Vikan


Vikan - 02.06.1966, Blaðsíða 45

Vikan - 02.06.1966, Blaðsíða 45
tjöldin eru sterk og ódýr. Tjöldin meS bláu aukaþekjunni eru góð, falleg litasamsetning. ViSgerSarþjónusta. Teppasvefnpokarnir eru hlýjir og hæfa vel íslenzkri veSráttu. PALMA vindsængur eru viður- kenndar fyrir gæði. Verð frá kr. 485. Verzlið þar sem úrvalið er. Verzlið þar sem hagkvæmast er. Verzlið í stærstu sportvöruverzlun landsins. LAUGAVEGI 13 - KJORGARÐI NÚ ER RÉTTI TÍMINN TIL AÐ HUGA AÐ irrnn ~~1 pflfl flTffD] ífi ÍSII íifl flll JLyjL!3 !□ Sli JIJUi jyi ínlli ulfíJL M Gasferðaprímusar - Pottasett, margar gerðir Gúmmíbátar. Munið eftir veiðistönginni. Póstsendum rauSa vespan stóð. Þetta var nýtt tæki, vel með farið. Sætið var með gljúpu áklæði, og undir áklæðinu var svampgúmmí. Hann tók salt- sýruflöskuna upp úr vasanum og hellti úr henni á sætið. Svampurinn drakk vökvann þegar í sig. Hann kastaði tómri flöskunni í ruslatunnu, gekk aftur í kringum húsið og út um framdyrnar. Lam- bretta Nicole stóð við gangstéttina. Hann tók sér nægan tíma, skrúfaði frá eldsneytinu og stillti blöndung- inn. Ut undan sér sá hann Chaldier flýta sér yfir götuna og inn í sund- ið. Willie setti vespuna í gang og lagði hægt af stað. Um leið heyrð- ist vespa rifin hressilega af stað, inni í bakgarðinum, og hann sá í speglinum, hvar Chaldier kom niður sundið. Maðurinn gretti sig og Willie sá hann rísa upp á fótstigunum og seilast aftur fyrir sig með annarri hendi og toga í setuna á buxunum sínum. Willie herti ögn á sér og beygði til hægri eftir Rue Vauban, í áttina að Place General de Gaulle. A eft- ir honum kom Chaldier í hlykkjum og skrykkjum. Þeir óku í hring á torginu, og Willie leit um öxl, þegar þeir komu að horninu. Chaldier stóð nú til hálfs á fótstigunum í hræði- legri stellingu, og teygði aðra hönd- ina niður á milli fótanna, til að toga í rakar buxurnar. — Ég hef séð þá tekna fasta fyrir minna en þetta, hugsaði Willie ánægður. Hann fann ánægjuna breiðast út hið innra með sér, en svo hvarf hún aftur, þegar hann minntist símtalsins við Modesty. Hvað gat hafa borið að höndum strax? Og hverskonar vandi var það, sem Modesty réði ekki við? Ovissan nagaði hann. Einhver hlaut að hafa setið yfir henni, annars hefði hún talað frjálslega í símann. Og hún hlaut að hafa hringt til hans eftir skipun, til að ná honum heim í íbúð Hagans. Það var ofur- lítil huggun að vita það. Það þýddi, að hver sem var þar, vildi fá Willie Garvin í netið, áður en hann léki næsta leik. Hann hætti að hugsa um þetta og einbeitti sér að akstrinum og fylgdist með Chaldier í speglinum jafnhliða því, sem hann varð nokk- uð óþolinmóður. Brúðkaupskaka þorparans hlaut að vera sútuð og hert; hann hlyti bráðum að verða að stanza og þjóta í áttina að al- menningssalerni — eða að minnsta kosti eitthvað út úr sjónmáli, svo hann gæti farið úr buxunum. Og svo hægt væri að sjá um hann. Þeir voru næstum komnir niður Rue Albert núna, og ennþá fylgdi Chaldier. Willie sneri til höfðinu til að sjá aftur, og sá þjáninguna og skilningsleysið á andliti mannsins, þegar hann sveigði hættulega þvert yfir götuna og svo aftur til baka. Willie beygði til hægri og ók sjávargötuna, þar sem lágur vegg- ur skildi milli götunnar og strand- arinnar. Allt í einu var eins og Chaldier gengi af göflunum. Hann reyndi að komast af vespunni, án þess að nema staðar. Hún rakst á rennusteininn og hann valt með alla anga útglennta yfir gangstétt- ina. Willie nam staðar og sneri sér við til að fylgjast með. Chaldier barðist við að ná sér úr buxunum og stökk um leið ofan af lágum veggnum niður á ströndina. Þetta fór ekki vel saman. Hann lenti f hafti, móður, másandi og sparkandi, til að losna við buxurn- ar. — Ræfillinn! tautaði Willie, gátt- aður á því hve vel honum hafði heppnast bragðið. Undir buxunum var maðurinn í skrautlegum stutt- buxum með hvítum og bláum rönd- um. Allskonar fólk safnaðir.t að með miklum hraða, og hneykslunarhróp- in bárust — Est il fou? — Ah, c'est dégoutant! — Devant les enfants, voyons! Lögregluþjónn gekk yfir götuna og stytti sér leið í gegnum hópinn. Chaldier var að staulast út í sjó- inn með röndóttar stuttbrækurnar um annan öklann. Hann settist, þeg- ar hann var kominn í mittisdýpi, hélt annarri hendinni um höfuðið, en hin var undir sjávaryfirborðinu. Röndóttar stuttbuxurnar flutu burt. Lögregluþjónninn skálmaði niður að sjávarströndinni. Hann blés í flaut- una til að vekja athygli Chaldiers, og benti honum að koma. Willie fannst nú nóg að gerast. Hann sleppti kúplingunni og opnaði fyrir bensingjöfina, og stefndi f átt- ina að veginum, sem lá þvert yfir Cap d'Antibes. Hann var þakklátur fyrir að hafa fengið lambrettuna lánaða í staðinn fyrir að ná í bíla- leigubílinn, sem hann hafði skilið eftir skammt frá markaðinum. Með þessari umferð, sem nú var, myndi hann komst miklu fyrr til Cannes en í bíl. Eftir tuttugu mínútur var hann kominn til Boulevard de la Croisette og hafnarinnar. Þegar hann ók upp þröngar, krókóttar götur gamla hverfisins, sá hann mann ganga spottakorn framundan, rólegan í fasi, með göngustaf. Hann var há- vaxinn og gráhærður. Hann var í dökkum buxum, í Ijósbleikum, þunn- um jakka, brúnum gönguskóm. Willie ók upp að gongstéttinni fyrir framan manninn og steig af vesp- unni. — Halló, Sir G. Átti ekki von á að sjá þig hér. Tarrant hallaði sér fram á staf- inn. Hann fann einhverja spennu I Willie Garvin, og velti því fyrir sér, hvort Paul Hagan hefði verið erfið- ur. — Þetta er nú ekki beinlínis opin- bert, sagði hann. — Ég átti fyrir löngu að vera farinn í frí, og hans hágöfgi krafðist þess, að ég kæmi hingað með honum. Og úr því að ég átti að sjá persónulega um þetta mál, fannst mér góð hugmynd að koma. Framhald í næsta blaði. VIKAN 22. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.