Vikan - 25.11.1965, Qupperneq 52
MN©MEnt
Eitt fullkomnasta s|ónvarpstækið ó markaðinum í dag. 25" skermir
er gefur 20% stærri mynd. Tækið fæst með stereo plötuspilara eða
segulbandstæki. Læsanlegar rennihurðir. Fullkomin viðgerðaþjón-
usta á staðnum. Margar gerðir fyrirliggjandi.
EINAR FARESTVEIT & C0. H.F. aðalstræti is.
ÚTVARPSVIRKI LAUGARNESS, Hrísateig 47,
HÚSGAGNAVERZLUN AKRANESS,
STAPAFELL H.F., Keflavík,
KAUPFÉLAG SUÐURNESJA, Grindavík.
Dagkjólar
Kvöldkjólar
frá
Hollywood
og Englandi.
Nýjasta
tízka.
LOLY
BARÓNSTIG 3.
með venjulegum aðferðum og
þær eldri með stjörnuspádómum
og öðrum álíka kynjum. Á þessu
tímabili gerðist Casanova svo
hrifinn af Frökkum og öllu sem
þeim tilheyrði, að hann þaðan
af taldi sig miklu fremur til
þeirra en sinnar eigin þjóðar;
til dæmis um það má nefna að
hann upp frá því skráði skírn-
arnafn sitt á franskan máta,
Jacques í staðinn fyrir Giacomo.
í París komst Casanova í kynni
við markgreifafrú að nafni
d'Urfe. Hún var nokkuð komin
til aldurs og full af ailskonar
grillum, til dæmis taldi hún sig
vera langt á veg komna með að
geta breytt óæðri málmum í gull.
Casanova, sem kannaðist v;ð
þessháttar hókuspókus frá norn-
inni fóstru sinni, tók þegar að
hafa fé út úr markgreifafrúnni
með því að telja henni trú um,
að hann væri útfarinn á þessu
sviði. Ekki dugði þetta honum
þó til framfærslu, enda lifði
hann eins og kóngur. Til að hafa
eitthvað upp í kostnaðinn, stofn-
aði hann fyrirtæki, þar. sem tutt-
ugu Parísardömur unnu við að
teikna á silki. Hagnaðurinn af
fyrirtæki þessu varð að vísu ein-
hver, en fór allur í gjald fyrir
blíðu starfsstúlknanna.
Um síðir varð Casanova ekki
vært í París fyrir reiðum eigin-
mönnum og unnustum og flakk-
aði þá um hríð um nokkut nær-
liggjandi lönd, uns hann vogaði
sér til Parísar aftur. Hann hafði
talið áðurnefndri markgreifafrú
trú um, að hann hefði vald til
að flytja sál hennar yfir í líkama
sveinbarns, sem getið væri af
dauðlegum karlmanni og konu
af guðlegum uppruna. Madame
d'Urfe skyldi taka barnið í fang
sér þegar eftir fæðingu þess og
hafa það hjá sér í sjö daga. Síð-
an myndi hún deyja með varir
sínar við varir bamsins, sem
þannig myndi veita sál hennar
viðtöku. Eftir þrjú ár myndi hún
rísa upp frá dauðum. Auðvitað
fylgdi það með, að madaman
gerði erfðaskrá barninu í vil. en
Casanova skyldi vera fjárhalds-
maður þess uns það næði þrettán
ára aldri.
f hlutverk hinnar guðlegu
meyjar valdi Casanova ballerínu
nokkra; taldi d'Urfe trú um, að
hún væri dóttir yfirnáttúrulegs
töframeistara og þar að auki af
keisaraættum frá Konstantínópel.
Sjálfur ætlaði hann auðvitað að
leika hlutverk hins mjög svo
mannlega föður. Getnaðurinn
skyldi eiga sér stað fjórtánda dag
aprílmánaðar. Casanova segir svo
frá:
„Þetta kvöld snæddum við
létta máltíð, og síðan gekk ég til
hvílu. Stundarfjórðungi síðar
kom Madame d'Urfe inn til mín,
leiðandi meyna Lascaris. Hún af-
klæddi hana, úðaði hana í ilm-
efnum og kastaði yndislegri
slæðu yfir líkama hennar, og
þegar prinsessan hafði lagzt við
hlið mína þá dvaldi hún um
kyrrt og óskaði þess að verða
viðstödd aðgerðina, hverrar ár-
angur yrði endurfæðing hennar
sjálfrar að níu mánuðum liðn-
um. Við lékum leikinn, og síðan
lét Madame d'Urfe okkur ein
það sem eftir var nætur, og var
þeim tíma vel varið ... og á eftir
leitaði ég véfrétta um hvort Las-
caris hefði fengið. Það gat svo
sem vel verið, því ég hafði ekk-
ert til þess sparað, en taldi þó
varlegra að láta véfréttina svara
að aðgerðin hefði mistekizt.. . “
Það var eins gott, því hin goð-
borna prinsessa reyndist þjófgef-
in í meira lagi og var staðin að
því að reyna að stela gimstein-
um markgreifafrúarinnar. Sagði
Casanova frúnni þá, að illur andi
hefði komizt í stúlkukindina og
yrðu þau því að Verða sér úti
um aðra mey. Þessu til staðfest-
ingar bar hann fyrir sig bréf,
sem hann kvaðst hafa fengið frá
mánagyðjunni. Frúin trúði hon-
um enn eins og nýju neti og
sparaði ekki í hann vasapening-
ana.
Litlu síðar brá Casanova sér
til Englands, en þar hitti skratt-
inn ömmu sína fyrir. í Lundún-
um lenti hann nefnilega í klón-
um á harðskeyttri fjölskyldu
vændiskvenna, sem samanstóð af
ömmu, þremur dætrum hennar
LILJU
LILJU
LILJU
LILUU
LILJU BINDI
ERU BETRi
Fást í næstu búð
52 VIKAN 47. tbl.