Vikan - 13.02.1964, Síða 45
Það er mjólkurbú í þorpinu.
Svertingjar vinna hjá bændum,
sums staðar 10 -15 á hverjum
bæ. Þeim er aðallega greitt í
fríðu, en nokkurt kaup í reiðufé
fá þeir líka. Hann fullyr.ðir, að
þetta nægi þeim til lífsfram-
færslu ,allir hafi nóg að borða
og annað það, sem til þess þarf
að draga fram lífið sæmilega.
Ég spyr um aðskilnaðarstefnu
Verwoerds. Wells er stjórnar-
sinni, segir enga lausn hugsan-
lega aðra en þá að draga ör-
ugga markalínu milli hvítra og
svartra. Hann segir blámenn út
af fyrir sig ágæta — að því er
mér virðist á sama hátt og hestur
getur verið gott eða vont hús-
dýr. „Þeir eru bara nokkrum
þúsundum ára á eftir okkur á
þóunarbrautinni. Þeir geta lært
— jú, víst geta þeir lært, en
þeir draga aldrei neinar skyn-
samlegar ályktanir. Þeim dettur
aldrei neitt nýtt í hug. Þeir eru
ábyrgðarlausir. Hérna í grennd-
inni, sá svertingi belju fasta í
feni. Hann lét hana alveg af-
skiptalausa, en þegar hún var
dauð þá fór hann til bóndans og
sagði að nú væri ein af beljunum
búinn að geispa golurmi. Hvers
vegna? Jú, það var af því að
hann vissi að hann fengi kjöt
að éta ef beljan dræpist. Svona
eru þeir. Láttu mig þekkja þá.
Ég er uppalinn með þeim. En við
erum ekki vondir við þá. Þvert
á móti. Við hjálpum þeim. Og
þeir eru ánægðir. Hérna í
grenndinni er byggð svertingja,
þar sem við megum ekki koma,
en hins vegar mega þeir koma
hingað til okkar. Heima lifa þeir
smu Þ'fi, kaupa og selja konur
fyrir kú. asna eða ffeit. Þetta
eru þeir ánreyðir með. Þeir hafa
nóg fvrir sig. Þeim líður vel.
Þeir, Eom vilja ekki vera þarna
í by'Teðinni koma hingað í vinnu.
Þeim er frjá’st að gera það, sem
beim aýnist. Ef V.erv/cerd tap^r?
Ja, þá tek éff saman pjönkur
m'nar og flyt héðan. Undir
stiórn Sverting;a fer allt til and-
skotans".
Framhald í næ'’ta blaðl.
í FTJLLRT ALVÖRU
Framhald af bls. 2.
ingarfulla tilraun til að bjarga
staðnum. Sem betur fer var
fallið frá því, enda tiinir bún-
aðarskólarnir tveir ekki full-
setnir.
Er þá ekki nóg að Skálholt
sé helgur staður með rismikla
sögu að baki og stóra og veg-
lega kirkju handa nútíð og fram-
tíð? Er ekki nóg, að fólk flykk-
ist „heim i Skálholt“ til þess
að vera við helgar tíðir? Hefur
það ekki náðst þrátt fyrir allt,
sem mestu máli skiptir.
Látum lýðháskólann ciga sig
fyrir alla lifandi muni. Gleymum
lionum hreinlega. í Skálholti
þurfti aðeins að hressa upp á
helgi og reisn staðarins og það
hefur verið gert. Hins vegar
er ytri reisn ekki nægileg: ráða-
menn kirkjunnar verða að taka
höndum saman um messur i
Skálholtskirkju. í fyrsta lagi á
aldrei að falla niður sunnudags-
messa í Skálholti yfir sumar-
mánuðiiia. í öðru lagi ætti bisk-
upinn að skipuleggja þessar
messur; úthluta þeim til kenni-
manna, sem eitthvað hafa að
an KEUM-lestur upp úr bibli-
unni. Þegar svo er komið, að
fólk veil fyrirfram, hverjir messa
í Skálliolti og veit, að þar stíga
aðeins andrikustu kennimenn
þjóðarinnar í stólinn, þá mun
fólksstraumurinn halda áfram til
Skálholts. Og þá mun enginn
spyrja frelcar, hvað liægt sé að
gera fyrir Skálholt. GS.
ÞRIGGJA KOSTA VÖL
Framhald af bls. 25.
— vitanlega er hún með í ráð-
um! Skelfingar barn ertu!
— Ég trúi þér ekki, svaraði
Simon ákafur. — Þú skalt aldrei
geta sannfært mig um þetta!
Það verður verst fyrir
hana.
Hvað áttu við með því?
