Vikan - 13.02.1964, Blaðsíða 13
■■ : ■■■' ':
'
■
jlg|
: :
s
:
:SiI ■■' :
g§§g§§
ÍÍlliíiiisii
-• ...
Það hefur verið kvartað yfir því að nýtízku
húsgögn séu fyrst og fremst fyrir augað;
útlitið á kostnað þægindanna. Þetta er í mörg-
um tilvikum rétt og verður a.m.k. að gefa
fólki líka kost á húsgögnum sem eru fyrst
og fremst þægileg. Grophius, faðir nútíma
formlistar, sagði: „Notagildið fyrst, þá fylgir
fegurðin eftir“. Hér er dúnmjúkur stangaður
leðursófi, sem margur mundi líta hýru auga,
ef hann fengist hér. Sófaborðið er úr þykkri
glerplötu á einum fæti.
Hægindastóll í lúxusklassa. Efnið er stálgrind og stálfætur,
formbeygður palisander, dúnn í baki og sessum, en bólstrað með
svörtu leðri. Þessi stóll er að sjálfsögðu talsvert dýr, en
hinn mesti kjörgripur.
í þessa orðs bezta skilningi, ekki heim-
ili, ekki mannlegur hvíldarstaður og gott
athvarf eftir erfiðan dag. Þetta var ein-
ungis verzlun. Ég var raunar staddur í
sýningarglugga í stórri húsgagnaverzlun,
þar sem öllu er harla vel raðað upp —
en sál heimilisins er víðs fjarri.
Ég hugsaði með mér: Þau eru svo ung
og það er ekki von að þau hafi komið upp
neinum persónulegum svip - eða gat
það átt sér stað að sjálfir hlutirnir, hús-
gögnin, ættu sök að máli. Ég athugaði þau
nákvæmlega: Borðstofuborð, sex stólar og
ílangur skápur með rennihurðum, allt úr
tekki. Gólfteppi grátt og hlutlaust. Sófa-
borð úr tekki, tveir stakir tekkstólar með
svampsetum, fjögurra sæta sófi úr tekk-
grind og með svamppúðum. Innskots-
borð, líka úr tekki, skálar á borðinu, líka
VIKAN 7. tbl.
Hús og húsbúnaður
TEKK
*=»r gott og blessað en
venær fáum vlð að sjá
witthvað annað?