Vikan - 13.02.1964, Page 36
kosningum 1959 og féll í bæði
skiptin. Síðan var ég efsti maður
á lista Framsóknarflokksins i
borgarstjórn við kosningarnar
19(52, sem gengu mjög vel. Við
náðum kosningu, ég og Kristján
Bcnediktsson, sem var annar
maður á listanum. Og loks var
ég í framboði við alþingiskosn-
ingarnar 1!)G3 og komst þá á þing.
Áður bafði ég jjrisvar komið á
þing sem varamaður.
— Þetta lilýtur að vera mikil
vinna. í rauninni iþrjú störf.
— Þetta er of mikil vinna i
sjálfu sér. Maður verður að gæta
sín, til þess að vinna allt nógu
vel. Annars átti ég ekki von á, að
kosningarnar gengju svona vel.
Þegar vaiið var með hlutkesti í
Borgarráð (i. júlí síðast liðinn
og ég vann hlutkestið, datt mér
ekkj í hug, að égmundi líka vinna
i aJþingiskosningunum 9. júní, og
hefði eklci gefið kost á mir í
Borgarráð, lie.fði ég búizt við
því.
Annars er mikil vinna og
skemmtileg að vera í Borgarráði.
Þar er gott fólk, og aðaláherzl-
an 13gð á að reyna að leysa
málin, pólitíslcur ágreiningur er
í öðru sæti. Samt býst ég ekki
við að ég gefi lcost á mér í það
starf aftur, það er ekki liægt að
gína yfir öllu, enda ástæðulaust,
ég tel að sá flokkur, sem ég vinn
fyrir, sé ekki í neinu hraki með
m.nn.
— Manni finnst oft, að fylgis-
menn hinna ýmsu flokka talci
afstöðu til málanna eftir því
hvaða flokkur eða floklcar bera
þau fram, en ekki eftir málefn-
inu, og pólitíkin fari iðulega út
i persónusvivirðingar.
— Ekki vil ég kannast við það
fyrir mína parta. Eftir að liafa
kynnzt stjórnmálalífinu, finnst
mér flokksbaráttan ekki á eins
lágu stigi og ég hélt að hún væri,
meðan ég sjálfur stóð utan við.
Mér finnst að allir flokkar reyni
að hafa drengskap í sinni pólitík.
Ég held að stjórnmálabaráttan
hjá okkur sé hvorlci betri né verri
en gerist með öðrum þjóðum,
þótt ég sé reyndar lítið kunn-
ugur erlendis. Ég held að allir
stjórnmálamenn okkar vilji berj-
ast með heiðarlegum aðferðum
og reyna að gera sitt bezta, ])ótt
auðvitað geti okkur mistekizt eins
og öllum mönnum.
Hitt er svo annað mál, að bar-
áttan hjá okkur er sjálfsagt nokk-
uð hc'rð, og getur orðið noklcuð
persónuleg, eins og gerast vill,
þar sem allir þekkja alla, eins og
í okkar litla landi.
— Hvað kom til, að þú fórst
út í stjórnmál?
- Ég má segja, að það hafi
bara viljað þannig til. Margir
minna kunningja voru á kafi í
stjórnmálastarfsemi, og smám
saman fór ég að taka þátt í þessu
líka. Og fékk því meiri áhuga,
sem ég kynntist henni meira.
— ,‘veigðu mér eitt: Hvað mund-
ir þii gera, ef þú þyrftir allt
í cinu að velja þér annað starf,
óskylt bankastjórn?
— Ja — þá væri ég illa staddur.
Ég kann ekkert annað en þetta.
Óskylt? Lcigfræðistörf eru slcyld,
annars myndi ég rcyna að koma
mér upp praksis. — Nei, ég gæti
ekkert gert.
— Og þá er eklcert eftir annað
en einkalífið. Þú átt náttúrlega
fjölskyldu og ihús.
— Já. Við eigum fjóra krakka,
og það elzta er nú 14 ára. Ég
kom mér eklci upp ibúð fyrr en
á stjórnarráðsárunum, þá i blolck
í Skaftahlíð, sem byggð var á
vegum Byggingarsamvinnufélags
stjórnarráðsstarfsmanna. En hún
er orðin of litil, og nú er ég með
íbúð i smíðum í tvíbýlishúsi i
Hjálmholti, og flyt inn í hana í
vor.
— Nú geri ég því skóna, að þú
hafir þurft á láni að halda til
að koma henni upp: Hvernig
fer bankastjóri að því að fá lón?
— í því tilfelli er aðeins eitt
sein skilur bankastjóra frá öðr-
um: Hann hefur einum banka
minna að leita til en aðrir. Hann
má ekki taka lán í sínum eigin
banka. Að öðru leyti verður hann
að haga sér eins og aðrir menn,
ganga fyrir bankastjóra og leggja
spilin á borðið. í mínu tilfelli
gekk ]iað vel.
— Svo áttu jörð.
