Vikan


Vikan - 19.11.1964, Síða 32

Vikan - 19.11.1964, Síða 32
Þegar hra V-1 og stra ví næst ek ég vélinni út ú brautarenda, en á meðan förum við yfir 25 atriði í viðbót (Pre-take-off-check), en þegar því er lokið er vélin tilbúin til flugtaks. Rolls Royce hreyflarnir eru m.a. öðruvísi en venjulegir skrúfuhreyfl- ar á þann hátt, að ekki þarf að reyna hvern þeirra fyrir sig, eins og allir vita að gert er með venjulega skrúfuhreyfla, heldur er óhætt að fara beint upp, þegar þessum athugunum og prófunum er lokið. Ég stöðva vélina því ekkert á brautarendanum en gef öllum hreyflunum fullt afl og vélin rennur með sívaxandi hraða eftir brautinni. Ég hefi aðra höndina á nefhjólsstýri vélarinnar, en hina á eldsneytis- gjöfum hreyfianna. „Copilotinn" heldur um sitt hæðarstýri, sem er í beinu sambandi við mitt, en grípur síðan um eldsneytisgjafirnar þegar ég sleppi þeim tii að taka vélina upp. Báðir fylgjumst við með hraðamælinum, og þegar hraðinn er orðinn nægur, kallar hann upp: „V-T" og augnabliki síðar „VR". (V-T merkir að vélin sé komin á það mikinn hraða, að ekki er mögu- legt að stöðva hana aftur, heldur verður að taka hana á loft úr því. VR merkir nægan hraða til flugtaks). Auðvitað fylgist ég líka með hraðanum, en „eopilotinn" kallar hann upp til staðfestingar. Þá sleppi ég hendinni af eldsneytisgjöfinni og tek báðum höndum um hæðarstýrið, sem ég dreg að mér, — og vélin beinist uppávið og fer þegar á loft. Um leið tek ég í handfang, sem setur upp lendingar- hjólin í vélina. Ég beini vélinni uppávið í ákveðnu horni og stilli stjórn- tækin á vissan hátt til að láta hana „klifra" — eða hækka flugið jafnt og þétt. Um þetta leyti förum við yfir 10 atriði í viðbót, og þar á meðal er eift hið síðasta að slökkva á skiltunum aftur í farþegaklefanum, þar sem á stendur að reykingar séu bannaðar. Við eigum eftir að klifra í 20 mínútur eða hálftíma, og ég set hluta af sjálfstýringunni (autopilof) í samband, þannig að hún stjórnar vél- inni að mestu leyti . . . Sjálfstýring I 20 þúsund fetum Við erum komnir í 20 þúsund feta hæð, eins og áformað var og ég set fulla sjálfstýringu á vélina. Ég fylgist auðvitað með öllum mælum og sé að allt er eðlilegt, en að öðru leyti þarf ég ekki að hafa áhyggjur af fluginu. Ég get jafnvel staðið upp til að rétta úr mér dálitla stund, því „copilot- inn" er á sínum stað á meðan. En það er svo lítið pláss frammi í stjórnklefanum, að það er eins gott að sitja kyrr. Ég næ þess vegna í pípuna mína og hreinsa hana vel og vandlega áður en ég treð í hana tóbaki og kveiki í. Pípusköfuna set ég svo við hliðina á mér, rétt fyrir ofan sjálfstýritækin eins og vanalega, því þar er hún alltaf við höndina ef í nauðirnar rekur. Héðan af þarf lítið sem ekkert að hugsa um vélina, ef allt er með felldu, og ef okkur dettur í hug að beygja af leið, þá þarf ekki annað en snúa örlitlum hnapp, á stærð við takka á útvarpstæki, og vélin hlýðir samstundis. Takkarnir fjórir efst á myndinni stjórna eldsneytisblöndunni inn á hreyflana, en vélamaðurinn sér um að þeir séu rétt stilltir hverju sinni.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.