Vikan - 14.04.1966, Blaðsíða 4
yf
Síðustu dagana í febrúar varð sá við-
burður á íslandi, að Ella Fitzgerald
heimsótti Reykjavík og söng í Háskóla-
bíói. Um það hafa oft heyrzt raddir
á undanförnum árum, að hún væri
væntanleg, og var heimsóknar henn-
ar beðið með mikilli eftirvæntingu.
Hins vegar gerðist það, aðdáendum
hennar til furðu og gremju, að hún
varð að horfa fram í hálftómt hús,
í fyrsta skifti í 15 ár, og kom síðan
fram á niðursettu verði á tveimur
aukahljómleikum.
Hefur þessi útsala vakið mikla furðu
og umtal, en Ella sjálf tók henni mjög
vel, enda undraðist hún upprunalegt
verð miðanna, þegar hún fékk um
það að vita.
Frétzt hefur, að Ella ætli að koma
hér við aftur síðar á árinu og verði
þá allur undirbúningur að söngleik-
um hennar á hennar eigin vegum, og
vonum við sannarlega að af komu
hennar verði.
Meðfylgjandi myndir tók Kristján
Magnússon á tónleikum hennar í Há-
skólabíói í febrúar.
Skemmtunin hófst fyrir alvöru, þegar
Ella tók við hljóðnemanum. Það er
rétt að taka fram, að þau Ólafur
Stephensen eru ekki í sjómanni.
Ella hafði strax orð á því, hve henni
þætti vænt um þessar örfáu hræður,
sem komu til að heyra hana syngja.
Og svo söng hún . . .
. . . jafnvel betur en áður . . .
. . . fallegar en nokkru sinni fyrr . . .
. . . enda var lófatakið ósvikið við
lok hvers lags.
Í BJÍlHni BMÍ
ELLU
FIIZUERALI
£ VIKAN 15. tbl.