Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 13.02.1964, Qupperneq 49

Vikan - 13.02.1964, Qupperneq 49
fangabúðunum innan 24 klukku- stunda. Þjóðverjar beygðu sig fyrir þessari kröfu og þar með var þetta mál úr sögunni. f lok ársins 1941 reyndu Þjóð- verjar einnig að telja franska og belgíska foringja meðal fang- anna á að hafa „samvinnu“ við sig. Þeir höfðu ekki heppnina með sér í Colditz, en þó hurfu tveir eða þrír Frakkar úr fanga- búðunum. Þjóðverjum lék mjög hugur á að ráða verkfræðinga og efnafræðinga. Var foringi nokkur látinn spyrja Frakka nokkrum sinnum við hádegíis- nafnakall, hvort ekki væru ein- hverjir, sem -■•ildu gerast sjálf- boðaliðar hjá þeim. Fbringjar þeir, sem áhuga hefðu á þessu, ættu síðan að tilkynna nafn sitt og starf, svo að hægt væri að athuga, hvernig þeir gætu gert Þriðja ríkinu mest gagn. Fyrsta claginn gaf enginn sig fram, en hins vegar var mik- ið hróp og hlátur gerður að Þjóð- verjum fyrir þetta. Daginn eftir gekk fram iranskur foringi, Durand að nafni, sem sagði: „Ég gæti vel hugsað mér að starfa fyrir Þjóðverja". Undrunarstuna heyrðist um allan fangahópinn, en þýzki for- inginn ljómaði allur af ánægju. „Óskið þér raunverulega að starfa fyrir Stór-Þýzkaland?“ „Já, ég vil miklu heldur starfa fyrir tuttugu Þjóðverja en einn Frakka!“ En fleiri ráku upp undrunar- óp og virtu Durand fyrir sér forviða. „Ágætt, hvað heitið þér?“ „Ég heiti Durand, og ég vil gera mönnum fullkomlega ljóst, að ég vil heldur vinna fyrir tutt- ugu Þjóðverja en einn Frakka. „Eðlilega! Hvert er starf yðar?“ „Ég er kirkjugarðsgrafari!" Jacques Prot hét annar Frakki, sem gat heldur ekki setið á sér, og með snarræði sínu tókst hon- um bæði að öðlast frelsi og frægð. Hans var getið áður í sam- bandi við öflun yfirhafnar þýzka tannlæknisins. Prot afréð að strjúka, þegar hann var í heim- sókn hjá þýzka tannlækninum í Colditz. Það var einsdæmi, að menn fengju að fara í slíka heim- sókn, en honum tókst samt að fá nauðsynlega heimild. Hann hóf förina í fylgd með öðrum Frakka, og var þeirra stranglega gætt. Frakkamir struku báðir frá varðmönnunum, sem settir voru til að gæta þeirra, þegar þeir fóru úr húsi tannlæknisins, og þar með var sú saga á enda. Af öryggisástæðum fannst þeim félgum hyggilegast að skilja í Leipzig. Prot, sem var hár, dökk- ur yfirlitum og vel vaxinn, um 26 ára gamall, fór um Köln til Aix-la-Chapeile. Þegar hann nálgaðist landamærin, sá hann sér til skelfingar, að þau fölsuðu skilríki, sem hann hafði meðferð- is, voru í engu lík þeim skilríkj- um, sem þá voru í notkun. Auk þess voru ströng varðhöld í landamærastöðinni. Prot lét samt ekki hugfallast heldur lét berast með straumnum að landamæra- slánni ásamt öðrum mönnum, sem yfir ætluðu, en þeir voru flestir belgískir. Þó vissi hann ekki, hvernig hann átti að fara að þessu. Þá fékk hann allt í einu bráðsnjalla hugmynd! Hann þreif ferðatösku úr höndunum á forviða Belga og ruddist síðan framhjá iandamæraslánni og var horfinn eftir andartak. Augljós sálfræði var að baki þessu bragði. Farþegarnir ráku upp ramakvein, og beindist athygli landamæravarðanna að þeim nokkra hríð — en þegar Þjóð- verjum skildist, hvað fyrir hafði komið, stóð þeim rétt á sama. Það hefði verið eitthvað annað, ef um flýjandi franskan liðsfor- ingja hefði verið a ræða, en þeim stóð svo sannarlega á sama um þjóf, sem hljóp leiðar sinnar með ferðatösku Belga, svo að þeir skiptu sér ekkert af þessu. Níu dögum eftir að Prot hafði strokið frá Colditz, kom hann til fjölskyldu sinnar í París. Varð þar mikill fagnaðarfundur, meðal annars af því að hann kom á sjálfan jóladaginn. Árið 1942 komst hann yfir til Tunis frá hinum óhernumda hluta Frakklands, og gekk þar í herinn á ný. Áður en hann fór frá París, sendi hann Belganum ferðatöskuna, því að hann hafði fundið heimilisfang eigandans í henni, og frá Tunis sendi hann þýzka tannlækninum vænan skammt af ósviknu kaffi, ásamt afsökun á, að hann skyldi hafa rænt hatti hans og frakka. x o x o x Jólin 1941 og næstu áramót voru hressandi tímabil. Snjórinn var hvarvetna djúpur, og menn voru vonglaðir varðandi fram- tíðina, því að Þjóðverjum gekk ekki alltof vel, þar sem fram- sókn þeirra í Rússlandi hafði ver- ið stöðvuð. Birgðir okkar af vínum og eld- vatni voru einnig drjúgar, svo að ekki varð kátínan minni af þeim sökum! Teddy Barton efndi til skemmtisýningar, sem flutt var þrjú kvöld í röð fyrir fullu húsi áhorfenda. Á gamlárskvöld byrjuðum við Englendingar „slöngukeðju” — menn mynduðu einfalda röð og lagði hver hönd á öxl næsta manns á undan. Hlæjandi og syngjandi hlykkjað- ist slangan gegnum ganga og ranghala kastalans, og varð hún æ lengri, unz næstum 200 manns munu hafa verið komnir í röð- ina. Þegar klukkan sló miðnætti, myndaði slangan stóran hring í kastalagarðinum, og menn sungu Auld Lang Syne af öllum kröft- v.y.; Nýtt útlit Ný tækni .•.•.•.vr*;*;.j.;.,r LÆKJARGÖTU, IJAFNARFIRÐI. — SÍMI 50022 VIKAN 7. tbl. — 40

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.