Vikan - 25.11.1965, Blaðsíða 11
Amalía Líndal, höfundur þeirrar greinar, sem hérbirtist, ergiftBaldri Líndal, verkfræðingi, og hefur
verið íslenzkur ríkisborgari síðan 1948, þar af búsett hér í 16 ár. Hún er rithöfundur og hefur samið
fjölda greina, sem birzt hafa í erlendum blöðum, en þessi grein mun vera ein sú fyrsta, sem eftir
hana birtist í blöðum á íslandi. Smásögur hennar hafa einnig verið birtar í erlendum blöðum
utan tvær, sem íslenzk blöð hafa flutt. Aðal hugðarefni hennar er skáldritun, og er töluvert kunn
hér ein bóka hennar, Ripples in lceland. Hins vegar segisthún nú hafa snúiðsérað ritun greina
til að komast í snertingu við daglegt líf. Amalía hefur B. S. próf í blaðamennsku frá Boston Uni-
versity og var fréttaritari hér fyrir Christian Science Monitor frá 1949-51. — Þau Baldur
eiga fimm börn, og mun það eiga sinn þátt í að Amalía réðst í að skrifa meðfylgjandi grein, þar
sem hún ræðir vandann, sem rís af rysjóttri og óstöðugri veðráttu hérlendis og hvernig bregðast
mætti við honum.
VIKAN 47. tbl.