Vikan


Vikan - 14.04.1966, Blaðsíða 32

Vikan - 14.04.1966, Blaðsíða 32
■*' 'i’li' HIN SÉRSTÖKU ILMKREM FRÁ AVON. Sex ilmtegiuidir — indælar, mildar og lokkandi, við hæfi hverrar konu. Svalandi, heit og rómantisk áhrif. Við öll tækifœri er ILUKRBM ávallt það bezta. Aðeins ögn á hndleggi hált og herðar — kremið hverfur, en ilmurinn verður eftir lengi — lengi. STJD ÍRNUSPfl^ • Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú ert ekki mjög ánægður með þann árangur sem þú hefur náð. Gættu þess að gera ekki of háar kröf- ur til umhverfisins. Þú ert of nærgöngull við einn kunningja þinn. Þú skemmtir þér vel í vikulokin. mr Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú færð nýja og góða hugmynd sem þú skalt reyna að koma í framkvæmd. Maður sem þú verður að umgangast vegna utanaðkomandi atvika ergir þig ó- segjanlega. Þú lendir í smá ævintýri. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Kynni þín af vissum málum opna þér nýja leið. Vin- ur þinn er nokkuð snúinn í þinn garð vegna móðg- andi framkomu þinnar. Eldri kona sýnir þér mikla vinsemd og skaltu þiggja það sem hún býður. $ Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Tíminn reynist þér nokkuð naumur til að ljúka verki þínu á tilskildum tíma. Heyndu að glæða þá félagsstarfsemi sem þú ert þátttakandi í. Þú verð- ur að taka að þér verk sem þér er ógeðfellt. f*r Ijónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst): Þú verður að velja á milli tveggja kosta, hugsaðu þig vel um. Þú átt skemmtilegt samkvæmi í vænd- um, þú munt njóta þess í ríkum mæli ef þú ert rétt stemmdur. Óvænt happ rekur á fjörur þínar. Méyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):- Maður nokkur gerir þér gott tilboð sem þú skalt grípa áður en honum snýst hugur. Þú ert nokkuð órólegur þar til í seinni hluta vikunnar, þá færðu svar við spurningum þínum. Heillalitur er grænn. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Líkur eru á að eitthvað gerist sem ræður úrslitum um vissan þátt framtíðar þinnar. Þú nýtur hæfi- leika þinna vel. Yfirmenn þínir sýna þér nokkurn heiður. Einhver lasleiki verður í kringum þig. ¥ Drekamerkið (24. 'október — 22.. nóvember); Varastu að setja smámuni fyrir þig. Slappaðu af og taktu hlutina ekki of hátíðlega, allra sízt sjálfan þig. Reyndu að líta ekki hversdagslegum augum á umhverfið. Happatala er níu. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Óskir þínar munu rætast. Eftirminnilegur atburður skeður síðari hluta vikunnar. Þú verður fyrir ó- þægilegri gagnrýni sem hefur nokkur áhrif á gerð- ir þínar síðar meir. Kapp er bezt með forsjá. & Steingeitarmer.kið (22. desember — 20. janúar): Vikan verður ánægjuleg, en stórviðburðasnauö. Þú gegnir óvenjumikið vissu þjónustuhlutverki. Tími þinn reynist miklu drýgri en þig hafði órað fyrir og geturðu þakkað það góðum ráðleggingum. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19 febrúar): Þú ert fremur þungur í skapi og viljalítill. Reyndu að setja ekki fyrir þig smámuni og slakaðu á, held- ur en að einblína á skuggahliðarnar. Þú verður að leggja út nokkurt fé i vikulokin. Fiskamerkið (20. febrúar — 20 marz): Mál sem þú hélst að væri út úr heiminum verður vakið upp. Gættu þín á öllum ævintýramönnum, þó þeir geti verið skemmtilegir í aðra röndina. Þú átt mjög góða kunningja sem þú skalt vera með. 22 VIKAN 1S. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.