Vikan - 20.02.1964, Blaðsíða 32
GEFJUNARFÖT
allt árið
GEFJUN-IÐUNN
Kirkjustræti
32
— VIKAX 8. tbl.
II
4
'hUpnar
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
ÖHrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Vissir aðilar bíða eftir áliti þínu á málunum, þú
hefur mikla möguleika til að snúa þeim á þitt band
ef þú beitir rökfimi þinni. Þú ættir ekki að sýsla
mikið í persónulegum fjármálum þínum, það sem
að þeim snýr er æði mótsagnakennt.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú munt finna hjá þér knýjandi þörf til að láta ljós
þitt skína og muntu hafa gott af að ryðja þig, þrátt
fyrir gagnrýni þá sem það kann að valda. Þú tekur
þátt í stóru samkvæmi og kynnist fólki þar, sem
þú kemur til með að hafa nokkur samskipti af.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú verður fyrir smáútgjöldum, sem þú varst far-
inn að halda að þú slyppir við. Þú færð óvæntar
fréttir úr fjarlægð, sem verða til þess, að þú tekst
á hendur smá ferðalag. Allt þetta verður þér
ánægjulegt.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Nú reynir á snilli þína því þú ert sem stendur í
sviðsljósinu, annað hvort er að duga eða drepast.
Vinur þinn birtist þér óvænt og eigið þið skemmti-
legar stundir saman. Þú færð tilboð, sem getur
orðið til þess að vænka hag þinn.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Þú stendur í ströngu og reynir þar mjög á skipu-
lagshæfileika þína og lipurð. Þú verður að gera
breytingar á framtíðaráformum þínum, vegna
óvæntra atburða. Þú gerir út um deilu, sem risið
hefur upp vegna sameiginlegra fjármála.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Vegna sérstakra tímamóta verður venju fremur
mannmargt í kringum þig og þína fjölskyldu. Nú
er rétti tíminn til þess að endurgjalda heimsóknir
vina þinna. Náið skyldmenni þitt verður þess vald-
andi með gerðum sínum, að þú verður mjög upp með þér.
Vogarmerkiö (24. september — 23. október):
Ósk, sem þú hélzt að gæti varla rætzt gerir það nú
á mjög auðveidan og einfaldan hátt. Þú hefur tek-
ið þátt í gleðskap, sem kemur nú með smá bak-
reikning. Það er í alla staði mjög góður tími til
þess að innheimta gamlar skuldir.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Hafðu þig ekki mikið í frammi, því plánetustraum-
arnir eru þér andstæðir. Heimafyrir bíða þín mörg
óleyst verkefni, sem þú skalt gefa þig að. Líkur
benda til að þú verðir fyrir fjárútlátum vegna
kunningja þíns.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
Á vinnustað þínum er allt mjög tilbreytingar- og
litlaust. Þú kemst í nánari kynni við vinnufélaga
þína í gegnum skemmtun, sem haldin verður. Per-
sóna, sem þú metur mikils, leitar ráða hjá þér.
Um helgina eru líkur á ferðalagi.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Vikan verður róleg. Notaðu tímann vel til þess að
hvíla þig og sinna aðkallandi störfum því það eru
annasamir tímar framundan. Þú átt 1 erfiðleikum
með eitthvað, sem þú sakir vankunnáttu þinnar get-
ur ekki leyst úr. Hikaðu ekki við að leita ráða.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þú færð gullvæg tækifæri til að auka álit þitt og
hróður. Sökum anna verðurðu að fresta áætlunum
þínurn um óákveðinn tíma. Gerðu yfirlit yfir fjár-
útlát þín, það getur verið að þau séu ekki í lagi.
Eyddu kvöldunum í smá skemmtiferðir.
©Fiskamerkið (20. janúar — 20. marz):
Misklíð veldur þér einhverjum erfiðleikum, vertu
kurteis og óeigingjam, það eru spor í rétta átt.
Kunningi þinn hverfur af sjónarsviðinu um stund-
arsakir. Náinn ættingi þinn verður fyrir áfalli,
láttu ekki standa á liði þínu.