 7. tbl.