— Ef það er svo að þú sért
ástfanginn af henni, skiptir það
varla máli fyrir þig hvað ég á
við með því.
— Ég var að spyrja þig — og
krefst svars.
— Það er ofur einfalt mál. Ef
þú lætur setja mig inn, get ég
ekki komizt hjá að bendla hana
við málið. Hún var með mér í
þessu frá upphafi. Var það ekki
svo að hún ætti að taka að sér
stjórn þessa hælis, sem ekki var
til?
— Hún verður ekki meðsek
þér fyrir það, sagði Simon.
— Nei, ekki fyrir það, en hún
verður að sanna sakleysi sitt
og það verður enginn hægðar-
leikur. Auk þess hef ég notað
bankareikning hennar til að
borga ávísanir inn á. Kvittun
hennar er til dæmis á ávísuninni
frá Jock Hamden. Það er að vísu
engin sönnun fyrir að hún sé
samsek mér, en grunsamlega lít-
ur það þó út. Þegar svona stend-
ur á eru beinu sannanirnar ekki
eins mikils virði og hitt, hvað
maður álítur um manneskjuna
sem í hlut á. Við Clare höfum
í rauninni unnið saman í mörg
ár. Við bætum hvort annað upp.
Ég er samvizkulaus þegar um
peninga er að ræða, og hún þeg-
ar um karlmenn er að ræða. Við
krefjumst ekki mikils hvort af
öðru, en mér finnst að síðasta
hliðarhopp hennar með Kenneth
Morgate væri í frekasta lagi . . .
Þú lítur vesældarlega út, — þú
hlýtur að hafa verið alvarlega
ástfanginn . . . Já, vitanlega sagði
hún mér frá því. Það er það,
sem mér líkar bezt við Clare . . .
hún segir mér frá öllu . . .
— Ekkert af því, sem þú hef-
ur sagt mér breytir skoðun
minni á málinu sem fyrir ligg-
ur, sagði Simon og reyndi að
vera rólegur.
— Og hvað um Faith?
-— Hvað kemur hún þessu
máli við? sagði Simon hvasst.
— Heldurðu að henni mundi
ekki finnast hræðilegt, ef farið
væri að ræða um einkalíf Clare
fyrir rétti? Henni þykir innilega
vænt um Clare, og að vissu leyti
þykir Clare vænt um hana. Clare
er í rauninni svo góð í sér. Og
svo taumliðug. Og það kemur
mér vel. Ég þurfti einmitt á
manneskju að halda, sem aðrir
treystu, og sem léti mig svo um
hitt.
Reiðin sauð í Simoni yfir þess-
ari óheyrilegu frekju. Og ekki
bætti það úr skák að Ralph sagði
það satt, að Simon hafði látið
það hafa áhrif á sig, að Clare
hafði haft afskipti af hælismál-
inu.
— Mig langar ekki til að missa
þrjú þúsund pund orðalaust,
sagði Simon. - Ávísanirnar mín-
ar voru stílaðar á fasteignasal-
ann, þær snertu ekki persónuleg
skipti milli mín og þín.
— Ja, fasteignasalar og fast-
eignasalar, drafaði í Ralph. —
Það er auðvelt að láta gabbast
af prentuðum bréfhaus. Það var
mitt eigið fasteignafirma sem
annaðist þetta mál. Ég geng ekki
að því gruflandi að nú er ég að
gefa þér nýtt sakarefni gegn mér.
Og ég skal ekki flýja ef þú hring-
ir til lögreglunnar núna. Annars
hafði ég hugsað mér að flýja
land og koma aldrei aftur.
— Og Clare?
— Vertu rólegur, ég fer ekki
með hana með mér. Hún ruglar
kannske reitum með hinum
lækninum — Morgate. Hann er
vitlaus eftir henni og leggur ef-
laust ekki erfiðar spurningar fyr-
ir hana . . . Hann tók málhvild,
alvarlegur á svipinn. — Annars
held ég að Hamden líkaði ekki
vel að þú færir til lögreglunnar
með þetta. Og ekki fengi hann
peningana sína afur, þó þú gerð-
ir það. Og því máttu treysta. að
ef þú kærir mig, þú skal Clare
fá að verða mér til samlætis í
sakamannastúkunni.
Simon var farinn að ganga
fram og aftur um gólfið. Hann
gat ekki hugsað til þess að Clare
yrði bendluð við þetta óþverra-
mál. Hvorki hennar vegna eða
Faith. Það var ómögulegt að vita
hverskonar afleiðingar slíkt
taugaáfall gæti haft, ekki sízt
núna er hún var óróleg út af
uppskurðinum, sem í vændum
var.
segja frá eigin brjósti og binda
sig ekki algjörlega við steindauð-
VIKAN 7. tbl. —