Vikan


Vikan - 02.06.1966, Blaðsíða 10

Vikan - 02.06.1966, Blaðsíða 10
Frú Boswell horfði með óánægjusvip á glerið, sem hún var búin að mala í duft og hellti því í kartöflumaukið. Hún var að búa til mat fyrir mann, sem hafði það í huga að yfirgefa hana og hún var búin að ganga frá matseðli, sem örugglega myndi hraða brottför hans. Jafnvel þótt þetta væri ekki venjuleg aðferð, var þessi máltíð vel tilbúin, ef morðsjónarmið er haft í huga. í kjötbúðingnum var svolítið að muldum kakalakka, í salatið hafði hún stráð bamb- ustægjum úr gamalli dyramottu og saftsósan hafði staðið í nokkra daga úti á heitum eldhússvölunum, svo hún hafði sjálf myndað sínar banvænu bakteríur. Maður hennar kom heim á slaginu klukkan sex. Hann fleygði hattinum sínum í áttina að hattahillunni, en hitti ekki á hana, frekar en venjulega. Hann hengdi frakkann á hurðarsnerilinn, sparkaði af sér skónum á dagstofugólfinu og kastaði svo sjálfum sér upp í legubekk með eftirmiðdagsblöðin. Eftir andartak var hann farinn að hrjóta, eins og venjulega. Frú Boswell stóð í dyrunum, horfði á hann og brosti með sjálfri sér. — Bráðum sofnar hann svefninum langa, hugsaði hún. Svo gekk hún inn í stofuna og ýtti við honum. — Frank, maturinn er tilbúinn! Hann reis upp, ruddist fram hjá henni inn í borðstofuna og horfði með vandlætinga- svip á borðið. Svo gretti hann sig og sagði: — Þetta er það sama sem ég fékk á hádeginu. Hversvegna geturðu ekki fundið upp á einhverju nýju? Eg vil heldur eggjahræru, búðu til eggjahræru! Frú Boswell andvarpaði, kastaði matnum í ruslafötuna og bjó til eggjahræru. Hún var ekki neitt undrandi þótt fyrsta tilraunin misheppnaðist. í þeim bókum sem hún hafði lesið, heppnuðust morðin sjaldan við fyrstu tilraun. — Ég reyni bara aftur, sagði hún hughreystandi við sjálfa sig. Amy Boswell var smávaxin, lítilsgild kona og sálarstyrkurinn var álíka og kekkur í sósu, áhrifalaus í hérumbil öllu sem hún tök sér fyrir hendur. Hún reiknaði ekki með því að henni tækist betur við þessa morðfilraun en henni hafði tekizt að sinna því hlutverki að vera góð eiginkona fyrir Frank. Allt frá brúðkaupsferðinni hafði það sýnt sig að hún var algerlega óhæf sem slík. Brúðkaupsnóttina hafði Frank notað til að hnýta laxaflugur í ísköldum veiðikofa uppi í fjöllum, meðan hún sat í keng af kulda fyrir framan oliuvélina og reyndi allt sem hún gat til að sýnast kvenleg og freistandi. En hún var í flónelsnáttkjól og kápu utan yfir, svo það var ekki á góðu von. Hún átti eftir að fá þá bitru reynslu, að þegar veiðivon var einhversstaðar á næstu grösum, þá var Frank betri veiðimaður en elskhugi. Dagarnir eftir brúðkaupsnóttina voru eins og martröð. Hún fann að hún hafði valdið Frank vonbrigðum, frá þvi augnabliki þegar veiðistígvélin hennar urðu lek og fylltust af vatni, úti í miðjum, straumhörðum fjallalæknum. Hún átti erfitt með svefn í þunnu fjallaloftinu og henni bauð við þessum hálfsoðnu, slimugu silungum. Svo var það eins og mýflugurnar gætu hvergi verið annarsstaðar en á andliti hennar eða öðrum berum blettum, og skildu þar eftir rauða flekki og bólguhnúða. Eftir brúðkaupsferðina komst Amy að því að Frank var ekki eingöngu æstur i fisk- veiðar, heldur hafði hann líka ótakmarkaðan áhuga á skíðaferðum, badminton, hockey, siglingum, köfun og reiðmennsku. í bílskúrnum og uppi á skrifstofunni hans flaut allt af allskyns einkennilegum tækjum og tólum, dagblaðahillan var full af íþróttatimarit- um og í kjallaranum var allt fullt af froskmannsbúningum, skíðum og öðru drasli. Fyrir Amy var skemmtun í því fólgin að fara út að borða, fara í bíó eða leikhús. En fyrir útivistardýrkandanum Frank var Amy aðeins fjötur um fót. Hversu mikið sem hún reyndi hafði hún aldrei í öll þessi ár sem þau voru búin að búa í hjónabandi getað veitt einn einasta fisk. Línan flæktist alltaf og öngullinn lenti alltaf í buxnaskálmum Franks. Seglin rifnuðu hjá henni, golfkúlurnar týndust, fóru venjulega niður i einhvern poll, tennisboltarnir lulluðust niður á netið, eins og dauðar dúfur. Henni varð alltaf illt í fót- unum, á löngum gönguferðum; og þegar hún reyndi að leika borðtennis við hann í kjall- aranum, rak hún sig alltaf ( vatnsrörin í loftinu. Það leið langur tími þangað til Frank gafst upp. í mörg ár tók hann hana með sér, þegar hann fór á veiðar, en þegar hún birtist hurfu veiðifélagar hans. Það var svo sem ekkert undarlegt, hún var farin að láta á sjá, var ósköp ólöguleg í rauðri flónelsskyrtu og kakibuxum, skjótandi í allar áttir, ef hún sá einhverja hreyfingu. Að lokúm sá Frank að þetta strit var vonlaust, þegar hún skaut af honum hattinn. Þá fór hann að skilja hana eina eftir heima, þegar hann fór á flandur með félögum FULLK JQ VIKAN 22. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.