Vikan - 13.02.1964, Síða 37
Skyrta úr 100% cotton
Eykur vellíðan yðar
nokkru ofar. Nú var um að gera
að flýta sér með þetta síðasta
— og verðmætasta stykki í
burtu, áður en það væri um
seinan, því aðra tilraun mundi
aldrei verða hægt að gera.
Styrmir, kunningi okkar, var
þarna kominn til að fylgjast með
því, hvernig gengi, og fann
spenninginn og eftirvæntinguna
í mönnunum allt í kringum sig,
þegar séð varð hve litlu mátti
muna, að þetta síðasta herbragð
tækist.
Hann stóð uppi á hárri grasi
gróinni hleðslu, sem skýldi
vatnsleiðslunni til afstöðvarinn-
ar, og sá vel yfir svæðið, þar
sem vagninn var. Spennubreyt-
inum hafði verið komið örugg-
lega fyrir, og nú var aðeins eftir
að aka honum út úr húsinu og
áfram eftir veginum, sem lá upp-
fyrir stálskóginn, í kringum hann
og síðan aftur niður með ánni.
Styrmir leit upp að varnargarð-
inum, rétt fyrir ofan veginn, og
sá að hraunið var komið að hon-
um, og var að hlaðast þar upp.
Það mátti ekki tæpara standa,
að dráttarvélin kæmist þar
framhjá með vagninn í eftir-
VIKAN 7. tbl.
37