Vikan - 19.11.1964, Side 18
flstir á skrifstofunni
af henni að hún segði upp starf-
inu og fengi sér vinnu annars-
staðar. Hvað hún gerði.
Skrifstjórinn gat að sjálfsögðu
ekkert við því sagt. Þetta var
alvara, hann varp þungt öndinni
og fór að svipast um eftir öðr-
um einkaritara.
-— í sjálfu sér ráðum við engu
um val einkaritara, sagði hann
við mig. En það liggur í augum
uppi, að fyrirtækinu er það á
allan hátt hagur, að hún sé frið
sýnum og aðlaðandi. Það er á
vissan hátt auglýsing, auk þess
sem það eykur manni sjálfs-
traust.
Nýi einkaritarinn var stúlka
ekki síður fríð sínum og aðlað-
andi en sú, sem kvaddi garðana
í Gröf. Framhaldið getur maður
gert sér í hugarlund — svona
nokkurnveginn.
„Auðvitað hringi ég frá skrif-
stofunni, elskan mín. Þú heyrir
þó liklega í ritvélinni?"
liðsgleðina í bandarísku fyrir-
tæki, sem höfundurinn segir frá
í bókinni, „Skrifstofukynlíf".
Sænskur blaðamaður, sem skrif-
ar grein um bókina, tekur að
svipast um heima í sínu eigin
landi, og drepur á ýmislegt í
sambandi við skrifstofukynlífið
þar:
í borg einni í Svíþjóð er
kvæntur læknir, sem heldur við
hjúkrunarkonu sína. Ekki alls
fyrir löngu hittust þeir, hann og
góðkunningi hans einn, sem
vissi vel um þetta. Þeir röbbuðu
yfir glasi lengi kvölds, og trún-
aðartraustið varð innilegra og
gagnkvæmra að sama skapi og
lækkaði í flöskunni.
— Vekur kvenfólkið, sem leit-
ar til þín, aldrei fýsn hjá þér?
spurði góðkunninginn.
— Nei, brennt fyrir það, svar-
aði læknirinn með áherzlu.
— Svona, svona . . . segðu
sannleikann, varð kunningjan-
um að orði.
Og þar sem nú var sú stund
upprunnin, að góðir vinir taka
ofan grímuna hvor fyrir öðrum,
svaraði læknirinn eftir nokkra
umhugsun:
— Vitanlega kemur það fyrir
endrum og eins... en ég þori
aldrei að láta hið minnsta á því
bera, því að þá ætlar hún að
verða vitlaus af afbrýðisemi.
— Hún ... hver?
■—■ Hjúkrunarkonan, skilurðu.
Það er stundum að til mín leita
konur, sem í rauninni kenna sér
ekki nokkurs meins. Erindi
þeirra er ekkert annað en að fá
að afklæðast frammi fyrir mér.
En hjúkrunarkonan sér það sam-
stundis á þeim, þegar þær koma
inn í biðstofuna.
Yfirleitt er hún aldrei við-
stödd, þegar ég skoða sjúkling-
ana. En þegar um þessháttar
kvenmann er að ræða, víkur hún
ekki út fyrir þröskuldinn. Það
er eins og hugboð hennar sé
óskeikult á því sviði...
Nýja skrifstofustúlkan.
Þar sem margt karlmanna og
kvenmanna er á vinnustað, eru
hundrað hundraðshluta líkur
fyrir því, að andrúmsloftið verði
kynrænum lævi blandið. Viss
karlmaður laðast að vissum
kvenmanni. Eigi þau einhver
sameiginleg áhugamál, skortir
þau ekki umræðuefni, og þó svo
sé ekki, geta þau alltaf talað um
starf ið og það sem við ber - í
skrifstofunni.
Þessar umræður verða þeim
formálinn að persónulegri um-
ræðuefnum, og áður en langt um
líður hefur skapazt með þeim
einlægur trúnaður. Og þegar þau
svo verða samferða niður í lyft-
unni að dagsverki loknu, leita
hendur þeirra ósjálfrátt snert-
ingar, eins og þser vilji forvitnast
um hvort þau hafi ekki þörf
fyrri gagnkvæman trúnað, sem
ekki verður orðum tjáður.
Þeim kemur vel ásamt. Það
er upphafið.
