Vikan


Vikan - 02.06.1966, Blaðsíða 40

Vikan - 02.06.1966, Blaðsíða 40
TakiS eftir teak örmum, þeir varna áklæöinu frá sliti. Belló sófasettiS er hægt að fá með 3ja eða 4ra sæta sófa. Senum í póstkröfu. Hagkvæmir greiðs!uskiimá!ar. Nýja Bólsturgerðin Laugavegi 134. — Sími 16541. FÁANLEG AFTU R 1960 BELLÓ Söluumboð: Vestmannaeyjum: HÚSGAGNAVERZLUN MARINÓS GUÐMUNDSSONAR. - Keflavík: HÚSGAGNAVERZLUNIN GARÐARSHÓLMI. hættulegastar af öllum reyking- um. Við höfðum góða aðstöðu til að fylgjast með reykingunum, þar sem við höfum tekjur af sígarettusölunni, og það sýndi sig, að fyrst eftir að skýrslan kom, minnkuðu sígarettureyk- ingar um meira en helming. Það stóð í rúmlega þrjá mánuði, en svo fór að síga á ógæfuhliðina á ný. Og það er staðföst skoðun allra, sem við þessi mál fást, að eina leiðin til að minnka reyk- ingar, sé að fara í skólana og reyna að hafa áhrif á börnin. Þrátt fyrir allt er raunin sú, að sígarettumagnið sem selt er hef- ur ekki aukizt frá því sem það var, — áður en skýrslan var gefin út, þangað til jókst hún jafnt og þétt, meira að segja mjög ört, þó hefur landfólkinu fjölgað á þessu tímabili, og það er annað, sem má líka benda á að erlendir ferðamenn reykja mikið af okkar sígarettum og ferðamannafjöldinn hefur aukizt gífurlega undanfarið að sígarettusalan stendur í stað held ég að stafi fyrst og fremst af því, að börnin og unga fólkið fer að minnsta kosti seinna að reykja vegna áróðurs Krabba- meinsfélaganna. — Nú, en við vorum aðeins búnir að fá það fram með þessa fimmtugu, hvað þeir ættu að koma þétt. En hvað með þá, sem yngri eru, og hve snemma ætti maður að byrja að nota sér þessa þjónustu? — Það er ákaflega erfitt að gefa reglur um það, þvi krabba- mein getur myndazt á öllum aldri, meira að segja í börnum, þótt það heyri til undantekninga, og sama gildir um unga fólkið, það getur fengið krabbamein á hvaða aldri sem er. En yfirleitt sýnir það sig, að hættan er lítil, fram yfir fertugsaldurinn að minnsta kosti. — En ef við segjum, að fólk kæmi fyrst um þrítugt síðan aft- ur 35 ára og fertugt, myndi það ekki auka líkurnar til að koma í veg fyrir krabbamein? — Það myndi vafalaust hafa mikla þýðingu, en það sem sér- staklega skiptir máli, er að fólk- ið komi undir eins og það finnur til einhverra einkenna, sem, sam- kvæmt þeirri fræðslu, er það fær nú á dögum, gæti gefið til kynna, að það væri með byrj- andi krabbamein.En það er það, sem fólkið trassar. ☆ Heilgþveginn... Framhald af bls. 19. asta bréfið og lét þó vita, að ef þeir hefðu ekki sleppt Kaí-jen út fyrir fyrsta október, þá færi ég frá Kína. Þeir slepptu henni tuttugasta og þriðja september. Eftir tíu mán- aða innilokun var hún hrædd og mögur og sárhrygg yfir því að yfir- völdin skyldu geta verið svona ruddaleg út af því einu, að tvær manneskjur elskuðu hvor aðra. Við ákváðum að gifta okkur taf- arlaust. Þann tuttugasta og annan nóvember afhenti Rauði krossinn mér loksins leyfisbréfið, sem hver útlendingur varð að fá til að geta gengið í hjónaband, og daginn eft- ir tókum við strætisvagn til skrá- setningarskrifstofu í miðhluta Pek- ingborgar — • lítillar kytru, þar sem nokkrir gamlir embættismenn sátu og gerðu ekkert við dauft skin frá olíulampa. Þeir urðu steinhissa við að fá heimsókn útlendings. Þeir lásu pappírana mína og svo hringdi einn þeirra í Rauða krossinn. Síðan fyllti hann út eyðublöðin með túss- pensli, stimplaði þau og innsiglaði og sagði nokkur orð í lágum hljóð- um við Kaí-jen, en ekkert við mig. Síðan bað hann um ómakslaun sín — þau námu eitthvað tíu sentum — og tók í hendur okkar. Við vorum orðin hjón. Kaí-jen hélt ekki áfram í skólan- um og hún fékk sér ekki heldur neina vinnu, því við töldum að með því móti yrði auðveldara fyrir okk- ur að yfirgefa landið, þegar þar að kæmi. Svo hófust illindin milli Kína og Sovétríkjanna og þá upphófst áköf viðleitni til að einangra útlending- ana. Hver útlendingur, sem ekki var kvæntur eða giftur Kínverja, var al- gerlega einangraður frá öllu sam- neyti við landsmenn, en ég gat hins- vegar haldið sambandinu við mína kínversku vini. Ég heimsótti þá þó ekki fyrr en seint á kvöldin og fór þá alltaf í síðan ktnverskan slopp, setti upp kínverskan hatt og batt á mig grímu, sem var með kínversku útliti. 1962 bað ég Rauða krossinn að útvega mér vinnu og í júní það ár fór ég að vinna hjá áróðursforlagi einu. Þar var hlutverk mitt að þýða og lesa yfir greinar f ensku útgáf- una af tímaritinu Kína í myndum. Forlagið var undir beinu eftirliti Sjú En-læs forsætisráðherra og ég hitt’ VIKAN 22. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.