Vikan - 25.11.1965, Blaðsíða 33
SKfdÐBUXUR FYRIR MINNSTA MANNINN
Ætlaður á þriggja ára og hver ferhyrningur er 5 y. 5 cm. Orvarr.ar sýpa hvernig liggja á í efninu.
1. Köflóttar buxur meS axlaböndum. Kantarnir
bryddaðir með skinni.
2. Sé munstrinu breytt svolítið og skörð sstt niður
í hliðarnar er hægt að hneppa buxunum niður,
þegar mikið liggur á.
3. Einlitar buxur, axlaböndin hneppt á öxlunurri
og skinnbætur á hnjám.
4 Sömu buxurnar, en skrautleg bót sett fil styrkt-
ar að aftan. jV
TVEIR KJÖLAR ÚR SÖMU SNIÐUM
Báðir kjólarnlr eru á 3 — 4 ára, og í J>á l>áða fcr 1 m af 90 cm
breiðu efni. Sniðið af þeim t.v. er með heilum línum á myndinni,
en sá ermalausi er með punktalínum. Klippið 1,5 cm aukalega fyrir
saumum, gerið ráð fyrir góðum faldi á kjólnum t.v., og látið liggja
beint í efninu. Kjóllinn t.v. er hnepptur niður alla leið að aftan
og efnið þess vegna sniðið að aftan alla leið út að línu K, en þegar
saumað er á að brjóta inn af á iínu M, en munið að mcrkja vel á
efnið hvar miðjan á bakinu er. Merkið líka hvar ermin á að mæta
axlarsaumnum, og látið ermina hafast svolítið við. Gætið þess, að
saumurinn neðan á erminni mæti hliðarsaum kjólsins. Festið krag-
ann á með skábandi, og festið hnappa á að aftan og saumið hnappa-
göt. Kjóllinn t.h. er hnepptur á öxlunum, þannig að ekki þarf að
hncppa honum að aftan. Klippið 8 cm breiða ræmu til að leggja
undir tungurnar að neðan, sömuleiðis þarf að vera tvöfalt undir
liálsmáli alla leið niður að strikalínunni niður fyrir handveg. Þegar
tungurnar eru saumaðar er fóður og efni lagt saman á réttunni og
síðan snúið við þcgar búið er að sauma tungurnar, cn þær þurfa
aö vera vel sléttar og jafnar, svo að fyrir þær, sem ekki hafa gert
það áður, er bezt að æfa sig á öðru efni fyrst. Hver ferningur lxl cm.
EINFALDUR SKOKKUR, SEM HÆGT ER
AÐ NOTA BÆÐI MEÐ BELTI OG BELT-
ISLAUSAN.
HVER FERNINGUR 5X5 CM.
•WT MKSDKH