Ástin blómgast í skrifstofun-
um, það gefur auga leið. Hún
blómgast að vísu hvar sem er,
þegar svo ber undir, en hvergi
verður andrúmsloftið viðlíka
magnað kynæsandi áhrifum og
á vinnustöðvum.
Skrifstofurómantíkin, sem
skáldsagnahöfundarnir voru að
gera sennilega fyrir nokkrum
áratugum, er orðinn raunveru-
leiki. Enn sem fyrr eru reyk-
ingar bannaðar innan veggja í
slíkum stofnunum, annað ekki.
En skrifstofustúlkurnar eru af
allt annarri gerð en áður fyrr.
Og þó að það, sem ekki er
bannað, sé kannski ekki bein-
línis leyft, þá er það að minnsta
kosti ekki bannað.
Kossar, ástafundir — og
sagan búin.
Það gerðist í stóru fyrirtæki,
að einn af skrifstofustjórunum
stofnaði til náinna kynna við
einkaritara sinn. Hann var
kvæntur, hún ung, laus og liðug.
Starfsins vegna urðu þau að
vinna í sama herbergi átta
klukkustundir í sólarhring.
Hvorugt þeirra hafði reiknað
með því, sem skáldsöguhöfund-
arnir kalla vald ástarinnar, og
samt gekk þetta allt eins og í
framhaldssögu. Þau komust ekki
hjá yfirvinnu, hendur þeirra
snertust af tilviljun, það kom
fyrir að þau ræddu málefni,
sem ekkert komu starfinu við
og loks hófust náin kynni með
þeim.
Fyrst voru það skammir ásta-
fundir, kossar, þegar enginn sá
til og á stundum varð skrif-
stofustjórinn að takast ferð á
hendur, fyrirtækisins vegna, og
þá var einkaritarinn vitanlega
í för með honum.
Þess á milli var hann heima
hjá sér að dagsverki loknu, ást-
ríkur faðir börnum sínum og
konu sinni góður eiginmaður —
kannski eilítið utan við sig endr-
um og eins. Einkaritarinn, sem
var mjög fríð sýnum, þáði boð
ókvæntra aðdáenda og skemmti
sér með þeim.
Svo gerðist það, að hún varð
ástfangin af einum þeirra. Hún
sagði húsbónda sínum frá því.
Svo trúlofuðu þau sig, hún og
ókvænti aðdáandinn, og þar sem
hann hafði að minnsta kosti grun
um að kynni hennar og skrif-
stofustjórans, krafðizt hann þess
Nú býðurðu mér upp á kaffi
heima...
Starfsmaður í opinberri skrif-
stofu sagði við mig, án þess að
hann væri nokkuð hneykslaður,
að því er séð varð:
— Þetta er allt frjálsara nú
orðið. Nú þarf maður ekki annað
en að segja við samstarfsstúlku:
„Nú býðurðu mér upp á kaffi
heima“, til þess að hún viti hvað
klukkan slær. Áður hefði slíkt
verið tekið sem grín — þegar
bezt lét.
Sú saga er sögð, að fulltrúi
nokkur bauð ungum manni, sem
hann var að ráða til skrifstofu-
starfa, að snæða með sér morg-
unverð. Að sjálfsögðu var rætt
um skrifstofustörfin, og síðan
barst talið smám saman að ýmsu
öðru innan stofnunarinnar. Full-
trúinn gerðist góðglaður og til
þess að nýi maðurinn kæmi þar
ekki að öllu ókunnugur, sagði
hann honum sem gerzt af hátt-
um starfsfólksins og meðal ann-
ars kom það á daginn, að sér-
hver karlmaður í ábyrgðarstöðu
við fyrirtækið var í nánum kynn-
um við einhverja skrifstofustúlk-
una.
Og þar sem unga manninum
var mjög í mun að kynnast öll-
um aðstæðum sem nánast, og
fulltrúinn þóttist sjá að hann
ætti örðugt með að átta sig á
öllum þessum nöfnum, dró sá
síðarnefndi upp sjálfblekung
sinn og teiknaði einskonar skýr-
ingarmynd á borðdúkinn og
fyllti hana síðan út með nöfn-
um viðkomenda, svo greinilega
mætti sjá hver væri í kynnum
við hverja — sjálfur fram-
kvæmdastjórinn að sjálfsdgðu
efst í myndinni, síðan forstjórar,
fulltrúar og varamenn þeirra.
Þegar þeir fóru, tók ungi mað-
Jg — VIKAN 47. tbl.