— Já, I félagi með öðriim. Við
keyptum Stíflisdal í Þingvalla-
sveit saman, ég og Karl Eiriks-
son, fyrrverandi flugmaður, nú
framkvæmdastjóri Bræðranna
Ormson h. f.
— O'g þar eyðir þú frístund-
unum.
— Já, gjarnan. Ég hef gaman
af að fara út, á skíði, í göngu-
ferðir, veiði — sem sagt útiveru
við eitthvað. Ég hef ekki gaman
af að vera aðgerðarlaus. Annars
hef óg alveg orðið að segja slcil-
ið við aðal frístundagaman mitt:
Brids. Ég spila að visu einu sinni
í vi'ku við mína gömlu félaga,
en er alveg hættur að keppa. Það
er enginn timi til þess. Þar með
fór mitt eina inni-frístundagam-
an. Ég gríp að vísu alltaf i bólc
og bók; þá er maður orðinn að-
þrengdur, ef það fellur alveg
niður.
— Aðeins eitt enn, Einar: Tek-
ur þú starfsáhyggjurnar með þér
heim?
— Nei, ég reyni að gera það
ek'ki. Það er svo gott með tölur,
að það er hægt að s'kilja þær
eftir. Það er verra með skrifað
mál. Ef ég er að undirbúa blaða-
grein eða ræðu, er stundum erf-
iðara að skilja það eftir. Orð
haga sér öðru vísi en tölur.
ÆÐISLEGT KAPP-
HLAUP YIÐ HRAUNIÐ
Framhald af bls. 19.
undan, en þótt menn væru orðn-
ir örþreyttir eftir stanzlaust og
linnulaust strit í rúman sólar-
hring, þá var ókveðið að halda
ófram, og reyna að bjarga þeim
þriðja.
Það jók á trú manna á þessu
fyrirtæki, að hlaðinn hafði ver-
ið upp heljarmikill varnarvegg-
ur úr grjóti rétt fyrir ofan stöð-
ina, og var vonazt til að hann
mundi tefja fyrir hraunrennsl-
inu þangað, eða jafnvel forða
mannvirkjunum alveg frá
skemmdum.
Svo var vagninum ekið undir
risann, og hafizt handa að koma
honum þar fyrir.
Mannfjöldinn, sem stóð uppi
í hæðinni sunnan við stífluna,
sá þegar hraunið rann æ hrað-
ar niður eftir árfarveginum til
stíflunnar, steyptist ofan 1 vatn-
ið í uppistöðunni, sem bullaði
og sauð og bykkir gufubólstr-
ar byrgðu útsýnið alveg um lang-
an tíma. Flestir höfðu búizt við
því að þegar hraunið kæmi ofan
í vatnið, þá mundi skapast flóð-
bylgja, sem rynni yfir stífluna,
og höfðu allir verið reknir það-
an burtu, svo þeir yrðu ekki
fyrir vatninu. En það varð minna
úr því en búizt hafði verið við.
Það hækkaði að vísu töluvert í
uppistöðunni, en aldrei svo að
nein flóðbylgja skapaðist, því
vatnið gufaði hreinlega upp jafn-
óðum í þeim ofsalega hita, sem
glóandi grjótið bar með sér, og
í þann mund, að hraunið náði
stíflunni sjálfri, þá var vatnið
horfið með öllu og árfarvegur-
inn skraufþurr allt niður í sjó.
Svo lagðist hraunveggurinn að
stíflunni og hlóðst þar upp um
stund, en stífluveggurinn virtist
ætla að halda þunganum.
Það liðu samt ekki nema
nokkrar mínútur þangað til
hraunið hafði fyllt upp uppi-
stöðuna, og fór að velta yfir
stíflugarðinn, og eftir um það
bil tuttugu mínútur var hann
horfinn í hraunið, sem valt
áfram niður eftir dalnum.
Niðri við Elliðaárstöðina voru
menn að ljúka við að setja síð-
asta spennubreytinn á vagninn,
þegar þeir sáu ógnandi hraun-
leðjuna renna í áttina til sín.
Þeir gengu í flýti frá vírunum,
sem bundu spennubreytinn á
vagninn, og hröðuðu sér í burtu,
nema vagnstjórinn, sem átti að
aka dráttarvagninum og nokkr-
ir aðstoðarmenn hans.
Það voru enn nokkrar mínút-
ur til stefnu, sáu þeir, þar til
hraunið kærni að varnarveggn-
um, sem hlaðinn hafði verið, en
þeir voru hættir að treysta á
hann, eftir að þeir sáu hvernig
hraunið valt yfir stíflugarðinn
ASTER
LUie.IL
Lancaster Juvenil Skin
er notað sem dagkrem
fyrir viðkvæma liáð
sem hætt er við ofnæmi.
Þetta krem styrkir húð-
ina og gerir hana eðli-
lega. Tilhneigingin til
ofnæmis minnkar og
m g s hverfur
og hrátt
fær liúð-
in á sig
blæ æsku
og heil-
brigðis.
ASTER
O. VALDIMARSSON & HIRST HF.
Skúlagötu 26 — Símar 21670 & 38062
00 — VIKAN 7. tbl.