Vikan


Vikan - 13.02.1964, Blaðsíða 46

Vikan - 13.02.1964, Blaðsíða 46
•— Hvað veit Clare um heim- sókn þína hjá mér í dag? — Ekkert. — En hún veit að Exeter-áætl- unin er ekki annað en loft- kastali? —• Já, vitanlega. Ég vil gjarnan fá sannanir fyrir því. Ralph skellihló. — Skelfingar barn ertu, sagði hann. Vitanlega þverneitar hún — eins og hún neitaði að við værum trúlofuð. En hún getur að minnsta kosti ekki neitað undirskriftum sín- um á ávísanirnar, sem hún hef- ur greitt inn á reikning sinn fyr- ir mína hönd. Til dæmis ávísun Jocks. Þú getur auðvitað talað við hana, en þá segir hún vafa- laust Faith frá því. Hún er kona, og kvenfólki er illa við að láta afhjúpa sig. Ég hef engu að tapa þegar hún á í hlut, og mér dett- ur ekki í hug að giftast henni. Ég hef fengið nóg. Þessa síð- ustu mánuði hefur hún verið í þingum við þig, og nú er það Morgate. - Þú getur ekki gabbað mig aftur ,sagði Simon strax. — Þú notar Clare til fjárþvingunar, loks hef ég skilið það til fulls. Ef það er svo að hún sé ekkert við þetta riðin, og að þú sért að ljúga, þá . . . •—• Ég skil, ég skil — þá ætl- ar þú að fleygja mér í Ijónagröf- ina. ■— Miskunnarlaust. •—• Af því að þú elskar hana. — Láttu öll ástamál þessu óviðkomandi, sagði Simon ákaf- ur. — Ég hef önnur vopn, sagði Ralph kaldranalega. — Til dæmis? — Ég get fengið staðfestingu á frásögn einkaritara þíns um ástarævintýri ykkar Clare. Þó að Faith tryði mér ekki mundi það ekki gera henni auðveldara fyr- ir . . . Gerðu eins og þú vilt, kærðu mig fyrir lögreglunni. En ég hugsa að þú iðrist eftir það. Ég er miklu liprari lygari en þú ert. Jæja, hvað segirðu? Eigum við að gera hneykslismál úr þessu — eða láta það vera gleymt? Simon var náfölur og afmynd- aður af reiði: *—• Reyndu að hypja þig burt áður en ég sparka þér út! Railph varp öndinni. — Ég vissi að þú mundir vitkast áður en lyki. Það er merkilegt þetta með ástina . . . Þegar Ralph var kominn út að dyrunum sagði Simon hvasst: — Augnablik! Það er bezt að þetta vitnist ekki. Ég skal segja að slitnað hafi upp úr samningun- um og áð við séum hættir við fyrirtækið. Og ég skal borga Hamden peningana hans og segja honum að þú hafir endurgreitt peningana, sem við lögðum fram. En í staðinn krefst ég þess, að þú hverfir burt frá Cornwall. Ef þú gerir það ekki, lofa ég engu um hvað ég geri. •— Það skal vera mér óbland- in ánægja að íara, sagði Ralph. — Ég skal skrifa Clare og slíta trúlofuninni. Ég veit ekki hvaða skýringar hún gefur á því, — það veltur líklega á því, hvað hún ætlar sér viðvíkjandi Morg- ate. Hann hafði opnað dyrnar þeg- ar síminn hringdi. Simon svar- aði. Það var Clare, sem hringdi og henni var mikið niðri fyrir. Simon, góði Simon — þú verður að koma strax . . . Hér hefur orðið slys. Faith . . . Annað heftið er nýkomið út með enn fleiri íslenzkum text- um en í fyrsta heftinu. Sendið kr. 25,00 og þið fáið heftið sent um hæl burðargjaldsfrítt. Fyrsta heftið fæst enn, en í því eru m.a. textarnir „Heim- ilisfriður“, „Ef þú giftist mér“ og fleiri. Kostar kr. 25,00. Nýir danslagatextar Box 1208 — Reykjavík _____________________________1 Simon hlustaði ekki á meira. Hann slengdi tækinu á kvíslina og hljóp út, án þess að skeyta um Ralph. Clare stóð við rúmið og í því lá Faith meðvitundarlaus. Gray læknir hafði skoðað hana ítar- lega, og var mjög alvarlegur á svipinn. Clare skildi að það var erfitt fyrir hann að spá nokkru um horfurnar. Faith hafði rekið sig á, dottið og rekið höfuðið í hvassa brún á steini. — Það var heppni að þér skylduð vera hérna, systir, sagði hann og hristi hfuðið áhyggju- fullur. — Það er ekki vert að við gerum foreldrana órólega, enn sem komið er. Ég kem bráð- um aftur, og þér gerið svo vel og vakið yfir henni. Ég skal ekki víkja frá henni, sagði Clare. — Biðjið Simon um að vera hérna líka. Ef hún fær meðvit- undina aftur, vill hún kannske tala við hann. Ef hún fær meðvitundina aft- ur! Gray læknir fór niður í stof- una og þar biðu Meg og Jock eftir honum. Þau virtust nærri því rænulaus eftir þetta nýja, alvarlega áfall. Skömmu síðar kom Simon. —- Hvað hefur komið fyrir? •— Hún var á gangi úti í garð- inum, sagði Jock. Hún hlýtur að hafa rekið fótinn í