Vikan


Vikan - 19.11.1964, Side 24

Vikan - 19.11.1964, Side 24
OLflF OLSEN: Flugið var helzta áhugamálið I æsku Við vorum saman ó fiugskóla í Englandi, nokkrir islenzkir strákar. Skólinn var í Southampton, hét Air Service Training, en stundum kallaður British Air University, sem kannske mætti kalla Loftháskóla á íslenzku. Við sitjum jiarna saman fjórir, ég lengst til vinstri, síðan Valberg Lárusson, þá Björn Guðmundsson flugstjóri og lengst til hægri Garðar heitinn Gíslason flugmaður. Hann fórst s:'ðar í f'ugslysi. Þessi mynd er tekin í þessum sama skóla árið 1949, en ég var þá þar við blindflugsnám. Lengst til hægri er Björn Jóns- son loftsiglinga- fræðingur, ég í miðjunni eins og sjá má af pípunni þótt ekki sé annað, en hinum meg- in við mig Niels Jónsson flugmaður. a var ekki gamall, þegar pabbi fór að taka mig með sér í veiðiferðir og kenna mér að fara með byssu eða veiðistöng. Við áttum heima á Þormóðsstöðum fyrir vestan Grímsstaðaholt, en pabbi vann þar hjá Alliance, sem lifrarhreinsunarmaður og verkstjóri. Þarna fæddist ég 27. júní 1924, sjötti í systkinahóp, sem siðar varð átta talsins. Faðir minn hét Jentoft Olsen, en móðir min, sem enn er á lífi er Ingiríður Lýðsdóttir, frá Hjalla- nesi í Landssveit. Elzta systir mín er látin, en hún hét Sigríður. Næstur — eftir aldri — er Kristinn, flugstjóri, þá kemur Erna, sem er gift og búsett í Reykjavík, síðan Gerhart, flugvélstjóri, Ólafía, lika gift og búsett í Reykjavík, og svo er ég næstur í röðinni. Yngri eru þau Alfred, flugvélstjóri, og Kristín, sem er ógift. Pabbi var með refabú þarna suðurfrá, og ég hafði lengi þann starfa að sjá þeim fyrir fæðu, en til þess hafði ég trillubátinn hans pabba, net, línur og byssur. Þegar ég skaut fyrsta selinn minn var ég um 15 ára gamall. A milli þess að við strákarnir vorum að hjálpa til heima, lékum við okkur að því að smíða flug- vélalíkön, svifflugur og svoleiðis, og ég man vel eftir stóru flugvélinni, sem við Kristinn bróðir smíð- um þarna heima. Hún var svo stór að við gátum báðir verið í henni, en undir henni voru kerru- hjól, sem hún skoppaði á um túnið. A sumrin var ég í sveit, eða ég fór með pabba austur að Þjórsá, en þar hafði hann veiðirétt á leigu ásamt öðrum í 32 eða 33 sumur. Það kom snemma upp í okkur bræðrunum flug- áhuginn, og ég var 14 ára í Flugmodelfélaginu, en þá var Kristinn búinn að taka A, B og C próf í svifflugi, rétt áður en hann fór út til að læra. Auðvitað gekk ég lika í Svifflugfélagið, en þá var pabbi búinn að fá nóg af flugdellunni í okk- ur bræðrunum, og neitaði mér um leyfi til að fljúga. Það þurfti sérstakt leyfi foreldra til að fljúga einn í svifflugu, ef maður var ekki orð- inn 18 ára. Ég ætlaði auðvitað að plata gamla manninn til að skrifa upp á pappirana, því ég vissi að hann mundi neita mér um leyfið. Ég braut þá vandlega saman, svo þeir litu eins sakleysislega út og hægt var, og setti þá fyrir framan hann og bað hann að skrifa nafnið sitt á blaðið. En hann lét ekki plata sig, tók af mér blöðin og las þau. Síðan henti hann þeim í mig aftur og sagði að það væri víst nóg að eldri bræður mínir væru farnir að fljúga, þótt ég færi ekki til þess líka. Og þar við sat. Ég varð að bíða þangað til ég réði mér sjálfur, en á meðan gekk á ýmsu. Oftast var ég í vinnu hjá Alliance, en tvö sumur ók ég vörubíl á Djúpa- vogi, því bíladellan fór heldur ekki framhjá okkur. Svo fór ég að læra flug hjá Kristni bróður og Alfreð Elíassyni sumarið 1944, sama árið og þeir stofnuðu Loftleiðir. Þeir voru þá mikið í sildar- leit um sumarið, og það voru fyrstu peningarnir, sem þeir fengu inn fyrir flug. Svo hélt ég áfram að læra, var aðstoðarvéla- maður hjá þeim í flugskýlinu í Vatnagörðum 1945, og 1946 var ég aðstoðarflugmaður í sildarleit- inni með Dagfinni Stefánssyni. Um haustið fór ég svo í flugskóla í Bretlandi og byrjaði sem flugmaður árið eftir á Stinson og Grumman vélum. Næsta ár fór ég aftur til Bret- lands til að læra blindflug, og flaug eftir það Catalina-flugbátum og Douglas (DC3) og var að- stoðarflugmaður á Skymastervélunum Heklu og Geysi. Fyrsta ferðin mín sem flugstjóri, var með Helga- fellið, þegar það var selt til Spánar, og síðan hefur þetta gengið svona koll af kolli, ég hef farið á námskeið til að læra á nýjar flugvélateg- undir, og núna síðast, þegar Rolls Royce vélin var keypt í vor . . . 24 - VIKAN «. tbt.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.