steinahrúg- una. Hún datt á höfuðið ■— Clare heyrði hana hljóða . . . — Er þetta alvarlegt? — Það er ómögulegt að segja. Við verðum að bíða átekta . . . - Farið þið upp á undan mér, sagði Simon við Meg og Jock. Hann vildi tala við lækninn und- ir fjögur augu. Þau fóru út, beygð og niður- lút, án þess að segja orð. — Nú getið þér sagt mér hve alvarlegt það er, sagði Simon. - Blóðstífla í heilanum, sagði Gray læknir. — Því miður . . . Simon stóð eins og steingerv- ingur. — Verður þetta þjáninga- fullt? spurði hann lágt. - Ég veit ekki. Það getur orð- ið það. Fólk liggur oft í algerðu meðvitundarleysi . . . Ég er svo ráðalaus . . . og hún var svo . . . Hann andvarpaði djúpt. — Við verðum að bíða átekta. —- Bíða átekta, hvíslaði Simon. í þessum svifum kom Clare inn í stofuna. Hún hafði ekki séð Simon síðan kvöldið sem hann kom að henni og Morgate, og varaðist að líta á hann en sneri sér að Gray lækni. — Ég lét þau vera ein hjá henni augnablik, hvíslaði hún. — Þá fer ég upp, sagði Sim- on. — Á ég að verða hérná, læknir? -— Ég ræð eindregið til þess. Eftir augnablik var Clare ein í stofunni. — Ég get ekki trúað þessu, kjökraði hún. — Ég get ekki trúað þessu! Eftir tvo daga fékk Faith ein- hverja rænu og muldraði fyrst í stað eitthvað, sem enginn skildi. Svo heyrðu þau að hún nefndi Simon. Simon grein um granna hönd hennar. — Ég er hérna, elskan mín, hvislaði hann. Clare ýtti þegjandi fram stól handa honum. —- Hvar er ég . . . Er mig að dreyma? Allt er svo biart . . . svo létt . . . Simon . . . Clare . . . Clare opnaði dvrnar hljóðlega og lét Meg og Jock koma inn. Þau lásu sannleikann úr augum Clare. Faith hélt áfram að muldra nöfn ástvina sinna. Það var bjarmi yfir andlitinu á henni. — Liós . . . svo hamingjusöm . . . Simon . . svo góð . . . Clare . . . Svo komu smátt og smátt nöfn foreldra hennar og bróður henn- ar og annarlegt bros lék um and- litið. — Ég . . . skurðurinn hef- ur verið gerður . . . ó, Simon . . . nú get ég séð þig, elskað þig . . . Clare sá að andardrátturinn varð slitróttari. Hún horfði á Meg og Jock, sem grétu hljóð- lega, og þau lásu það úr svip hennar að hér var ekki meira að gera . . . Simon hrærði hvorki legg né lið. Andardrátturinn hætti, mjúkt og hljóðlega eins og hægur blær í skógi . . . Og fyrir Faith þýddi þetta ekki dauða, heldur líf. Það féll dimmur skuggi yfir húsið eftir að sólargeisli þess var horfinn. Meg og Jock gengu um, þögul eins og skuggar. Þau gátu ekki skilið að Faith væri horfin. Hún hafði verið þeim meira en barnið þeirra. Hún hafði verið trú þeirra og veröld þeirra. Hún hafði verið svo nærri þjáningunni, að hún hafði þrosk- azt af henni og orðið foreldrum sínum svo ómetanlega mikils virði ... Simon leit inn til Hamden einn daginn síðdegis, eftir að dag- legt líf þar á heimilinu fór að komast í venjulegar skorður aft- ur. —Mig langar til að tala við ykkur nokkur orð viðvíkjandi Faith, sagði hann. - Hvað er það? spurði Jock, og ókyrrðist þegar í stað. Rödd Simonar hafði verið svo sjúk þegar hann nefndi nafnið Faith, að Clare ætlaði að tár- ast. — Ég á við það, að dauðinn var mjög — vægur við hana. Mér liggur við að segja, að hann hafi verið guðs gjöf. — Hvernig geturðu sagt þetta? sagði Meg í geðshræringu. — Þó hún væri blind var hún samt glöð og ánægð, og hún hafði vonina um að uppskurðurinn mundi . . . Hún þagnaði allt í einu og horfði á Simon. — Áttu við það að . . . — Ég á við það að enginn máttur á jarðriki hefði getað gert það kraftaverk að gefa henni sjónina aftur, hélt Simon áfram. — Við vorum farnir að sjá að sjúkdómurinn var illkynjaður. Og ólæknandi. Það eina sem við gátum vonað var að við gætum hindrað að hann gripi um sig. Við hefðum áreiðanlega þurft að taka að minnsta kosti annað aug- að. Meg tók hendinni fyrir munn- inn til að kæfa niðri í sér óp. Simon hélt áfram, alvarlegur sem áður: — Já, þannig var nú ástatt um þetta. Ég reyndi að hugga mig við, að kraftaverk gæti skeð, en Margeton læknir kvðaðst vera vonlaus um það. - Veslings drengurinn minn, sagði Jock hrærður. -— Meðan hún lifði var hún blind, sagði Clare lágt. — En í dauðanum varð hún sjáandi. — VIKAN 7. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.